Fréttablaðið - 13.07.2004, Qupperneq 30
„Það fara að koma stórtíðindi,“ seg-
ir leikstjórinn Baltasar Kormákur
aðspurður um næsta leikstjórnar-
verkefni sitt, Little Trip to Heaven,
en Baltasar bíður nú eftir svari frá
leikkonu sem hann vonast til að
fari með aðalhlutverk í kvikmynd-
inni. „Þetta er mjög heitt mál en ég
get ekkert sagt um þetta á þessu
stigi því það væri óvirðing við
leikkonuna,“ segir Baltasar en ját-
ar þó að leikkonan sem umræðir sé
bandarísk stórstjarna, kona sem
allir þekkja.“
Tökur á Little Trip to Heaven
eru nú alveg að fara af stað en
áætlað er að hefjast handa í kring-
um 20. ágúst. Myndin verður tekin
upp hér heima á Íslandi og að öllum
líkindum einnig í Minnesota í
Bandaríkjunum. Stórleikarinn For-
est Whitaker hefur, sem kunnugt
er, samþykkt að leika í kvikmynd-
inni sem fjallar um fólk sem stund-
ar tryggingasvindl. Little Trip to
Heaven er þriller í anda Film Noir
en handritið er eftir Baltasar Kor-
mák og Edward Weinman. „Við
erum búin að ráða til okkar kvik-
myndatökumann sem heitir Óttar
Guðnason en hann er sá efnilegasti
sem við Íslendingar eigum. Óttar
hefur verið að taka upp efni út um
allan heim, hefur unnið í stórum
auglýsingum og verið aðaltöku-
maður kvikmyndaleikstjórans og
tökumannsins Jan De Bont,“ segir
Baltasar en Jan De Bont leikstýrði
meðal annars kvikmyndinni Speed
og sá um myndatöku í Let-
hal Weapon og Basic In-
stinct svo eitthvað sé
nefnt.
Það verða aug-
ljóslega engir
aukvisar á ferð í
Little Trip to
Heaven. Sá
sem sér um
á h æ t t u a t -
riðin í
k v i k -
mynd-
i n n i
kemur til dæmis einnig til með að
sjá um áhættuatriðin fyrir Spiel-
berg í næstu kvikmynd stórleik-
stjórans. Búið er að selja handritið
að Little Trip to Heaven á topp prís
til dreifingaraðila um alla Skandin-
avíu að sögn Baltasars. „Það er
kominn mikill sprettur í verk-
efnið núna og það tekur
yfir allan minn tíma,“
segir Baltasar en fyrir-
tæki hans Sögn, framleiðir
myndina ásamt Sigurjóni
Sighvatssyni. ■
Flottasta fólkið norðan Alpafjalla
Baltasar bíður bandarískrar stórstjörnu
FOREST WHITAKER
Hefur sem kunnugt er samþykkt að
leika í Little Trip to Heaven, næstu
mynd Baltasars Kormáks, en nú bíður
leikstjórinn eftir svari frá bandarískri
stórstjörnu til að fara með aðalhlut-
verkið í myndinni.
22 13. júlí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Krýning á fyrstu Face North
fyrirsætunum fór fram á Broad-
way um helgina en þar voru sam-
an komnir fulltrúar erlendra um-
boðsskrifstofa og fyrirtækja til að
virða fyrir sér þátttakendurna 37.
Útsendarar umboðsskrifstofa
meðal annars frá Asíu, Bandaríkj-
unum og Ítalíu sátu í dómnefnd og
völdu ljósmyndafyrirsætur af
báðum kynjum; Gosh andlitið,
Finnlandia andlitið og göngumód-
el auk Face North fyrirsætanna.
Föngulegi keppendahópurinn
æfði stíft undanfarna tvo mánuði
enda mikið í húfi. Á staðnum var
til að mynda Jason Moore sem
starfar fyrir Untitled Entertain-
ment en hann er umboðsmaður of-
urfyrirsætunnar Paris Hilton.
Moore er á höttunum eftir kynn-
ingarstúlku fyrir nýja galla-
buxnalínu sem markaðssetja á
vestan hafs á næstunni en sex
stúlkur úr keppninni koma til
greina og endanleg ákvörðun
verður tekin bráðlega. Umboðs-
manninum fræga líkaði svo vel
við land og þjóð að hann fram-
lengdi heimsókn sína um fáeina
daga.
Sjónvarpsstöðin Fashion Tv
fylgdist með laugardagskvöldinu
á Broadway og í stað þess að gera
7 mínútna kynningu á keppninni,
eins og til stóð, var ákveðið að
framleiða heilan þátt. Fulltrúar
stöðvarinnar fóru í Bláa lónið með
nokkra keppendur Face North og
voru himinlifandi með Íslands-
dvölina. Að sögn gestadómara úr
American Top Models, Drew Line-
han, voru keppendur allir fram-
bærilegir og taldi hann um 90%
þeirra eiga möguleika innan
tískubransans erlendis.
