Fréttablaðið - 29.07.2004, Page 4
4 29. júlí 2004 FIMMTUDAGUR
Greiningardeildir bankanna:
Ósáttar við Íbúðalánasjóð
VIÐSKIPTI Greiningardeildir bank-
anna eru ósáttar við skort á
gagnsæi við útboð á nýjum hús-
næðisskuldabréfum. Í gær til-
kynnti Íbúðalánasjóður að lokið
hefði verið við sölu á skuldabréf-
um fyrir um fimm milljarða
króna. Útboðið var lokað og
komu einungis Íslandsbanki og
Deutsche bank að því.
Greiningardeildirnar höfðu
flestar talið að engin útgáfa yrði
á nýjum bréfum um sinn þar sem
lítil sala hefur verið á húsbréfum
í þessum mánuði. Ákvörðun
Íbúðalánasjóðs kom því á óvart.
Í Vegvísi greiningardeildar
Landsbankans segir að það bitni
á verðmyndun ef útgáfa skulda-
bréfa komi markaðsaðilum í
opna skjöldu. Eins er upplýsinga-
gjöf gagnrýnd auk þess sem
spurningarmerki er sett við að
samið sé við einn af viðskipta-
vökum húsnæðisbréfanna þar
sem slíkt feli í sér að sá aðili fái
meiri upplýsingar en aðrir á
markaði.
KB banki gagnrýnir útboðið
einnig og segir að aðferðin kunni
að bitna á almenningi þar sem
verð bréfanna sé lægra og vext-
irnir hærri í útboðinu í gær -
heldur en almennt á markaði.
Morgunkorn Íslandsbanka
sagði einnig að skortur væri á
skýrari línum um það hvenær
Íbúðalánasjóður teldi nauðsyn-
legt að gefa út skuldabréf. ■
Alda og þari gerðu
leit kafaranna erfiða
Umfangsmikil leit lögreglu og björgunarsveita að Sri Rahmawati stóð
yfir langt fram á kvöld. Frekari leit ekki áætluð í dag. Um klukkan
ellefu verður sett út rekald og því fylgt eftir næstu tólf klukkutímana.
MORÐRANNSÓKN Hákon Eydal hefur
játað að hafa banað fyrrverandi
sambýliskonu sinni, Sri Ra-
hmawati, að morgni sunnudagsins
4. júlí. Leit að Sri hélt áfram í gær
á svæðinu þar sem Hákon segist
hafa komið líki hennar fyrir. Ekki
er frekari leit áætluð í dag. En um
ellefuleytið verður sett út rekald
og athugað hvert það flyst næstu
tólf klukkutímana þar á eftir.
Frekari aðgerðir verða ákveðnar í
framhald inu .
Kafarar sögðu
aðstæður til
leitar mjög erf-
iðar og báru við
mikilli öldu og
v e r u l e g u m
botngróðri sem
þeir þurftu að
ryðja sér leið
um. Þá var
skyggni mjög
lélegt, en undir
öldunni var um
tveggja til fjög-
urra metra
skyggni. Tveir kafaranna eru frá
lögreglunni í Reykjavík, tveir frá
Ríkislögreglustjóra og fimm frá
slysavarnarfélögum Landsbjarg-
ar í Hafnarfiði og Reykjavík.
Straumur er nokkur við leitar-
svæðið og liggur út eftir nesinu
auk hreyfingar sjávar við flóð og
fjöru. Við sjóleitina voru meðal
annars notaðir tveir slöngubátar
og björgunarbáturinn Einar Sig-
urjónsson. Auk kafaranna leituðu
rúmlega eitt hundrað björgunar-
sveitarmenn allt frá Hvalfirði að
Geldinganesi auk þess var leitað á
eyjum og skerjum á sundunum.
Fyrst var leitað í klettaskorinni
fjörunni um einn og hálfan kíló-
metra í hvora átt frá þeim stað
sem Hákon benti lögreglu á.
Nær fjórar vikur er frá því að
Sri týndi lífi. Aðspurður sagði
Ómar Smári Ármannsson hjá lög-
reglunni í Reykjavík það ekki
vera lengri tíma en gengur og
gerist. Mjög einstaklingsbundið
sé hversu langur tími líði frá
verknaði og þar til játning fæst.
