Fréttablaðið - 29.07.2004, Side 40
28 29. júlí 2004 FIMMTUDAGUR
■ ■ SKEMMTANIR
22.00 Búálfarnir spila á Neistaflugi
í Egilsbúð.
23.00 Skítamórall er með órafmagn-
aða tónleika á Útlaganum, Flúðum.
23.00 Búðabandið með Bryndísi
Ásmundsdóttur í broddi fylkingar
skemmtir á Glaumbar í kvöld.
Bítlarnir spila á Hverfisbarnum.
dj andrés með eletronic house á
Kaffi Sólon.
10. verslunarmannahelgin í Úthlíð
hefst. Í ár er dagskráin stíluð fyrir
fjölskyldur.
Kvikmyndin Kaldaljós hefur
fengið góðar viðtökur á alþjóð-
legum kvikmyndahátíðum en nú
hefur verið opnuð myndlistar-
sýning á veitingahúsinu Jóm-
frúnni í Lækjargötu sem tengist
bíómyndinni. „Verkin á sýning-
unni eru afrakstur vinnu minnar
við kvikmyndina Kaldaljós en ég
var það sem kallað er leik-
myndahöfundur kvikmyndar-
innar,“ segir myndlistarmaður-
inn og leikmyndahönnuðurinn
Sigurjón Jóhannsson en á sýn-
ingunni er um að ræða teikning-
ar sem Grímur Hermundsson
yngri, leikinn af Ásláki Ingvars-
syni, teiknar í Kaldaljósi. „Ég
þurfti að útbúa myndir sem trú-
verðugt væri að tíu ára drengur
hefði teiknað. Það var bæði dálít-
ið snúið og skrítið því ég er rosk-
inn maður og þurfti þarna allt í
einu að setja mig í spor lítils
barns.“
Sigurjón segir allmargar
skissur hafi birst í bíómyndinni
en á sýningunni gefur að líta
fullkláraðar vatnslitamyndir.
„Ég gat ekki neitað mér um að
klára myndirnar til fulls eftir að
tökum var lokið á Kaldaljósi því
mér þótti þessi einfalda lífssýn
sem drengurinn hafði heillandi.
Þessi lífssýn persónunnar Gríms
gerði það að verkum að ég þurfti
að breyta um stíl og taka upp
nýja aðferð til að útfæra mynd-
irnar.“
Myndirnar sem um ræðir og
birtust í Kaldaljósi voru að sögn
Sigurjóns partur af frásögn
kvikmyndarinnar. „Þær hafa
bæði ákveðið forspárgildi í frá-
sögninni og lýsa jafnframt hug-
arheimi Gríms,“ segir Sigurjón
en sem kunnugt er, er Kaldaljós
í leikstjórn Hilmars Oddssonar
byggð á samnefndri skáldsögu
Vigdísar Grímsdóttur.
Myndlistarsýningin á Jóm-
frúnni stendur fram til 15. sept-
ember og er um sölusýningu að
ræða. ■
Sýning byggð á
verkum úr Kaldaljósi
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
26 27 28 29 30 31 1
Fimmtudagur
JÚLÍ
MYNDLIST
SIGURJÓN JÓHANNSSON
■ Setti sig í spor tíu ára drengs í kvik-
myndinni Kaldaljós er hann teiknaði
myndir fyrir Grím Hermundsson yngri
sem leikinn er af Ásláki Ingvarssyni.
■ MYNDLIST
Í kvöld kl.22:00
Hvanndalsbræður
Grand Rokk
Nánar á
www.grandrokk.is
Ferðaklúbbur
eldri borgara
Dagsferð
í Veiðivötn
5. ágúst.
Þjórsárdalur, Veiði-
vötn, Vatnahringur,
Hrauneyjar, Landsveit,
Reykjavík.
Upplýsingar hjá
Hannesi s. 892-3011
■ ■ ÚTIVIST
17.00 Farið verður í fornleifarölt um
Hólastað hinn forna. Lagt verður
af stað frá Hólum í Hjaltadal.
19.30 Gengið verður um skálda-
slóðir Halldórs Laxness og Egils
Skallagrímssonar með leiðsögn
Bjarka Bjarnasonar. Lagt verður af
stað frá Gljúfrasteini.
20.00 Á síðustu fimmtudagskvöld-
göngu sumarsins á Þingvöllum
mun Þorvarður Árnason heim-
spekingur og líffræðingur ræða
um náttúrusýn Íslendinga. Göngu-
ferðin hefst við Flosagjá og verður
farið um Gönguveg í Skógarkot.
■ ■ TÓNLEIKAR
12.00 Orgelleikarinn Magnús
Ragnarsson heldur hádegistón-
leika í Hallgrímskirkju.
21.30 Havanabandið leikur í
Deiglunni, Akureyri.
22.00 Hvanndalsbræður leika á
Grand Rokk.
Hljómsveitin Mannakorn heldur tón-
leika á Gamla bauk á Húsavík.
Quintet Sigurdórs Guðmundsson-
ar rafbassaleikara þeytist nú um
landið til að spila frumsaminn
djass fyrir landann. „Við erum
tveir Íslendingar og þrír Danir í
bandinu,“ segir tónlistarmaðurinn
Sigurdór Guðmundsson en Dön-
unum kynntist hann þegar hann
dvaldi við nám í Danmörku. „Ég
var í FÍH en fór sem skiptinemi í
Den jyske musikkonservatorium
um tíma. Tveir af Dönunum eru í
bandi sem kallar sig Paven eða
Páfinn og hefur verið að gera það
gott úti. Við spiluðum saman úti
og fljótlega eftir að samstarfið
hófst kviknaði áhugi fyrir Ís-
landsför.“
Sigurdór segir frumsömdu tón-
listina ansi fjölbreytta. „Það er
komið víða við og það er talsvert
um spuna. Við spilum fönk fusion
tónlist og tónlist sem má segja að
sé undir balkan áhrifum en inn á
milli eru angurværar ballöður
sem gætu nánast flokkast undir
að vera popplög.“
Tónleikaferð hljómsveitarinn-
ar hófst í gær í Duus húsinu í
Keflavík en strákarnir verða á
Akureyri í kvöld. „Þar spilum við
á Græna hattinum klukkan 21.00,
förum svo til Húsavíkur til að
spila á föstudaginn og verðum á
þriðjudagskvöldið klukkan 21.30 á
Grand Rokk.“ ■
Frumsaminn
djass víða um land
QUINTET SIGURDÓRS GUÐMUNDSSONAR
Þrír Danir og tveir Íslendingar ferðast nú um landið til að spila djass og verða á Akureyri í kvöld.
SIGURJÓN JÓHANNSSON
Hefur opnað sýningu á verkum sínum á veitingahúsinu Jómfrúnni í Lækjargötu.