Fréttablaðið - 13.07.2004, Qupperneq 21
Við hvetjum lesendur til að senda okkur
línu og segja skoðun sína á fréttum
blaðsins, viðhorfum sem birtast í blaðinu
eða leggja orð í belg um málefni líðandi
stundar. Bréf skulu vera stutt og gagnorð,
50–200 orð að lengd. Ritstjórn áskilur
sér rétt til að stytta aðsent efni.
Vinsamlega sendið efnið í tölvupósti á
netfangið greinar@frettabladid.is.
Forsetinn getur ekki undirritað brellulögin
Í grein hér í blaðinu þann 20. maí
síðastliðinn sagði ég einboðið að
forseti Íslands myndi skjóta fjöl-
miðlafrumvarpinu til þjóðarinnar
í almenna atkvæðagreiðslu, - af-
greiddi Alþingi duttlunga forsæt-
isráðherra sem lög. Það gekk eftir
eins og alþjóð veit, meðal annars
vegna þess að haftalög sjálfstæð-
ismanna brjóta gegn stjórnar-
skránni og alþjóðasamningum,
svo sem tjáningarfrelsinu, eignar-
rétti og jafnræðisreglu.
Brellulög Davíðs breyta hér
engu. Nýju lögin forsætisráðherr-
ans fela ekki í sér aðrar nýjungar
en nýju fötin keisarans, hann er
nakinn. Hafi forsetinn ekki treyst
sér til að undirrita fyrri lögin
getur hann ekki heldur undirritað
hin síðari sem eru nákvæmlega
þau sömu, með örlitlum breyting-
um sem engu skipta um eðli, inn-
tak og afleiðingar laganna.
Í ofangreindum pistli benti ég
ennfremur á að umræðan í samfé-
laginu hefði þróast á þann veg að
ef forsetinn hefði skrifað undir
lög, eftir allt hafaríið sem á undan
gekk, yrði málskotsrétturinn end-
anlega álitinn dauður bókstafur og
ónothæfur fyrir þá forseta sem
síðar munu gegna embættinu. Ég
taldi fullljóst að Ólafur Ragnar
Grímsson hafi ekki áhuga á að af-
nema þennan rétt forsetans og
grafa með skóflu Davíðs Oddsonar.
Sama staða er uppi núna.
Takist forsætisráherra að hafa
ákvörðun forsetans, um að þjóðin
fái að taka afstöðu til fjölmiðla-
laganna í atkvæðagreiðslu, að
engu, verður málsskotsrétturinn
þar með að engu hafður.
Þau rök að alþingiskosningar
verði haldar í millitíðinni halda
ekki vatni enda eru menn þá ein-
ungis að kjósa stjórnmálaflokka
til þings og munu ekki fá að taka
beina afstöðu til fjölmiðlalaganna
sem þjóðin hefur þó skýlausan
rétt til samkvæmt 26. grein
stjórnarskrárinnar sem er skýr
og auðskiljanleg öllum þeim sem
kunna að lesa. Þar segir: „Nú
synjar forseti lagafrumvarpi stað-
festingar, og fær það þó engu að
síður lagagildi, en leggja skal það
þá svo fljótt sem kostur er undir
atkvæði allra kosningarbærra
manna í landinu til samþykktar
eða synjunar með leynilegri at-
kvæðagreiðslu“. Það þarf enga
lögspekinga til að skilja þessi ein-
földu orð. Lögin eiga einfaldlega
að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu
og forsætisráherrann, þótt vold-
ugur sé, hefur ekki heimild til að
nema þennan skýra rétt þjóðar-
innar. Geri hann það verður að
fara með málið fyrir dómstóla hér
innanlands og til alþjóðastofnana
dugi það ekki til að fá ráðherrann
til að sjá að sér. ■
13ÞRIÐJUDAGUR 13. júlí 2004
Skaða ekki Sjálfstæðisflokkinn
Þegar Styrmir Gunnarsson fór til Banda-
ríkjanna haustið 1967 komst hann að því
að sitthvað var öðruvísi í raunveruleikan-
um en stuðningsmenn [Víetnam-]-
stríðsins heima og heiman héldu fram.