Hann segir að auk þess sem leit að
Sri verði haldið áfram þurfi að at-
huga hvort málsatriði passi við
vitnisburð og önnur málsgögn.
hrs@frettabladid.is
sda@frettabladid.is
STÓRHOLTSMÁLIÐ
Í FJÓRAR VIKUR
Sunnudagur 4. júlí
Síðast sést til Sri Ramawhati, 33 ára og
þriggja barna móður frá Indónesíu.
Mánudagur 5. júlí
Tilkynnt er um hvarf hennar.
Þriðjudagur 6. júlí
Lögreglan rannsakar íbúð Hákonar Ey-
dal, barnsföður Sri, við Stórholt. Blóð-
sýni úr íbúð Hákonar og bíl eru send
til rannsóknar í Noregi og hann hand-
tekinn.
Miðvikudagur 7. júlí
Blóð finnst í jeppabifreið Hákonar.
Hann er dæmdur í tveggja vikna
gæsluvarðhald en neitar að vera við-
riðinn hvarf Sris. Lögreglan staðfestir
að hún hafi rökstuddan grun um að
hann tengist hvarfi hennar.
Föstudagur 8. júlí
Hákon Eydal kærir ekki tveggja vikna
gæsluvarðhaldsúrskurð en neitar að
eiga þátt í hvarfi Sri. Enn hefur ekki
verið lýst eftir henni meðal almennings.
Sunnudagur 11. júlí
Mikið blóð í íbúð Hákonar bendir til að
átök hafi orðið þar.
Mánudagur 12. júlí
Rannsókn málsins heldur áfram. Vitni
segist hafa séð Hákon burðast með
eitthvað þungt vafið í plast. Heimildir
herma að reynt hafi verið þrífa blóð úr
íbúðinni. Beðið er eftir DNA-rannsókn
frá Noregi.
Þriðjudagur 13. júlí
Rannsókn heldur áfram. Lögreglan
gefur ekki upp hvort Sri sé talin látin.
Enn er beðið eftir niðustöðu úr DNA-
prufu frá Noregi.
Miðvikudagur 14. júlí
Tilkynnt er að niðustaða úr DNA-prufu
sé ekki að vænta fyrr en eftir rúma
viku. Tæknideild rannsakar enn íbúð
Hákonar.
Föstudagurinn 16. júlí
Lögreglan stendur fyrir umfangsmikilli
leit að Sri. Hjálparsveit er þeim innan
handar og þyrlur notaðar. Lögreglan
hefur mælt út tiltekið svæði sem Há-
kon gat hafa farið á jeppabifreið sinni.
Mánudagurinn 19. júlí
Þrír kafarar leita að Sri við Geldinga-
nes. Heimildir herma að faðir Hákonar
hafi verið yfirheyrður sem vitni, en
hann bjó með Hákoni í íbúðinni við
Stórholt.
Þriðjudagurinn 20. júlí
Niðurstöður úr blóðsýnum staðfesta að
blóðið sem fannst í íbúð Hákonar við
Stórholt og í jeppa hans sé úr Sri. Lög-
regla segir grunsemdir sínar staðfestar
og ræður af aðstæðum að Sri hafi ver-
ið ráðinn bani. Kafarar leita enn að Sri
við Geldingarnes án árangurs. Hákon
neitar sök.
Miðvikudagur 21. júlí
Gæsluvarðhald yfir Hákoni Eydal fram-
lengt og honum gert að sæta geðrann-
sókn.
Fimmtudagur 22. júlí
Hákon neitar enn sök.
Mánudagur 26. júlí
Slysavarnarfélagið Landsbjörg aðstoðar
lögregluna við leit að Sri í nágrenni
Reykjavíkur.
Þriðjudagur 27. júlí
Hákon Eydal játar að hafa varpað líki
Sri í sjó við Kjalarnes en neitar að vera
valdur að dauða hennar.
Miðvikudagur 28. júlí
Hákon játar að hafa ráðið Sri bana.
Lögreglan leitar að líki hennar við Kjal-
arnes.
,,Níu kafarar
leituðu Sri í
sjónum við
Presthúsa-
tanga í Hóls-
vík á Kjalar-
nesi. En þar á
fjölskylda
Hákonar
sumarbústað.
Ætlarðu á landsleikinn við Ítali?
