Fréttablaðið - 29.07.2004, Blaðsíða 24
Silkiblóm og silkitré er eitthvað
sem getur sannarlega lífgað uppá
heimili og gert það fallegt í leið-
inni. Verslunin Soldis við Lauga-
veg 63 hefur nú boðið upp á silki-
blóm og silkitré í hæsta gæða-
flokki í tæplega sex ár.
Að sögn annars eiganda Soldis,
Bryndísar Tómasdóttur, hefur
sala á silkiblómum aukist gríðar-
lega undanfarin ár. Það má ef til
vill rekja til þess að gæði hafa
aukist og eru silkiblóm nú orðin
mun raunverulegri en þau voru
hér áður fyrr. Nú er varla hægt að
greina á milli alvörublóma og
silkiblóma nema með snertingu.
Hópurinn sem hefur dálæti á
silkiblómum hefur aukist jafnt og
þétt með betri blómum og fjöl-
breytnin er gífurleg í þessum iðn-
aði. „Fólk er bæði með silkiblóm
inni og úti. Margir hafa silkiblóm
útí garði og hafa jafnvel
blómstrandi blóm með,“ segir
Bryndís. Nú þarf ekki að hafa
áhyggjur af því að vökva og engin
hætta er á að blómin deyi.
„Trén sem við bjóðum uppá eru
með náttúrulegan stofn og úr
þurrkuðum, náttúrulegum við
sem gerir allt yfirbragð miklu
náttúrulegra. Ekki þarf þó að
vökva tréð og stofninn helst
óbreyttur,“ segir Bryndís.
Margar konur vilja eiga brúð-
arvendi sína nú til dags og því
gera þau hjá Soldis mikið af fal-
legum brúðarvöndum auk ann-
arra fallegra vanda.
Afskorin silkiblóm hafa verið
að sækja í sig veðrið uppá síðkast-
ið og margir velja þau í fallegar
skreytingar. Soldis fylgist vel með
stefnum og straumum í silki-
blómabransanum og er alltaf með
það nýjasta á boðstólnum. „Vin-
sælt er meðal unga fólksins nú til
dags að hafa minimalískar og ein-
faldar skreytingar á borðum. Strá
eða fallegar greinar er mikið
notað og allt sem ólíkt er blóm-
um,“ segir Bryndís en þær hjá
Soldis geta glaðar frætt áhugasama
um hvað sé í tísku hverju sinni.
Vinsælust eru þó trén af öllum
stærðum og gerðum; Fíkustré,
Drekatré, Bonzai tré, Aloe Vera
tré og hinir klassísku pálmar.
Einnig eru fallegar rósir alltaf í
tísku sem og burknar og hengi-
plöntur. Orkídeur virðast vera að
færa sig upp á skaftið enda henta
þær öllum. Þar gætir austur-
lenskra áhrifa og einfaldleika og
margir velja sætan orkídeuvönd
inná baðherbergið.
Í mörgum fyrirtækjum eru
nær eingöngu silkiblóm. Nú þarf
enginn að hugsa um að vökva
blómin og njóta þau sín vel í
hvaða rými sem er. Mörg fyrir-
tæki hafa nýtt sér silkiblómaþjón-
ustu Soldis og má þar nefna
Smáralind, Kringluna og Toyota-
umboðið. Minnsta málið er að
panta hjá Soldis en verslunin
býður uppá mjög alhliða þjónustu.
„Við mætum á staðinn og skoðum
aðstæður. Síðan setjum við fram
tillögu að skreytingu og göngum
frá öllu saman ef viðskiptavini
líkar við skreytinguna, sem oftast
er raunin,“ segir Bryndís en
Soldis býður jafnvel uppá ker og
potta og því þarf viðskiptavinur-
inn ekki að leita neitt annað. Sold-
is er alltaf með sömu gerðir og liti
af kerum og pottum ár eftir ár og
því er alltaf hægt að bæta við
pottasafnið.
Silkiblóm eru alls ekki dýr í
rekstri og þarf lítið sem ekkert að
hugsa um þau. Þegar þau eru
farin að rykfalla er hægt að taka
upp rykkústinn eða einfaldlega
setja þau út í rigninguna og leyfa
henni að sjá um þrifnaðinn. Flókn-
ara er það ekki og lítið gjald að
greiða fyrir fallega og líflega upp-
setningu allt árið um kring.
lilja@frettabladid.is
Svo að tómatvörur smiti ekki út frá sér í plastílát
er gott að smyrja ílátið að innan með grænmetis-
olíu áður en maturinn er settur í ílátið.
Mán. - fös. 10.00 - 18.00 • Laugard. 11.00 - 16.00
t m h u s g o g n . i s
allt að afsl.70%
T
il
b
o
ð
sd
a
g
a
r
Allar vörur sem ekki eru á tilboði fást me›
10% afslætti af sta›grei›sluver›i
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
•
N
M
1
1
0
5
4
•
s
ia
.i
s
Op i›
TILBOÐS
DAGAR
Skólavörðustíg 21,Reykjavík, Sími 551 4050
ÚTIMÁLNING
OG
VIÐARVÖRN
- mest lesna blað landsins
Á MÁNUDÖGUM
Auglýsingasíminn
er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
Silkiblóm taka klakann með trompi:
Falleg allt árið um kring
Gæði silkiblóma hafa aukist mikið síðustu ár og er nú varla hægt að sjá muninn á
raunverulegum blómum og silkiblómum. Hjá Soldis er mikið úrval af alls kyns silki-
trjám í ýmsum stærðum og gerðum.