Skjöldur Eyfjörð, Ragnhildur
Guðmundsdóttir, Fannar Leósson
og Jónatan Einarsson eru aðstand-
endur keppninnar og stefna að því
að gera hana að árlegum viðburði.
Tinna Bergsdóttir og Elmar Örn
Guðmundsson voru valin Face
North fyrirsætur ársins. ■
FEGURÐ
FACE NORTH
■ fyrirsætukeppnin var haldin á Broad-
way um helgina. Nokkrar stúlknanna sem
kepptu gætu fengið starf við að kynna
nýja gallabuxnalínu í Bandaríkjunum.
KVIKMYNDIR
BALTASAR KORMÁKUR
■ sest aftur í leikstjórastólinn í lok ágúst
til að vinna myndina Little Trip to Heaven.
FYRIRSÆTUR Á NORÐURHJARA
Tinna Bergsdóttir og Elvar Örn Guðmunds-
son voru krýnd Face North andlit ársins á
Broadway um helgina.
í dag
Fyrrum
eiginmaður
Britney
segir
hana
góða í
öllu
Enski boltinn á
ensku á Skjá
einum
Vitni í Stórholti
sá líkamshluta
Leiðist
barninu
í bílnum?
Splunkunýjar
hljóðbækur á CD
Lína langsokkur
Hrói höttur
Grimms-ævintýri
Skemmtilegu
smábarnabækurnar
Verð frá kr. 1.790
Fást í bókabúðum og hjá Olís.
Hægt að panta í síma 820-0782
eða á hljodbok.is
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Tvíréttað í
hádeginu á aðeins
1.900 kr.
Nýr hádegismatseðill alla
þriðjudaga
Matseðlar og verð á
www.holt.is
• • •
• • •
Laugavegi 32 sími 561 0075
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Fjöldamorðanna í Srebrenica.
Á Sauðárkróki.
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson.
Lárétt:
1 spaði, 5 kveikur, 6 drykkur, 7 tímamæl-
ir, 8 laug, 9 kyrr, 10 tveir eins, 12 hljóma,
13 karlfugl, 14 til, 16 bifreið, 18 sáðland.
Lóðrétt:
1 þjarkar um verð, 2 forfeður, 3 öfug röð,
4 eftir hressilega útivist, 6 snæri, 8 átti
bú, 11 vissa, 14 maka, 17 keyr.
LAUSN:
Lárétt: 1páll,5rak,6te,7úr, 8bað,9
kjur, 10tt,12óma,13ara,15að,16
rúta,18akur.
Lóðrétt: 1prúttari,2áar, 3lk,4veðrað-
ur, 6tauma,8bjó,11trú,14ata,17ak.
1
5 6
7 8
13 14
16 17
15
18
2 3
11
9
1210
4
Kvikmyndage rða rmaður innBöðvar Bjarki Pétursson sem
fer fyrir kvikmyndafyrirtækinu 20
geitur er að leggja lokahönd á leik-
na heimildarmynd um ástandsárin
á Íslandi. Myndin ku vera býsna
djörf og þar sem 20 geitur eru ekki
síst þekktar fyrir að framleiða fun-
heitar og umdeildar heimildar-
myndir á borð við Í skóm drekans
og Mótmælandi Íslands er nýju
myndarinnar beðið með nokkurri
eftirvæntingu. Myndin er sem fyrr
segir öll leikin og Böðvar Bjarki fékk
þrjá hópa til að túlka þá sem mest
koma við sögu. Föngulegar stúlkur,
sem eru ófeimnar við að láta skína
í bert hold, bregða sér í hlutverk
ástandskvenna og fagurlimaðir og
vöðvastæltir karlmenn sjá um að
túlka hermennina sem heilluðu ísl-
enskar stúlkur og urðu þannig drif-
kraftur ástandsins svokallaða. Þriðji
lykilhópurinn í myndinni eru ráða-
menn Íslands, forsætisráðherra,
biskup og fleiri sem láta sig málið
varða en menn sem hafa ýmsa fjör-
una sopið í lífinu voru fengnir til að
túlka landsfeðurna. Einn þeirra er
Hákon Eydal og það verður varla
til að draga úr áhuga fólks á mynd-
inni að nafn hans hefur komið mik-
ið við sögu í rannsókn lögreglu á
dularfullu hvarfi 33 ára konu frá
Indónesíu. Hákon var fyrrverandi
sambýlismaður konunnar en í
ástandsmyndinni fer hann með
hlutverk forsætisráðherra Íslands.
FRÉTTIR AF FÓLKI