Fréttablaðið - 29.07.2004, Side 12
12 29. júlí 2004 FIMMTUDAGUR
Fjölskylduhátíðin Ein með öllu á Akureyri:
Fólk farið að streyma að
ÚTIHÁTÍÐIR Fólk er þegar farið að
streyma á fjölskylduhátíðina Ein
með öllu, sem haldin verður á Ak-
ureyri um verslunarmanna-
helgina. Tjaldstæði bæjarins eru
þegar orðin þétt setin af fólki sem
ætlar að njóta góða veðursins, að
sögn Braga Bergmann, fram-
kvæmdastjóra hátíðarinnar, enda
„eru veðurguðirnir norðlenskrar
ættar“ eins og hann orðaði það.
„Þetta er fjölskylduhátíð og við
viljum fá alla aldurshópa fjöl-
skyldunnar,“ sagði hann. „Við mið-
um dagskrána við börn, unglinga
og fullorðna. Ég vil taka það skýrt
fram, að það er 18 ára aldurstak-
mark á tjaldstæðunum á Akureyri.
Yngra fólki er ekki undir neinum
kringumstæðum hleypt inn á þau,
nema í fylgd forráðamanna. Ella
verður að vísa því frá.“
Bragi sagði að skemmtunin
myndi að mestu leyti fara fram á
Ráðhústorgi og Akureyrarvelli,
þar sem yrði frítt inn. Á tjald-
svæðunum yrði hins vegar ekki
gæsla umfram það sem væri á
venjulegum helgum. Því væri
lögð mikil áhersla á 18 ára aldurs-
takmarkið. ■
VIÐSKIPTI Bæði tónlist og bækur
hafa selst vel í sumar þrátt fyrir
að báðar vörur hafi um áratuga-
skeið verið háðar miklum árstíð-
arsveiflum þar sem nær öll sal-
an hefur farið fram í kringum
jólin. Nú í sumar hefur þó nokk-
ur fjöldi nýrra tónlistardiska
komið út og bera útgefendur sig
vel.
„Það er búin að vera óvenju-
lega mikil útgáfa. Ég held að
Skífan hafi aldrei gefið út jafn-
marga titla á fyrri hluta árs eins
og þetta ár. Þetta hefur verið
október og nóvember bransi en
við erum kerfisbundið að reyna
að breyta því. Þannig að þessi
útgáfa byrjaði í mars og ég held
við séu komin í tólf plötur á
þessu ári,“ segir Eiður Arnars-
son hjá Skífunni.
Meðal nýrra titla hjá Skífunni
er plata Todmobil og Sinfóníu-
hljómsveitarinnar sem Eiður
segir hafa selst vel. Þá var gef-
inn út dvd-mynddiskur með efni
frá tónleikum Todmobil og Sin-
fóníunnar og segir Eiður það
vera söluhæsta íslenska dvd-
tónlistardiskinn frá upphafi.
Þá hafi afmælisplata Geir-
munds Valtýssonar selst vel og
eins nokkrir safndiskar sem
gjarnan eru algengari en nýtt
efni á sumrin. Einnig eru bundn-
ar vonir við sölu á tónlistinni úr
söngleikjunum Fame og Hárinu.
Óttar Felix Hauksson hjá
Sonet-útgáfunni segir að þar á
bæ hafi útgáfan einnig verið
aukin í sumar meðal annars með
nýrri plötu frá Mannakorni.
Sonet hefur einnig meðal annars
gefið út tónlist Hauks Heiðars
og Guitar Islancio í sumar.
Hann segir að sumarsöluna á
tónlist megi að einhverju leyti
rekja til þess að fólk vilji kaupa
tónlist til að spila í sumarfríinu
enda séu flestir bílar með
geislaspilara auk þess sem
margir eigi ferðageislaspilara
og séu með hljómflutningstæki í
sumarbústöðum.
„Fólk vill hafa þetta með sér í
fríið, rétt eins og fólk kaupir sér
grillmat og eitthvað sem það er
ekki að kaupa á öðrum tímum,“
segir Óskar Felix.
Meðal annarra útgefenda í
sumar er Smekkleysa. Þar að
auki hefur hljómsveitin Papar
gefið út nýja plötu en þeir stan-
da sjálfir að útgáfunni. Barna-
plata með helstu söguhetjum
Stundarinnar okkar í ríkissjón-
varpinu, Bárði og Birtu, hefur
einnig selst vel í sumar.
thkjart@frettabladid.is
Póstkort:
37 ár á
leiðinni
SEELYVILLE, AP Póstkort sem banda-
rískur ferðalangur sendi móður
sinni frá New Jersey fyrir 37
árum komst loks til skila um
helgina.
Ferðalangurinn hváði þegar
móðir hennar hringdi í hana til
þess að þakka henni fyrir kortið.
Þegar móðir hennar benti henni á
að það væri frá Asbury Park í
New Jersey mundi hún hins vegar
eftir að hafa sent kort þaðan þeg-
ar hún var á ferðalagi árið 1967.
