Fréttablaðið - 29.07.2004, Síða 8
8 29. júlí 2004 FIMMTUDAGUR
KAÍRÓ, AP Stjórnvöld í Egypta-
landi ætla að beita sér gegn því
að Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna samþykki ályktun sem
Bandaríkjamenn hafa samið og
kveður á um viðskiptaþvinganir
á Súdan vegna stríðsástands og
ofsókna í Darfur-héraði.
Vaxandi þrýstings gætir á al-
þjóðasamfélagið að bregðast við
ástandinu í Darfur með beinum
hætti, jafnvel hervaldi. Utanrík-
isráðherra Egyptalands, Ahmed
Aboul Gheit, sagði í gær að veita
ætti stjórnvöldum í Súdan lengri
frest til að afvopna vígamenn í
Darfur og koma á lögum og
reglu. Colin Powell, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sem
var í opinberri heimsókn í
Egyptalandi, sagði hins vegar að
tíminn væri að renna út.
Hjálparstofnanir og Samein-
uðu þjóðirnar hafa líkt ástandinu
í Darfur við þjóðernishreinsanir,
jafnvel þjóðarmorð, og segja að
30 þúsund manns, flestir blökku-
menn, hafi fallið og að allt að
tveimur milljónum sé hætta
búin. Nokkur arabaríki hafa hins
vegar tekið upp hanskann fyrir
stjórnvöld í Súdan og sakað
Bandaríkin um að vilja gera
svæðið að áhrifasvæði sínu.
Búist er við að tillaga Banda-
ríkjamanna um viðskiptaþving-
anir verði tekin fyrir í Öryggis-
ráðinu á morgun og líklegt er
talið að ríki Evrópusambandsins
muni styðja tillöguna. ■
■ EVRÓPA
SVONA ERUM VIÐ
MEÐALALDUR BÆNDA
Hæsti meðalaldur
Sýsla Meðalaldur
Gullbringusýsla 60 ár
Kjósarsýsla 58 ár
V-Barðastrandarsýsla 56 ár
Snæfellssýsla 55 ár
S-Múlasýsla 55 ár
Lægsti meðalaldur
N-Múlasýsla 52 ár
A-Húnavatnssýsla 51 ár
Eyjafjarðarsýsla 51 ár
V-Húnavatnssýsla 51 ár
N-Þingeyjarsýsla 50 ár
Heimild: Hagtölur landbúnaðarins 2004
LEIÐANDI Í LÆGRA DEKKJAVERÐI
GÆÐAVARA – BETRA VERÐ!
Með Avis kemst þú lengra
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú
leggur af stað – Það borgar sig
Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Innifalið í verði er ótakmarkaður akstur, trygging, vsk. og
flugvallargjald. (Verð miðast við lágmarksleigu 7 daga).
Ekkert bókunargjald - Gildir til 31. mars 2005.
Verð háð breytingu á gengi.
Kaupmannahöfn kr. 3.600,- á dag m.v. A flokk
Billund kr. 3.500,- á dag m.v. A flokk
Árósar kr. 3.500,- á dag m.v. A flokk
www.avis.is
Við
gerum
betur
Danmörk
AVIS Knarrarvogi 2 - 104 Reykjavík - Sími 591 4000 Fax 591 4040 - Netfang avis@avis.is
Munið Visa
afsláttinn
Keypti sjö
milljón
króna
húsbíl
handa lævísu
kattakonunni
– hefur þú séð DV í dag?
„Hún virðist vera
klár í kollinum,“
segir Einar
Thoroddsen
MENNTAMÁL Hreyfing virðist vera
komin á menntamál geðsjúkra,
að sögn Helga Jósefssonar for-
stöðumanns samstarfsverkefnis
Fjölmenntar og Geðhjálpar.
Hann hefur verið boðaður á fund
í menntamálaráðuneytinu í dag.
Er þess vænst að eftir þann fund
verði hægt að tilkynna þeim 115
einstaklingum sem sótt hafa um,
að þeir geti haldið áfram námi
sínu á næstu önn. Helgi á von á
30 - 40 umsóknum til viðbótar ef
skólanum verður gert kleift að
starfa áfram í haust.
Skólinn hefur verið í lausu
lofti síðan í maí, þegar segja
varð upp öllum kennurum og
starfsfólki, þar sem fjárveiting-
ar fyrir næsta skólaár lágu ekki
fyrir að hálfu stjórnvalda. Á ann-
að hundrað manns hafa því beðið
í óvissu í þrjá mánuði.
