Fréttablaðið - 27.07.2004, Blaðsíða 31
„Ég fékk þá hugmynd þar sem
það eru svo margar stelpur í
götuleikhúshópnum að byggja á
frönsku bíómyndinni 8 femmes
eða 8 konur,“ segir Margrét Eir
en hún leikstýrir götuleikhús-
hópnum í Kópavogi ásamt Valdi-
mar Kristjónssyni.
Hópurinn frumsýnir verkið í
kvöld og nefnist það í upp-
setningu þeirra Bústaðar brjál-
æði og verður nokkuð breytt frá
þeirri sögu sem fólk gæti
kannast við frá átta konum.
„Við staðfærðum þetta yfir á
Ísland og breyttum aldri persón-
anna. Það gerist á Vatnsenda og
þau leika fólk sem er nokkurn
veginn á þeirra aldri. 8 femmes
er söngvamynd með nokkrum
verulega hallærislegum lögum
en við ákváðum að nota lög Stuð-
manna í uppfærslunni okkar.“
Margrét Eir segir krakkana
ótrúlega duglega en þau unnu
handritið algjörlega sjálf. „Það
má segja að þetta sé svolítið eins
og Bold and the Beautiful um
unglinga. Unglingahúmorinn
þeirra skín alveg í gegn og ég
ligg í hláturskasti í hverju
einasta rennsli.“
Aðspurð hvernig vinnan hafi
gengið við æfingar á verkinu
segir Margrét Eir krakkana
hafa tekið uppsetninguna og
vinnuna mjög alvarlega. „Ég er
mjög metnaðargjörn þegar ég
tek svona verkefni að mér og
get því verið rosalega hörð. Ég
lagði ábyrgðina að nokkru leyti
á þau og þau hafa leyst öll
verkefnin alveg ótrúlega vel.“
Götuleikhús Kópavogs er
skipað unglingum á aldrinum 14
til 16 ára og segir Margrét Eir
þau vinna að leiklistinni í stað
þess að vera í hinum hefð-
bundna vinnuskóla. Það er því
ýmislegt í boði annað en að raka
og reyta arfa fyrir unglingana í
Kópavogi.
„Þetta er partur af Vinnu-
skóla Kópavogs og þau eru búin
að vera á ferð um bæinn í allt
sumar með uppákomur. Þau eru
meðal annars búin að leika fyrir
leikskólana, koma fram á Gull-
móti Breiðabliks og leika í bíó-
mynd.“
Bústaðar brjálæði verður
frumsýnt í Hjáleigunni í Kópa-
vogi, Fannborg 2 í dag klukkan
17. Sýningar verða einnig á
morgun og fimmtudag en alla
þrjá sýningardagana verða tvær
sýningar klukkan 17 og 20. ■
Unglingahúmor á Vatnsenda
ÞRIÐJUDAGUR 27. júlí 2004
GÖTULEIKHÚS KÓPAVOGS
Hópurinn hefur verið við miklar æfingar undanfarið en hópurinn
frumsýnir Bústaðar brjálæði í kvöld
Reykjavík, Klettagör›um 12, sími 575 0000 - Akureyri · Draupnisgötu 2 , sími 462 2360 - Hafnarfir›i, Strandgötu 75, sími 565 2965
Fáanlegur í
verslunum
Sindra.
N†R DEWALT
BÆKLINGUR!
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
ti
l 1
0.
8.
2
00
4
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
·
2
6
8
2
6
GET UP AND GO
Mig vantar
ýmislegt fyrir
ferðalagið.
Taska með
vörum fylgir
ef þú kaupir
Nivea vörur.*
DUREX
NIVEA
*Nú færðu flotta tösku með
Nivea vörum í kaupbæti ef þú
kaupir Nivea vörur fyrir 2000 kr.
eða meira. Ath. fást aðeins á
eftirtöldum stöðum á meðan
birgðir endast.
Þú færð Get up & GO®
þynnkubanann aðeins
í verslunum Lyf & heilsu.
Lyf & heilsu Austurveri, Domus Medica, Glæsibæ,
Kringlunni 1. hæð, Mjódd, JL húsinu, Fjarðarkaupum,
Firði,Hamraborg, Smiðjuvegi, Salavegi, Mosfellsbæ,
Akranesi, Kjarnanum Selfossi, Hvolsvelli, Keflavík og
í Apótekaranum Nóatúni, Hraunbergi og Akureyri.
15%
Nú er 15% afsláttur
af öllum Durex smokkum.
15%
„Þetta eru ljósmyndir sem við
höfum tekið af góðu og slæmu að-
gengi fyrir hreyfihamlaða,“ segir
Leifur Leifsson sem hefur unnið
að bættri ímynd öryrkja með
Götuhernaði Hins hússins í sum-
ar. „Við fengum þessa hugmynd í
sumar og þó við séum hætt að
starfa hjá Hinu húsinu í bili
ákváðum við að láta slag standa
og setja upp sýningu. Við fórum á
stúfana og tókum ljósmyndir
fyrir utan nokkra framhalds-
skóla, utanríkisráðuneytið, Há-
skóla Íslands og kaffihús á Lauga-
veginum til að kanna aðgengið.“
Leifur segir 20 ljósmyndir
prýða sýninguna sem verður opn-
uð á Borgarbókasafninu klukkan
18 í dag. „Með þessu erum við að
sýna öðrum hvernig við sem
erum í hjólastól sjáum og upp-
lifum aðgengi að hinum ýmsu
stöðum. Þó margar myndir sýni
slæmt aðgengi erum við ekkert að
heimta breytingar en með þessu
langaði okkur að sýna fólki
hlutina eins og þeir eru frá okkar
sjónarhorni.“
Ljósmyndasýning Götuhernað-
arins stendur á Borgarbókasafn-
inu fram yfir Menningarnótt. ■
Ljósmyndasýning Götuhernaðarins
LJÓSMYNDIR
GÖTUHERNAÐURINN
■ stendur fyrir ljósmyndasýningu
í Borgarbókasafninu. AÐGENGI
Svona lítur Vörðuskóli út með augum
þeirra sem eru í hjólastól.