Fréttablaðið - 27.07.2004, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 27.07.2004, Blaðsíða 28
27. júlí 2004 ÞRIÐJUDAGUR Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ ROCKY ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Martin Kellerman Eftir Frode Överli flugfelag.is EGILSSTAÐA 6.200kr. Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og AKUREYRAR 5.400 kr. Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og flugfelag.is 28. júlí til 3. ágúst ÍSAFJARÐAR 5.300kr. Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S F LU 2 53 53 07 /2 00 4 Börn, 2ja–12 ára, í fylgd með fullorðnum, greiða 1.833 kr. aðra leiðina. Helvíti eins og það birtist í Vít- isljóðum Dantes er sniðugur stað- ur. Það gengur niður á við í spíral og á botnin- um situr Djöfull- inn sjálfur en syndugar sálirnar kveljast í vítis- hringjunum fyrir ofan hinn illa. Þetta Víti minnir helst á opinbert apparat í deildarskiptingu sinni þar sem syndararnir eru flokkað- ir eftir því hvað þeir gerðu af sér í lifanda lífi og er síðan fundinn staður í tilteknum hring þar sem þeir taka út píslir sem ríma við afbrot þeirra í jarðlífinu. Hefði Dante gert ráð fyrir sérstökum hring fyrir vinnualka héti hann eflaust „sumarfrí“. Þegar vinnualkinn fer í frí er stoðunum kippt undan tilveru hans. Hann verður eins og segir í ljóðinu, líkastur hundi sem á ekki bein eða leikara sem finnur sig ekki í rulluni. Göturnar eru mældar fram og aftur, sígarett- urnar fuðra upp og kaffið flæðir í lítratali á hverjum degi. Jörðin heldur áfram að snú- ast á fullri ferð. Lífið gengur sinn vanagang en vinnualkinn stendur í stað. Frosinn, útlægur vegna þess að hann kann ekki að slappa af. Fíklar eru býsna lunknir við að redda sér því sem þeir þarfnast og þannig er fræg sagan af hasshausnum sem átti aldrei fyrir strætó en gat alltaf skrapað saman fyrir köggli. Vinnualkanum eru hins vegar allar bjargir bannaðar og honum líður eins og kynóðum geldingi í kvennabúri soldánsins. Það þarf ekki að hafa mörg orð um það hvað læknadópari gerir ef hann fær lykla að lyfja- búri eða fyllibytta með fulla vasa fjár gerir á barnum. Það þarf svo sem heldur ekki að fjöl- yrða um hvað vinnualkinn gerir í sumarfríinu. Hann bíður, telur dagana, engist um í fullkomnu tilgangsleysi og berst við að halda sönsum. Held að það sem hann er að glíma við sé kallað fráhvörf. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON ER Í SUMARFRÍI OG LÍÐUR VÍTISKVALIR Vítishringur vinnualkans M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Kela? Adios! Hvað kom fyrir skirtuna? LJÓTA SAGAN! Er þetta ekki tvífarinn hennar Winonu Ryder! Þessi hékk alltaf á Hafnarkránni í denn... Hún heitir Elín... Hún er sautján... Afhverju eru allar stelpur allt í einu bara sautján?! Hvert hafa allar tuttugu og þriggja farið? Tuttugu og þriggja ára stelpur fara ekki á pöbbinn, þær fara út að éta með tíu öðrum vinkonum sínum og tala um kærastana sína! Það væri geðveikt að hitta jafn- öldru sína sem ekki er orðin heimakær húsmóðir ennþá! Hei! Ég neita að hlusta á þessa vitleysu! Ég er 28 og fer út að skemmta mér fimm sinnum í viku! Með fölsuðum skilríkjum gæti ég kannski logið því að henni að ég væri nítján... Solla, ef þú borðar ekki mat- inn þinn færðu engan eftirétt! Hannes. Sittu beinn í baki eða yfirgefðu borðið! Drekktu mjólkina eða það verður ekkert sjónvarp! Solla, fæturna niður af borðinu eða þið verðið bæði send inn í herbergi! Fyrirgefðu hvað ég kem seint.... Hvað er í matinn? Sérréttur minn... Kjúklingur à la úrslitakostir. Nei! Nei! EKKI FARA! EKKI...

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.