Spurning dagsins í dag:
Ferð þú í ferðalag um helgina?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
74%
26%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun
visir.is
Innsetning forseta:
Helmingur
ríkisstjórnar
fjarverandi
INNSETNING Að minnsta kosti helm-
ingur ríkisstjórnarinnar verður
fjarverandi við innsetningarathöfn
forseta Íslands á sunnudag er Ólaf-
ur Ragnar Grímsson sver embætt-
iseið til næstu fjögurra ára.
Forsætisráðherra, Davíð Odds-
son, verður fjarverandi vegna
veikinda en aðrir ráðherrar Sjálf-
stæðisflokksins sem verða fjar-
staddir eru Geir H. Haarde og
Árni Mathiesen. Ekki fékkst stað-
fest hvort Björn Bjarnason og
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
mæti en Sturla Böðvarsson hefur
tilkynnt þátttöku sína.
Þeir ráðherrar Framsóknar-
flokksins sem verða fjarverandi
eru Árni Magnússon, Siv Frið-
leifsdóttir og Valgerður Sverris-
dóttir. Þeir sem hins vegar mæta
eru Halldór Ásgrímsson, Guðni
Ágústsson og Jón Kristjánsson. ■
ANDAR KÖLDU
Það hefur gengið á ýmsu í samskiptum
Íbúðalánasjóðs og bankanna
á síðustu vikum.
Minni tekjur deCODE:
Tapar meiru
VIÐSKIPTI Tap Íslenskrar erfða-
greiningar hefur aukist um tvær
milljónir dollara eða tæplega 144
milljónir króna sé miðað við sama
tímabil í fyrra. Fyrirtækið kynnti
afkomuna eftir annan ársfjórðung
á erlendum mörkuðum í gær.
Tapið er aðallega rekið til
lægri tekna, hærri vaxta-
greiðslna á lánum og aukins
stjórnunarkostnaðar. Tekjur
fyrir annan ársfjórðung námu
9,6 milljónum dollurum eða
690.528 milljónir íslenskra
króna sem er tæplega 65 milljón-
um lægra en á sama tíma í fyrra.
Tekjur fyrirtækisins frá áramót-
um nema tæplega 20 milljónum
dollara sem nemur rúmlega
1.431 milljónum króna. ■
■ ASÍA
EKIÐ Á MÓTI FLÓTTAMÖNNUM
227 norðurkóreskir flóttamenn
bættust í gær í
hóp rúmlega 200
landa sinna sem
tekið hefur verið á
móti í Suður-
Kóreu síðan á
þriðjudag. Ekki
hefur fengist upp-
gefið hvaðan flóttamennirnir
koma en þetta er stærsti hópur
landflótta Norður-Kóreumanna
sem tekið er á móti í Suður-Kóreu.
SPRENGT Í MOSKU Tveir létust í
sprengingu í mosku í þorpinu
Andar í suðurhluta Afganistans
auk þess sem tveir særðust al-
varlega. Fjöldi fólks var inni í
moskunni þar sem fór fram
skráning fyrir komandi kosning-
ar í landinu.
LÖGREGLUMÁL Toshiki Toma,
prestur innflytjenda á Íslandi,
segir erfitt að meta störf
lögrelgunnar frá hvarfi Sri Ra-
hmawati þann 4. júlí. „Þegar
tvær vikur voru liðnar frá
hvarfi hennar Sri höfðu engar
fréttir borist; ekki hjá Frétta-
blaðinu eða í sjónvarpsfréttum
heldur aðeins í DV. Aðeins hafði
verið birt að kona frá Indónesíu
væri saknað. Þann 15. eða 16.
kom fyrsta fréttatilkynningin til
fjölmiðla. Síðan hefur málið ver-
ið sýnilegt okkur. Vinnubrögð
lögreglunnar breyttust og nú
getum við séð hvernig rannsókn-
inni miðar,“ segir Toshiki. ■
Prestur innflytjenda:
Takmörkuð umfjöllun
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
TOSHIKI TOMA
Segir erfitt að meta störf lögreglunnar við
lát Sri Rahmawati. Fjölmiðlaumfjöllun hafi
hugsanlega breytt þeim.
KAFARAR LEITUÐU Í HÓLSVÍK
Áframhaldandi leit að Sri Rahmawati er ekki fyrirhuguð í dag. Í gær fínkembdu kafarar
svæðið næst þeim stað sem Hákon sagðist hafa komið líkinu fyrir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA