Fréttablaðið - 27.07.2004, Blaðsíða 1
● fylkir þrem stigum á eftir fh
Landsbankadeildin:
▲
SÍÐA 16
Grindavík sótti
stig í Árbæinn
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
ÞRIÐJUDAGUR
KNATTSPYRNA Þrír leikir verða háðir
í 1. deild karla í kvöld kl. 20. Á Kópavogs-
velli spila Breiðablik og Þróttur R. Á
Fjölnisvelli eigast heimamenn í Fjölni og
Njarðvík við og á Akureyrarvelli hittir Þór
liðið HK fyrir.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐAST NOKKUÐ BJART Skýjað
með köflum eða léttskýjað víða um land,
síst þó á Vestfjörðum. Hiti 10–17 stig,
hlýjast austanlands. Sjá síðu 6.
27. júlí 2004 – 203. tölublað – 4. árgangur
SÝKN OG SEKUR Fyrrverandi skóla-
stjóri Rafiðnaðarskólans var sýknaður af
aðalákæru máls síns í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Hann var sakfelldur fyrir skjala-
fals og fjársvik og dæmdur í þriggja mán-
aða skilorðsbundið fangelsi. Sjá síðu 7
VERSTU FLÓÐ Í ÁRATUG Nær þús-
und manns hafa látið lífið í miklum flóð-
um í Suður-Asíu síðasta mánuðinn. Um
tveir þriðju hlutar Bangladess eru undir
vatni og eru flóðin þar þau verstu í tæpan
áratug. Sjá síðu 6
EIGANDINN ÓSÁTTUR Líkur á því að
Austurbæjarbíó verði rifið hafa minnkað frá
því sem áður var segir formaður skipulags-
og byggingarnefndar. Eigandinn er ósáttur
og íhugar næstu skref sín. Sjá síðu 9
SUMARBÓKAFLÓÐIÐ Bókasala að
sumarlagi hefur aukist verulega síðustu ár.
Söluhæsta bók ársins er Da Vinci lykillinn
sem hefur selst í tíu þúsund eintökum frá
því hún kom út í vor. Sjá síðu 2
36%50%
Kvikmyndir 18
Tónlist 18
Leikhús 18
Myndlist 18
Íþróttir 16
Sjónvarp 21
Karl Ingi Karlsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Leikir eru frísk-
andi á sumrin
● heilsa
Haukur Heiðar Hauksson:
▲
SÍÐA 14
Gerir nýtt
myndband
● er 22 ára í dag
Kaldaljós:
▲
SÍÐA 22
Tvær til-
nefningar
● á evrópsku kvikmyndahátíðinni.
KJARAMÁL Boðuðu verkfalli háseta
skipa Hafrannsóknastofnunar var
afstýrt í gær þegar Sjómanna-
félag Reykjavíkur skrifaði undir
kjarasamning fyrir þeirra hönd
við samningsnefnd fjármála-
ráðuneytisins.
Jónas Garðarsson, formaður
Sjómannafélags Reykjavíkur,
segir að komið hafi verið til móts
við kröfur þeirra. „Það er opnun-
arákvæði í samningnum í mars
2006. Þá geta hvorir um sig sagt
upp samningnum,“ segir Jónas.
Hann er sáttur við niðurstöðuna.
Samningsviðræðurnar strönd-
uðu á sjómannaafslættinum og
vildu hásetarnir að yðri hann
afnuminn félli samningurinn úr
gildi eða væri uppsegjanlegur.
Gunnar Björnsson, talsmaður
samningsnefndar fjármálaráðu-
neytisins, segir báða geta verið
sátta með niðurstöðuna. Um hvort
samningurinn gefi fordæmi fyrir
komandi kjarasamningaviðræður
sjómanna og útvegsmanna sagði
Gunnar: „Þarna er um að ræða 15
einstaklinga. Það er mjög sér-
kennilegt ef þeir ættu að vera for-
dæmi, sérstaklega í ljósi þess að
samningar þessara manna hafa
alla tíð tekið mið að því sem gerist
á hinum almenna vinnumarkaði.“
Gunnar segir niðurstöðuna ekki
breyta því. ■
LANDAÐ Í GRINDAVÍK Skipverjar á Verði frá Grenivík höfðu í nógu að snúast við löndun í Grindavíkurhöfn í gær. Allur afli þeirra,
fimmtíu tonn af blönduðum afla sem veiddist í troll á Flákanum úti af Snæfellsnesi, var settur í gám fyrir flutning á markað í Englandi.