Þóra Kristín Vilhjálmsdóttir,
sem stundað hefur nám í skólan-
um sagði í blaðinu í gær, að skól-
inn hefði gjörbreytt lífi sínu.
Þóra Kristín er með geðhvarfa-
sýki sem veldur þunglyndi. Hún
kvaðst að mestu laus við ein-
kennin eftir að hún hóf skóla-
nám.
Að sögn Helga hefur skólinn
verið starfræktur í þrjár annir.
Námið er byggt upp þannig, að
það sé hagnýtt. Til dæmis getur
fólk lagt stund á ensku, dönsku,
stærðfræði, bókfærslu og tölvu-
notkun. Fjölmennt er í samstarfi
við Fjölbrautaskólann í Ármúla,
sem býður fólkinu upp á fjarnám.
„Margir hafa náð tökum á sínu
lífi í náminu,“ sagði Helgi. „Ég
hef dæmi af einstaklingi sem sótti
fyrstu tvær annirnar, fór síðan í
framhaldsskóla og lauk þar próf-
um í vor með miklum glæsibrag.
Þessi einstaklingur var búinn að
vera veikur í 15 ár. Ég hef fleiri
ámóta dæmi á takteinum.“
Þegar farið var af stað með
námsverkefnið, var ákveðið að
það yrði einingabært ef fólk
hefði heilsu og löngun til. Þá
hefði verið gerður samningur
við Fjölbrautaskólann í Ármúla.
Ólafur Sigurbjörnsson aðstoðar-
skólameistari vildi síðan stíga
skrefið til fulls með því að bjóða
þessu fólki upp á fjarnám. All-
nokkrir hafa tekið áfanga í Ár-
múla í tungumálum, stærðfræði
og sálfræði, svo dæmi séu nefnd.
Helgi sagði, að námsverkefn-
ið væri með faglegan bakhóp,
sem skipaður væri yfirlækni
geðsviðs Landspítala, félagsráð-
gjafa frá Kleppi, sálfræðingi frá
Grensásdeild og geðhjúkrunar-
fræðingi frá Rauða krossinum.
Til þessa hóps væri hægt að leita
ef upp kæmu spurningar.
jss@frettabladid.is
SKÝRIST Í DAG
Þóra Kristín Vilhjálmsdóttir er einn 115 einstaklinga sem bíða nú í óvissu hvort þeim verði
gefinn kostur á áframhaldandi námi í haust. Horfur eru betri í dag en í gær því mennta-
málaráðuneytið hefur blásið til fundar um málið í dag.
Hreyfing á mennta-
málum geðsjúkra
Eftir óvissutíma er komin hreyfing á menntamál geðsjúkra. Á annað
hundrað manns hafa sótt um nám en fjárveitingu hefur skort. Öllum
kennurum var því sagt upp en nemendur lifa í voninni.
Bandaríkjamenn vilja aðgerðir gegn Súdönum:
Egyptar andsnúnir
aðgerðum í Darfur
ÓSAMMÁLA
Egyptaland og önnur ríki snúast gegn tillögu Bandaríkjamanna um aðgerðir í Súdan.
M
YN
D
/A
P
ÓÁNÆGÐIR MEÐ STJÓRNMÁLA-
MENN Ástæða áhugaleysis
Evrópubúa fyrir kosningum til
Evrópuþingsins í lok síðasta
mánaðar var mun fremur óá-
nægja með stjórnmálamenn en
vantrú á Evrópusambandið
sjálft að því er nýleg skoðana-
könnun hefur leitt í ljós. Ein-
ungis þrjú prósent þeirra sem
spurðir voru sögðust á móti
sambandinu.
FUNDU MIKIÐ MAGN FÍKNIEFNA
Skoska leyniþjónustan fann nærri
170 kíló af kókaíni í stærsta fundi
á fíkniefninu í landinu í áratug.
Götuverðmæti efnisins er áætlað
um tíu milljónir punda, rúmur
einn milljarður íslenskra króna.
LÍKAMSLEIFUM SKILAÐ
Serbnesk stjórnvöld afhentu
í gær líkamsleifar 22 Albana
sem voru drepnir meðan á
Kosovo-stríðinu stóð í fyrr-
verandi Júgóslavíu árin
1998-1999. Líkin voru grafin
í fjöldagröfum í Serbíu þaðan
sem þau voru grafin upp og
flutt í líkhús.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI