Fréttablaðið - 29.07.2004, Side 24

Fréttablaðið - 29.07.2004, Side 24
Silkiblóm og silkitré er eitthvað sem getur sannarlega lífgað uppá heimili og gert það fallegt í leið- inni. Verslunin Soldis við Lauga- veg 63 hefur nú boðið upp á silki- blóm og silkitré í hæsta gæða- flokki í tæplega sex ár. Að sögn annars eiganda Soldis, Bryndísar Tómasdóttur, hefur sala á silkiblómum aukist gríðar- lega undanfarin ár. Það má ef til vill rekja til þess að gæði hafa aukist og eru silkiblóm nú orðin mun raunverulegri en þau voru hér áður fyrr. Nú er varla hægt að greina á milli alvörublóma og silkiblóma nema með snertingu. Hópurinn sem hefur dálæti á silkiblómum hefur aukist jafnt og þétt með betri blómum og fjöl- breytnin er gífurleg í þessum iðn- aði. „Fólk er bæði með silkiblóm inni og úti. Margir hafa silkiblóm útí garði og hafa jafnvel blómstrandi blóm með,“ segir Bryndís. Nú þarf ekki að hafa áhyggjur af því að vökva og engin hætta er á að blómin deyi. „Trén sem við bjóðum uppá eru með náttúrulegan stofn og úr þurrkuðum, náttúrulegum við sem gerir allt yfirbragð miklu náttúrulegra. Ekki þarf þó að vökva tréð og stofninn helst óbreyttur,“ segir Bryndís. Margar konur vilja eiga brúð- arvendi sína nú til dags og því gera þau hjá Soldis mikið af fal- legum brúðarvöndum auk ann- arra fallegra vanda. Afskorin silkiblóm hafa verið að sækja í sig veðrið uppá síðkast- ið og margir velja þau í fallegar skreytingar. Soldis fylgist vel með stefnum og straumum í silki- blómabransanum og er alltaf með það nýjasta á boðstólnum. „Vin- sælt er meðal unga fólksins nú til dags að hafa minimalískar og ein- faldar skreytingar á borðum. Strá eða fallegar greinar er mikið notað og allt sem ólíkt er blóm- um,“ segir Bryndís en þær hjá Soldis geta glaðar frætt áhugasama um hvað sé í tísku hverju sinni. Vinsælust eru þó trén af öllum stærðum og gerðum; Fíkustré, Drekatré, Bonzai tré, Aloe Vera tré og hinir klassísku pálmar. Einnig eru fallegar rósir alltaf í tísku sem og burknar og hengi- plöntur. Orkídeur virðast vera að færa sig upp á skaftið enda henta þær öllum. Þar gætir austur- lenskra áhrifa og einfaldleika og margir velja sætan orkídeuvönd inná baðherbergið. Í mörgum fyrirtækjum eru nær eingöngu silkiblóm. Nú þarf enginn að hugsa um að vökva blómin og njóta þau sín vel í hvaða rými sem er. Mörg fyrir- tæki hafa nýtt sér silkiblómaþjón- ustu Soldis og má þar nefna Smáralind, Kringluna og Toyota- umboðið. Minnsta málið er að panta hjá Soldis en verslunin býður uppá mjög alhliða þjónustu. „Við mætum á staðinn og skoðum aðstæður. Síðan setjum við fram tillögu að skreytingu og göngum frá öllu saman ef viðskiptavini líkar við skreytinguna, sem oftast er raunin,“ segir Bryndís en Soldis býður jafnvel uppá ker og potta og því þarf viðskiptavinur- inn ekki að leita neitt annað. Sold- is er alltaf með sömu gerðir og liti af kerum og pottum ár eftir ár og því er alltaf hægt að bæta við pottasafnið. Silkiblóm eru alls ekki dýr í rekstri og þarf lítið sem ekkert að hugsa um þau. Þegar þau eru farin að rykfalla er hægt að taka upp rykkústinn eða einfaldlega setja þau út í rigninguna og leyfa henni að sjá um þrifnaðinn. Flókn- ara er það ekki og lítið gjald að greiða fyrir fallega og líflega upp- setningu allt árið um kring. lilja@frettabladid.is Svo að tómatvörur smiti ekki út frá sér í plastílát er gott að smyrja ílátið að innan með grænmetis- olíu áður en maturinn er settur í ílátið. Mán. - fös. 10.00 - 18.00 • Laugard. 11.00 - 16.00 t m h u s g o g n . i s allt að afsl.70% T il b o ð sd a g a r Allar vörur sem ekki eru á tilboði fást me› 10% afslætti af sta›grei›sluver›i N O N N I O G M A N N I I Y D D A • N M 1 1 0 5 4 • s ia .i s Op i› TILBOÐS DAGAR Skólavörðustíg 21,Reykjavík, Sími 551 4050 ÚTIMÁLNING OG VIÐARVÖRN - mest lesna blað landsins Á MÁNUDÖGUM Auglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is Silkiblóm taka klakann með trompi: Falleg allt árið um kring Gæði silkiblóma hafa aukist mikið síðustu ár og er nú varla hægt að sjá muninn á raunverulegum blómum og silkiblómum. Hjá Soldis er mikið úrval af alls kyns silki- trjám í ýmsum stærðum og gerðum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.