Hásetar hafrannsóknarskipa fengu sjómannaafsláttinn ekki tryggðan:
Verkfalli hásetanna var afstýrt
Tíundi hver fangi
er útlendingur
Erlendum föngum hefur fjölgað mikið í íslenskum fangelsum síðustu
ár. Sjö erlendir fangar voru í eða luku afplánun árið 2000 en voru 30 í
fyrra. Tölurnar eru sagðar í samræmi við þróun útlendingamála.
FANGELSISMÁL Útlendum föngum
hefur fjölgað mikið í íslenskum
fangelsum síðustu ár. Stórt stökk
varð árið 2001 en þá var 21
erlendur fangi í eða lauk afplán-
un, en voru aðeins sjö árið á und-
an. Í gær voru ellefu útlendingar í
afplánun eða gæsluvarðhaldi.
Mikill meirihluti útlending-
anna sitja inni vegna fíkniefna-
brota. Af 30 sem voru í eða luku
afplánun á síðasta ári voru sextán
inni vegna fíkniefnabrota sem eru
53 prósent eða meira en helming-
ur. Næst á eftir fíkniefnabrotun-
um eru auðgunarbrot.
„Árið 2001 byrjum við að taka
fjölda af erlendum burðardýrum
og fá þau dæmd. Ég myndi skjóta
á að um níu af hverjum tíu útlend-
ingum sem fara í fangelsi eru
menn sem við höfum tekið ýmist
fyrir smygl á fólki, fíkniefnainn-
flutning eða fólk með fölsuð vega-
bréf,“ segir Jóhann R. Benedikts-
son, sýslumaður á Keflavíkur-
flugvelli. Hann segir aukningu
erlendra fanga sýna tvennt, ann-
ars vegar að alþjóðleg brota-
starfsemi er farin að teygja anga
sína hingað til lands. Hins vegar
sé bætt tollgæsla og löggæsla ein-
faldlega að skila góðum árangri.
„Skýringa á þessari fjölgun er
fyrst og fremst að leita í stærra út-
lendingasamfélagi. Tölurnar eru í
nokkuð eðlilegu samræmi við þró-
un útlendingamála á Íslandi al-
mennt,“ segir Georg Lárusson, for-
stjóri Útlendingastofnunar. Hann
segir nýja kynslóð útlendinga hafa
byrjað að koma til landsins
skömmu fyrir aldamótin og um
árið 2000 og árin þar á eftir hafi
orðið sprenging. Þá segir hann
fjölgunina einnig skýrast af aukn-
ingu eftirlits á Keflavíkurflugvelli.
hrs@frettabladid.is
Nýjung í bílaiðnaði:
Hanna bíl
sem brosir
TÆKNI Uppfinningamenn hjá bíla-
framleiðandanum Toyota hafa
fengið einkaleyfi í Bandaríkjun-
um fyrir hugmynd að bíl sem sýn-
ir tilfinningar.
Hugmyndin er sú að með lita-
breytingum, ljósastillingum og
öðru verði unnt að gefa tilfinning-
ar ökumanna til kynna á ytra byrði
bíla þeirra. Þannig geti bíllinn
sýnst reiður þegar svínað er fyrir
hann, undrandi þegar gengið er í
veg fyrir hann og glaður þegar
aðrir vegfarendur sýna tillitssemi.
Í frétt New York Times í gær
kom ekki fram hvenær áætlanir
stæðu til að koma slíkum tilfinn-
ingabíl í framleiðslu en haft var
eftir uppfinningamönnunum að
hægt væri að beita svipuðum að-
ferðum til að sýna skapbrigði
skipa, mótorhjóla og flugvéla. ■
Karzai í framboð:
Stríðsherra
vikið af lista
KABÚL, AP Hamid Karzai, forseti
Afganistans, tilkynnti í gær um
framboð sitt í kosningunum sem
fram fara í Afganistan í haust.
Þá ákvað Karzai að taka öflugan
stríðsherra, Mohammad Fahim, af
framboðslista sínum eftir mikinn
þrýsting, meðal annars frá NATO.
Kom það á óvart þar sem Fahim er
einn nánasti samstarfsmaður
Karzai og núverandi varaforseti.
Karzai valdi óþekktan bróður
mestu frelsishetju landsins sem
varaforsetaefni. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Ár Fjöldi Heildarfj. Hlutfall
erl. fanga fanga erl. fanga
1996 7 417 1,68%
1997 12 311 3,86%
1998 8 268 2,99%
1999 5 234 2,14%
2000 7 219 3,20%
2001 21 254 8,27%
2002 25 251 9,96%
2003 30 325 9,23%
TÖLURNAR ERU MIÐAÐAR VIÐ FANGA SEM
VORU Í EÐA LUKU AFPLÁNUN
KARZAI KEMUR TIL FUNDAR
Karzai tilkynnti í gær um framboð sitt til
forseta Afganistans.