Fréttablaðið - 03.08.2004, Blaðsíða 47
Undarleg uppákoma átti sér
stað við alþjóðlega Lilongwe-
flugvöllinn í Malawi þegar sást
til kaþólsks prests og nunnu
stunda kynlíf í bíl sem lagt var á
stóru bílaplani. Fólk sem statt
var á bílastæðinu tók eftir því
hvernig bíllinn hristist skringi-
lega og kallaði á lögreglu flug-
vallarins. Í ljós kom að 46 ára
prestur og 26 ára nunna, voru
þar sakhæf um ósiðlega fram-
komu á almannafæri. Í fullsetn-
um, hálfflissandi réttarsal ját-
uðu þau bæði sekt sína og hlutu
sex mánaða skilorðsbundinn
dóm fyrir. Konan sagðist þá
iðrast og sjá eftir atburðinum en
presturinn sagðist, sem guðs
maður, hafa samþykkt að
djöfullinn næði á honum tökum.
Dómari sagði það spila inn í
dómsúrskurð að parið hafi mis-
notað stöðu sína sem þjónar
guðs og því seint grunuð um
glæp af slíku tagi. Þau voru þó
samvinnuþýð og mildaði það
dóminn ásamt iðrun þeirra. ■
27ÞRIÐJUDAGUR 3. ágúst 2004
Prestur og nunna við ósiðsamlegt athæfi.
■ SKRÝTNA FRÉTTIN
■ SJÓNVARP
■ TÓNLIST
Með Avis kemst þú lengra
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú
leggur af stað – Það borgar sig
Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Innifalið í verði er ótakmarkaður akstur, trygging, vsk. og
flugvallargjald. (Verð miðast við lágmarksleigu 7 daga).
Ekkert bókunargjald - Gildir til 31. mars 2005.
Verð háð breytingu á gengi.
Benidorm kr. 1.900,- á dag m.v. A flokk
Alicante kr. 1.900,- á dag m.v. A flokk
Costa del Sol kr. 2.100,- á dag m.v. A flokk
www.avis.is
Við
gerum
betur
Spánn
AVIS Knarrarvogi 2 - 104 Reykjavík - Sími 591 4000 Fax 591 4040 - Netfang avis@avis.is
Munið Visa
afsláttinn
Damon Albarn, P.J. Harvey
og Nick Cave eru á meðal
frægra tónlistarmanna sem
eiga lög á nýjustu plötu Mari-
anne Faithful, Before the
Posion. Síðasta plata Faithful,
Kissin’ Time kom út fyrir
tveimur árum.
Lag Albarn kallast The
Last Song. Harvey á þrjú lög
á plötunni, auk þess sem hún
samdi titillagið og In the
Factory við texta Faithful.
Cave á einnig þrjú lög og kall-
ast þau Crazy Love, There is
a Ghost og Desperanto.
Tíunda lag plötunnar samdi
Jon Brion, samstarfsmaður
Amiee Mann.
Before the Posion kemur
út 27. september. Þess má
geta að Faithful kom nýlega
fram í leikhúsi í London í
söngleiknum „The Black
Rider: The Casting of the
Magic Bullets,“ eftir Tom
Waits og William S.
Burroughs. ■
Rokkhljómsveitin Dios frá Kali-
forníu, sem gaf út samnefndan
frumburð sinn í mars, hefur
breytt nafni sínu í Dios Malos.
Ástæðan er sú að þungarokkar-
inn Ronnie James Dio, fyrrum
meðlimur Black Sabbath, kærði
sveitina fyrir að stela nafninu
sínu. Eftir að Dio hætti í Sabbath
árið 1983 stofnaði hann hljóm-
sveitina Dio, sem hefur núna
gefið út tólf plötur.
Meðlimir Dios voru mjög undr-
andi á tilburðum Dio en ætla að
halda ótrauðir áfram. „Við héldum
fyrst að þetta væri grín,“ sagði
bassaleikarinn J. P. Cabellaro í við-
tali við Rolling Stones. „Þegar við
skírðum hljómsveitina vorum við
að hugsa um guð,“ sagði hann.
„Dios þýðir guð á spænsku. Þrátt
fyrir þetta ætlum við að halda
áfram í tónleikaferð okkar til að
fylgja eftir nýjustu plötu okkar.“ ■
Seacrest af
skjánum
Spjallþátturinn „On Air With
Ryan Seacrest“ verður tekinn af
dagskrá hjá
um það bil
tuttugu sjón-
varpsstöðv-
um í Banda-
ríkjunum á
næstunni.
S j ó n -
varpsstöðv-
arnar eru í
eigu Sinclair
B r o a d c a s t
Group sem
f r a m l e i ð i r
þ á t t i n n .
Ástæðan fyrir ákvörðuninni er lít-
ið áhorf en erfiðlega hefur gengið
að fjölga áhorfendum síðan þátt-
urinn hóf göngu sína í janúar á
þessu ári. Þetta er mikið áfall
fyrir Seacrest, sem hefur staðið
sig prýðilega sem stjórnandi
American Idol þáttarins. ■
KISS ROKKAR ENN
Hljómsveitin fornfræga, Kiss, er komin
saman á ný og rokkar nú sem aldrei fyrr.
AP
/M
YN
D
Prestur og nunna
gripin glóðvolg
RYAN SEACREST
Spjallþættir Seacrest
hafa ekki gengið sem
skyldi.
P.J. HARVEY
aðstoðaði goðsögnina Marianne Faithful á
nýjustu plötu hennar.
Faithful fær góða hjálp
DIO
Ronnie James Dio, í miðjunni,
ásamt félögum sínum í Dio.
Dio kærir Dios