Styrmir gerði ritstjórunum grein fyrir því
sem hann komst að í Ameríkuferðinni en
þeir kusu að halda sama kúrsi áfram en
feta sig afar hægt í átt að sannleikanum
til að skaða ekki hagsmuni Sjálfstæðis-
flokksins. Það var ekki fyrr en 1973 sem
opinbert endurmat Morgunblaðsins á Ví-
etnamstríðinu hófst fyrir alvöru.
Steinþór Heiðarsson á murinn.is
Skortir framsýni
Svo virðist sem R-listann skorti alla
framsýni þegar kemur að skipulagsmál-
um í Reykjavík. Nýlega var naumlega af-
stýrt skipulagsslysi, það tókst þegar
hætt var við að taka eitt besta bygging-
arland borgarinnar, Geldinganesið undir
stórskipahöfn. Þessa dagana er, hins
vegar verið að koma í framkvæmd 1240
milljóna skipulagsslysi sem er flutningur
Hringbrautarinnar.
Margrét Vilborg Bjarnadóttir á sellan.is
Kína nútímans
Að óreyndu hefði ég ekki trúað því, að
eitt land gæti verið í jafnmikilli umsköp-
un og við sáum og það land með 1.3
milljarð íbúa. Ég hef það á tilfinning-
unni, að verið sé á örskots stund að
hrifsa Kína aftur úr grárri fornöld inn í
framtíðina. Hvergi nokkurs staðar hef ég
séð jafnmikið af nýjum, auðum íbúðum
af öllum gerðum og stærðum, sem bíða
eftir nýjum íbúum. Heilu hverfin virðast
byggð og síðan fyllt af fólki. Í Qingdao
var okkur sagt, að þar byggju 7,8 millj-
ónir manna á um 10 þúsund ferkíló-
metra svæði, 780 manns á ferkílómetra
í samanburði við þrjá á hvern ferkíló-
metra hér. Hvergi nokkurs staðar hef ég
séð jafnstórbrotna vegagerð eða smíði
atvinnuhúsnæðis af öllum toga.
Björn Bjarnason á bjorn.is
Sáttaleið hafnað
Sé vilji til staðar mætti svo auðveldlega
ganga til þeirrar vinnu að leita þverpóli-
tískrar lausnar í [fjölmiðla-]málinu á
grundvelli núverandi frumvarps. Í kjölfarið
þarf svo að hefja vinnu við almenna end-
urskoðun á stjórnarskrá þar sem allir
flokkar taka þátt í vinnu við helstu þætti,
s.s. málskotsréttinum, aðferðarfræði
þjóðaratkvæðagreiðslu o.fl. [...] Á þessum
grundvelli fagnaði ég hinu nýja fjölmiðla-
frumvarpi. Ég taldi og tel enn að það feli í
sér sáttaleið fyrir alla þar sem þverpólitísk
nefnd hefði nægan tíma til að yfirfara
málin í heild og leggja fram nýjar tillögur
um alla þætti. Stjórnarandstaðan hefur
hafnað þessari sáttaleið. Hún hengir sig í
formsatriði og virðist vilja ríghalda í upp-
haflegt frumvarp. Hún vill viðhalda átök-
unum en hafnar þeim möguleika að
vinna þverpólitískt að lausn þess í fjöl-
miðlahópnum. Málið snýst greinilega um
allt annað en fjölmiðlafrumvarp
Hjálmar Árnason á althingi.is/hjalmara
AF NETINU
G Æ Ð A F R A M K Ö L L U N U M A L L T L A N D
Hafi forsetinn ekki
treyst sér til að und-
irrita fyrri lögin getur hann
ekki heldur undirritað hin
síðari sem eru nákvæmlega
þau sömu, með örlitlum
breytingum sem engu
skipta um eðli, inntak og af-
leiðingar laganna.
,,EIRÍKUR BERGMANN EINARSSON
STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR
UMRÆÐAN
ÞJÓÐARATKVÆÐA-
GREIÐSLAN