Póstkortið hafði hafnað bak við
vél á pósthúsi í New York sem ný-
lega var færð úr stað og fannst
póstkortið þá. ■
Nýjung í fataframleiðslu:
Jakki með
mp3 spilara
FRANKFURT, AP Þýskur fatafram-
leiðandi býður nú upp á jakka sem
hefur innbyggðan tónlistarspilara
sem stjórnað er með tökkum á
vinstri erminni. Hægt er að
geyma 128 megabæt af gögnum í
jakkanum en það samsvarar um
tveimur geisladiskum.
Jakkinn er einnig búinn út-
búnaði til að tengja við farsíma.
Sala á jökkunum hefst innan
skamms og er gert ráð fyrir að
þeir kosti í kringum 55 þúsund
krónur og segja framleiðendur
að fleiri áþekkar vörur séu í
farvatninu, meðal annars skíða-
gallar. ■
172 Danir sviknir:
Töpuðu
peningum
KAUPMANNAHÖFN Fjölmargir Danir
töpuðu 12 milljónum samtals þegar
landar þeirra í Marbella á Spáni
hringdu og buðu þeim hlutabréf í
fyrirtæki sem er ekki til. 172 Dan-
ir lögðu frá 24.000 krónum dönsk-
um upp í 440 þúsundir í fyrirtækið
og fengu verðlausa pappíra til
baka. Þeir sem hringdu eru horfnir
sporlaust með peningana, en lög-
reglan í Bandaríkjunum rannsakar
málið þar sem talið er að 800
manns víða í heiminum hafi orðið
fyrir barðinu á svikurunum. ■
GÆÐAVARA – BETRA VERÐ!
JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK
LEIÐANDI Í LÆGRA DEKKJAVERÐI
GEISLADISKAR TEKNIR MEÐ Í FRÍIÐ
Óttar Felix Hauksson hjá Sonet segir að Íslendingar kaupi núorðið töluvert af tónlist til að
taka með sér í fríið. Skífan hefur aldrei gefið jafnmikið út að sumri til og nú í ár.
Öflug tónlistar-
útgáfa í sumar
Sumarið er tíminn til að gefa út tónlist, ef marka má þróun í tónlistar-
bransanum á síðustu árum. Stærstur hluti innlendrar tónlistar kemur enn
út um jólaleytið en útgefendur segja stöðugt meira um útgáfu á sumrin.
Þung umferð vörubíla:
Slysahætta í
Hallorms-
staðarskógi
SLYSAFORVARNIR Það er tíma-
spursmál þangað til alvarlegt
slys verður á veginum í gegnum
Hallormsstaðarskóg, en hrað-
akstur er viðvarandi vandamál
þar. Samkvæmt þremur hraða-
könnunum sem gerðar voru í
júlí, aka aðeins 45 prósent öku-
manna á löglegum hámarks-
hraða.
Reynir Arnórssonar, umferð-
arfulltrúi á Austurlandi, segir
umferð hafa þyngst mikið á
þessum slóðum eftir að virkjun-
arframkvæmdir við Kárahnjúka
hófust. Umferð vörubíla er tals-
verð í gegnum skóginn sem
Reynir telur slæmt, því mikið
gangandi vegfarendur séu
margir. Hann mælist til þess að
hraðahindranir verði settar upp
til að sporna við alvarlegum
slysum. ■
FLÓÐ
Fórnarlamb mikilla flóða í Suður-Asíu sefur
uppi á borði á heimili sínu í úthverfi höfuð-
borgar Bangladess, Dakka. Meira en þús-
und manns hafa látist af völdum flóðanna í
Bangladess, Indlandi, Pakistan og Nepal
síðan þau hófust fyrir um mánuði síðan.
M
YN
D
A
P
ALDURSTAKMARK
Strangt 18 ára aldurstakmark er inn
á tjaldstæðin á Akureyri um verslunar-
mannahelgina, nema forráðamenn
séu með í för.
■ ASÍA
VONIR UM FRIÐ MINNKA Vonir um
að stjórnvöld á Sri Lanka og upp-
reisnarhópurinn Tamil tígrísdýrin
hæfu friðarviðræður á ný minnk-
uðu talsvert í gær. Norðmaður sem
ætlaði að halda utan um viðræð-
urnar lýsti því yfir að enn væri of
langt á milli til þess að raunhæft
teldist að hefja viðræður.
BARIST VEGNA
TRÚARSKOÐANA
Tveir hafa látist
og að minnsta
kosti þrettán
særst í óeirðum
milli múslima og hindúa í vestur-
hluta Indlands síðustu daga.
Byggingar hafa verið brenndar
til grunna og sýru kastað í lög-
reglu sem brást við með því að
skjóta á mótmælendurna. Út-
göngubann var sett á á svæðinu í
gær en um leið og því var aflétt
brutust átökin út á ný.
■ ÁSTRALÍA
SNERU VIÐ Handskrifuð sprengju-
hótun neyddi flugvél Unitited Air-
lines til að snúa til baka til Sidney
eftir flugtak til Los Angeles. Eftir
að hafa yfirheyrt alla 246 far-
þegana lýsti lögregla því yfir að
hótunin hefði verið gabb.