Fréttablaðið - 03.08.2004, Qupperneq 46
26 3. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ ROCKY
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Martin Kellerman
Eftir Frode Överli
Ég hef verið kaffi-
húsaheimspekingur
í afleysingum í
sumarfríinu. Helstu
niðurstöður helgar-
innar eru að á Langa
bar heldur til fólk
sem hefur dýpri
skilning á lífinu en
slektið sem troðfyllir
Ölstofuna.
Á Langa bar kemur saman skip-
brotsfólk úr ólgusjó lífsins, með
raunverulegar áhyggjur af líðan
Bobby Fischer í fangabúðunum í
Japan og hefur enn meiri áhyggjur
af andlegri líðan félaga sinna sem
dvelja í fásinninu á Litla-Hrauni.
Á hinum staðnum er fólk öllu upp-
teknara af sjálfu sér og talar helst
ekki um annað. Allir eru auðvitað á
uppleið og ætla að verða eitthvað æð-
islegt. Einhverjir munu þó auðvitað
detta í lukkupottinn og enda á Langa
bar. Reynslunni ríkari og bæði betri
og skemmtilegri manneskjur en þeir
eru þessa stundina.
Annars tala ég og hugsa mest um
ástina þegar ég er ekki að ræða
hinstu rök tilverunnar við atvinnu-
fyllibyttur eða bjarta framtíð at-
vinnuuppa sem sjá fram á bjartari
tíma og haug af gervipeningum.
Rannsóknir mínar á ástinni hafa leitt
mig að þeirri niðurstöðu að hún er
blekking, ekki til. Þetta hef ég reynt
á eigin skinni og fæ nú mikið út úr
því að rífa niður ungt og ástfangið
fólk. Þeir sem eru um tvítugt liggja
best við höggi og bölspámaðurinn
fullyrðir glottandi að lífið þurfi ekki
nema nokkur ár til viðbótar til að
drepa ástina. Var um daginn spurður
hvort það væri hægt að finna ástina
á nektardansstað. Svarið er „já“. Þar
sem ástin er blekking er hægt að
finna hana alls staðar og það er auð-
vitað hægt að kaupa hana eins og allt
annað um þessar mundir. Ástin end-
ist þó ef til vill skemur á Goldfinger
en í kjallaraíbúð í Grafarvoginum.
Hún blómstrar á meðan fjármagnið
er fyrir hendi en þegar synjunin
kemur á greiðslukortið gufar hún
upp. Þetta getur gerst á nokkrum
klukkustundum við súluna en tekur
stundum ár og jafnvel áratugi ann-
ars staðar. Lokaniðurstaðan verður
þó hin sama: „Ekki reyndist inni-
stæða fyrir ástinni“. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON HEFUR MISST TRÚNA Á ÁSTINA EN GETUR ÞÓ KEYPT HANA.
Kaffihúsaheimspeki ástarinnar
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Mörkinni 6. Sími 588 5518
OPIÐ
Virka daga
frá kl. 10-18
Laugardaga
frá kl. 10-16
Stuttar og síðar kápur,
sumarúlpur, heilsársúlpur,
regnkápur bolir, peysur
og slæður.
15 50% Afsláttur!
s
1Ú T S A L A
50% afsláttur afsíðum kápum
- mest lesna blað landsins
Á FÖSTUDÖGUM
Auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
NÝ OG BETRI! Við
kynnum: Nýja ZULO
uppþvottalöginn!
100 %
betrum-
bætt!
Þeir viðurkenna
sem sagt að
gamla ZULO-ið
sem við höfum
notað í tuttugu
ár sé bara leðja!
NÝJA ZULO! Skínandi
hreint! Skínandi hvítt!
Skítandi
hví... TAKK!
Mikið ertu þögull! Er eitthvað að? Eigum við að ríða?
Þeir
skrifa ekki
svona lög
lengur.
MAMMMAAAA!
Nú þú.
Geta köngu-
lær dansað,
eða myndu þær
bara detta um
allar þessar
fætur ef þær
reyndu og
kannski er það
þess vegna
sem þær reyna
ekki?
Ja hérna elskan, það er mjög
mikilvæg spurning sem rétt-
ast er að fá strax svar við.
Ég veit ekki svarið en ég veit
hvar það er að finna.
PAABBIIII!
Það er eins gott að
þetta sé mikilvægt.
Það er
það.
Klukkan er
hálf fjögur
Solla,
hvað viltu?
Nei nei! Við karlmenn tölum
bara ekki jafn mikið og þið!
Svo ef ég blaðra ekki stans-
laust þýðir það ekki að ég sé
reiður eða veikur... Ég tala
þegar ég hef eitthvað að
segja, annars held ég kjafti!