Fréttablaðið - 27.07.2004, Blaðsíða 8
Gleði fylgir hófsemi
- sýnum ábyrgð í meðferð áfengis um helgina.
Nánari upplýs ingar um
afgreiðs lut íma má f inna á v inbud. is
Vínbúðin í Vestmannaeyjum
Breyttur afgreiðs lut ími um vers lunarmannahelgina:
F immtudagur: 11-18
Föstudagur: 9-12
Laugardagur: Lokað
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
A
TV
2
53
95
07
/2
00
4
Gullbrá
N ó a t ú n 1 7 . S . 5 6 2 - 4 2 1 7
S U M A R Ú TS A L A
30% – 70% afsláttur!
Fangelsaður morðingi
í meðferð í
sveitasælu
– hefur þú séð DV í dag?
Banamaður móður
Gunnars í Krossinum
kominn í frí frá
Litla-Hrauni
27. júlí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Tæplega nítján þúsund hafa séð Fame og Hárið:
Mikil samkeppni um áhorfendur
SÖNGLEIKIR „Við höfum fengið
mjög góðar móttökur og í heild
hefur þetta gengið vonum fram-
ar,“ segir Bjarni Haukur Þórsson,
leikstjóri söngleiksins Fame, um
viðbrögð við sýningunni. Yfir tólf
þúsund gestir hafa séð söng-
leikinn frá því sýningar hófust
þann 24. júní. Sýningar hafa verið
tólf auk þriggja forsýninga.
„Ég hef aldrei vitað um svona
mikla samkeppni um áhorfendur
eins og hefur verið þetta sumarið.
Það er sérstaklega mikið af tón-
leikum og margar stórmyndir í
kvikmyndahúsunum,“ segir
Bjarni Haukur. Aðspurður hvort
þetta mikla framboð hafi haft
áhrif á aðsókn segir hann það
örugglega hafa einhver áhrif.
Pála Kristjánsdóttir, sýningar-
stjóri Hársins, segir að um 6.500
hafi séð Hárið, sem sýnt er í Aust-
urbæ. Sýningarnar hafa verið tíu
auk þriggja forsýninga og hafa
verið um 500 manns á hverri sýn-
ingu. Pála segir söngleikinn hafa
fengið frábærar móttökur, til að
mynda hafi tveimur sýningum
verið bætt við um síðustu helgi. ■
Þeim umfangsmiklu vega- og
gatnaframkvæmdum sem stað-
ið hafa yfir í sumar víðs vegar á
landinu miðar eftir áætlun,
samkvæmt upplýsingum frá
Rögnvaldi Gunnarssyni hjá
Vegagerðinni. Á árinu er veitt
7,2 milljörðum króna til nýrra
verkefna. Hér á eftir verða
nefndar stærstu nýfram-
kvæmdirnar sem unnið er að
nú. Tvöföldun Reykjanesbraut-
arinnar á 12 kílómetra kafla við
Kúagerði, sem nær suður fyrir
Vatnsleysustrandarveg, er
langt komin. Er gert ráð fyrir
að vegurinn verði opnaður um
næstu mánaðamót. Þá verður
Stekkjarbakki í Breiðholti opn-
aður formlega á morgun, mið-
vikudag. Verið er að vinna af
fullum krafti við færslu Hring-
brautarinnar í Reykjavík. Þá
voru opnuð tilboð um miðjan
júlí í breikkun á hringveginum
frá Víkurvegi í Grafarholti og
upp í Mosfellsbæ. Það verkefni
á að vinna á þessu ári og því
næsta.
Í Stafholtstungum í Borgar-
firði er í útboði vegarkafli á
þjóðvegi 1, sem liggur frá
Gljúfurá að Grafarkoti. Þessi
kafli, sem er rúmlega sex kíló-
metra langur og tilheyrir hring-
veginum, er mjög hlykkjóttur
með mörgum kröppum beygj-
um. Vegurinn verður endur-
byggður á næstu tveimur árum
og taka á af honum bugðurnar.
Þá er verið að vinna við að
brúa Kolgrafarfjörð á Snæfells-
nesi. Þar verður lagður nýr veg-
ur sem styttir leiðina milli
Grundarfjarðar og Stykkis-
hólms. Með tilkomu nýja vegar-
ins losna ferðalangar við að aka
fyrir Kolgrafarfjörðinn, sem er
veðrasamur kafli og erfiður.
Vestfirðir og Norðurland
Á Vestfjörðum er unnið að
tveimur stórum verkefnum á
árinu. Á Barðaströnd er verið
að leggja veg um Klettsháls
FRÁ GENERALPRUFU Á FAME
Bjarni Haukur Þórsson, leikstjóri Fame,
segir sýninguna hafa fengið góðar
móttökur en þetta sumarið sé mikil
samkeppni um áhorfendur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
FÁSKRÚÐSFJARÐARGÖNGIN
Framkvæmdir við göngin milli Reyðarfjarðar og
Fáskrúðsfjarðar hafa gengið eftir áætlun. Reiknað er með
að gat verði komið í gegnum fjallið í lok september.
Bora tvenn jarðgöng
og leggja nýja vegi
Unnið er að umfangsmiklum vega- og gatnaframkvæmdum víða um
land í sumar. Boranir og sprengingar eru í fullum gangi við tvenn göng.
Fjármagn til nýframkvæmda nemur 7,2 milljörðum á árinu.
æ
JÓHANNA S. SIGÞÓRSDÓTTIR
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
VEGAFRAMKVÆMDIR Í
SUMAR
NOKKUR VERKEFNI SUMARSINS
Í sumar eru lagðir vegir, brýr byggðar og göng boruð. Önnur tveggja ganga sem nú er
unnið að eru Fáskrúðsfjarðargöngin. Stefnt er að því að búið verði að bora göngin í haust
en þá á eftir að búa þau undir umferð. Ferðalangar sleppa við að aka Kolgrafarfjörð á leið
sinni frá Grundarfirði til Stykkishólms en hann getur reynst veðrasamur og erfiður.