Fréttablaðið - 29.07.2004, Qupperneq 20
Þegar ferðast er til útlanda er best að hafa alltaf kort við hend-
ina ásamt nafnspjaldi eða bæklingi frá hótelinu. Ef þú getur ekki
borið fram nafnið á hótelinu þá er auðveldast að sýna leigubíl-
stjóranum bæklinginn. Það sparar þér tíma, pening og vesen.
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000
www.terranova.is
Akureyri, sími 461 1099
Súpersól til Salou
Salou er einn fallegasti strandbærinn í Suður-Katalóníu héraði á Spáni,
einungis um 100 km frá Barcelona. Frábær dvalarstaður fyrir fjölskyldur og
fólk á öllum aldri. Í Salou er Port Aventura, glæsilegasti skemmtigarður
Spánar, gott úrval veitingastaða, fjölbreytt næturlíf og rúmlega
kílómeterslöng aðgrunn, gullin strönd. Bókaðu núna og festu þér
Súpersólartilboð. Þremur dögum fyrir brottför færðu svo að vita hvar þú
gistir í fríinu þínu í Salou. Val um viku eða tveggja vikna dvöl.
Verð kr. á mann
M.v. 2 fullorðna og 2 börn í vikuferð. Innifalið
flug, gisting og flugvallarskattar. Ferðir til og frá
flugvelli kr. 2.000 á mann.
Verð kr. á mann
M.v. 2 fullorðna í vikuferð. Innifalið flug,
gisting og flugvallarskattar. Ferðir til og frá
flugvelli kr. 2.000 á mann.
12. og 19. ágúst
Verð frá 39.995.-
39.995.-
49.890.-
Sími: 555 3565 • www.elding.is
M
IX
A
•
f
ít
•
0
2
1
2
4
á sjó
Ævintýri
Reykjavík v/ Ægisgarð
Hvalaskoðun
Þrjár ferðir daglega – fróðleg skemmtun fyrir fjölskylduna!
Ferðir alla þriðjudaga kl. 18:00 og laugardaga kl. 13:30.
Einnig sérferðir fyrir hópa, tímar eftir samkomulagi.
Sjóstangaveiði
Opið:
mán.–fim. 9–23.30
fös. 9–00.30
lau.–sun. 10–00.30
Sunnumörk 2
(nýja verslunarmiðstöðin í Hveragerði)
Öræfin við Snæfell – Landið sem hverfur ef... er nafn-
ið á nýju gönguleiðakorti sem leiðsögumennirnir Ásta
Arnardóttir og Ósk Vilhjálmsdóttir hafa látið gera í
góðri samvinnu við fróðleiksmenn fyrir austan. Það
auðveldar fólki m.a. að skoða undraveröld Jöklu og 15
fossaröð í Jökulsá í Fljótsdal en hvor tveggja mun
hverfa þegar Kárahnjúkavirkjun kemst í gagnið. Ásta
heldur samt enn í vonina. „Þetta svæði er ekki tapað
fyrr en Hálslón fyllist. Það er enn hægt að leiðrétta
kúrsinn og hætta við,“ segir hún einörð.
Þær Ásta og Ósk byrjuðu í fyrrasumar að fara með
hópa um svæðið. „Við ætluðum upphaflega bara eina
ferð en erum búnar að fara fjórar og sú fimmta verður
farin 13. ágúst. Nú hafa um 100 manns komið í Kring-
ilsárrana fyrir okkar tilstuðlan en áður höfðu aðeins ör-
fáir stigið þar fæti sínum,“ segir Ásta og lýsir Kringils-
árrana nánar. „Þar er griðland hreindýra og gæsa og
við hvert fótmál er fjöður, gæsaskítur eða hreindýra-
slóð. Svo er þar náttúrufyrirbærið hraukar sem ein-
ungis hefur fundist á tveimur öðrum stöðum í heimin-
um, á Eyjabökkum og Svalbarða.“
Fleira nefnir Ásta sem hún telur til náttúruminja á
því svæði sem nýja kortið
nær yfir. En hefði hún far-
ið að skoða þetta land ef
það væri ekki á leiðinni í
kaf? Því svarar hún svo:
„Ég furðaði mig mjög á
því þegar ég fór þarna um
í fyrsta skipti árið 2001 að
ég hefði ekki vitað af
þessum gersemum fyrr
og enginn sagt mér frá
þeim. En eftir fyrstu
kynni heillast maður al-
gerlega. Tengslin við
náttúruna verða svo
sterk.“ Nánari upplýsingar um ferðirnar og búnað er
að finna á islandia.is/nature/augnablik.htm
gun@frettabladid.is
Gönguleiðakort af landinu sem hverfur ef...:
Auðveldar fólki að
skoða undraveröld Jöklu
Grágæsahópur í Kringilsárrana.
Ásta hvetur alla til að fara og skoða náttúruperlur á heimsmælikvarða áður en það er um seinan.
Sethjallarnir sem Guðmundur Páll Ólafsson náttúrufræðingur
nefnir handritin og eru órannsökuð enn. Kárahnjúkar í baksýn.
Kortið er gefið út af Eddu og
myndir eru eftir Jóhann
Ísberg, Friðþjóf Helgason og
Ragnar Axelsson.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir, söng-
kona, stundaði nám í Hollandi og
á sér þar heimaborg að heiman.
„Ég var í námi í Haag í sjö ár svo
hún er nánast mitt annað heimili.
Haag er með stærstu borgunum í
Hollandi en miklu minna þekkt
en Amsterdam og þar af leiðandi
rólegri og hálfgerð svefnborg.
Það sem mér líkaði best var
mannlífið og hvað fólk er nota-
legt og opið. Þarna eru frábær
kaffi- og veitingahús og þó þjón-
ustulund Hollendinga sé kannski
ekkert sérstök er maturinn svo
góður að þeim fyrirgefst ýmis-
legt.
Haag liggur að baðströnd og
þar er voða gaman á sumrin þeg-
ar veðrið er gott. Sjórinn er
reyndar norðursjórinn svo hann
er kaldur en ef maður er hug-
rakkur þá er vel hægt að synda.
Ég fór og synti enda er ég hug-
rökk,“ segir Guðlaug og hlær
við.
„Það er ákveðin reisn yfir
Haag því drottningin býr þar og
þar er drottningarhöllin. Ég sá
drottninguna einu sinni þegar ég
var úti að skokka með vinkonu
minni í garðinum við höllina.
Drottningin var að fara í ferða-
lag og kom út í þann mund sem
við skokkuðum framhjá og veif-
aði okkur.“ Guðlaug lærði djass-
söng og var mjög ánægð með
skólann og menntakerfið í
Hollandi. „Allt menntakerfi í
Hollandi er mjög fínt og því var
skólinn sem ég var í mjög góður
og kennarar og nemendur koma
allsstaðar að úr heiminum, „ seg-
ir Guðlaug og á sjálfsagt alltaf
eftir að halda tengslunum við
Haag, bæði með því að fara
þangað og líka með því að nýta
það sem hún lærði þar. ■
Guðlaug ásamt Stúlku með perlu-
eyrnalokk eftir Hollenska málarann
Vermeer sem málaði myndina skammt
frá Haag.
Skokkaði fram á drottninguna í Haag