Fréttablaðið - 08.08.2004, Síða 15
SUNNUDAGUR 8. ágúst 2004 15
Tæland á útsölu
2 vikur í september frá
Lúxustilboð í Tælandi:
2 vikur, brottfarir í lok september og fram
yfir miðjan október frá
Hópferðir með íslenskum
fararstjóra í október:
Leyndardómar Tælands og
5 stjörnu strandhótel:
16 dagar á aðeins
Nílarsigling og Kaíró:
16 dagar á aðeins
Beijing og helstu undur Kína:
16 dagar á aðeins 219.990 kr. í tvíbýli
Lj
ó
sm
yn
d
K
U
O
N
I
Nýr og glæsilegur ferðabæklingur
frá KUONI 2004-2005
Nákvæmar ferðalýsingar á heimasíðu okkar.
Holtasmára 1 • 201 Kópavogi
Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309
Netfang: langferdir@langferdir.is
Heimasiða: www.kuoni.is
Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00
88.650 kr.
á mann í tvíbýli
Pantið bækling í síma, með faxi eða á heimasíðunni
og við póstsendum samdægurs. Bæklingurinn liggur
einnig frammi á völdum bensínstöðvum Esso.
Ný og endurbætt heimasíða full af frábærum
ferðamöguleikum www.kuoni.is
Örfá ferðadæmi
í sumar og haust:
115.450 kr.
á mann í tvíbýli
169.990 kr.
á mann í tvíbýli
184.900 kr.
á mann í tvíbýli
219.990 kr.
á mann í tvíbýli
Velkomin í ævintýraheim
„Afstaða útvarpsráðs í þessu
máli er alveg klár, við viljum að
Ríkisútvarpið gæti hlutlægni og
að menn fái sambærilega með-
ferð. Ég get tekið undir það með
Ólafi að það er skrítið að hann
skuli aldrei hafa verið fenginn í
Kastljós til að ræða borgarmál.
Það er það eina sem Útvarpsráð
hefur um þetta að segja. Umsjón-
armenn slíkra þátta eins og Kast-
ljóssins eiga að gæta hlutleysis,
punktur,“ segir Gunnlaugur.
„Ólafur víkur einnig í bréfinu
að önuglyndi Kristjáns Kristjáns-
sonar í minnisblaði sem Kristján
sendi Útvarpsráði þar sem hann
kallaði málflutning Ólafs „farsa-
kennt rugl.“ Ég skil ósköp vel
pirring Ólafs, ég tel að Kristján
eigi nú að temja sér aðeins betri
mannasiði í slíku máli. Kristján
er í viðkvæmu starfi og á ekki
tala svona um málflutning þeirra
sem eru ósammála honum.“ ■
„Ritarinn minn hringdi upp í sjón-
varp til að grennslast fyrir um
hverjir fleiri yrðu í Kastljósþætt-
inum (3. mars) og fékk þau svör
að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
leiðtogi Sjálfstæðismanna í borg-
arstjórn yrði þar einnig. Í fram-
haldi af því lét ég spyrjast fyrir
um af hverju fulltrúar frá öllum
framboðunum í borgarstjórn
væru ekki boðaðir í þáttinn. Efn-
isleg svör umsjónarmannanna
voru á þá leið að þeir settu þessa
þætti upp eftir sínu höfði.
Ég kom því á framfæri að ég
hafi yfirleitt verið talsmaður þess
að öll framboð borgarstjórnar
komi máli sínu fram í fjölmiðlum.
Skoðanir eru ekki rétthærri eftir
því hvort það eru margir sem
fylgja þeim eða fáir. Það er betra
fyrir alla að sem flest sjónarmið
komist að, bæði fyrir okkur sem
stjórnum borginni og eins fyrir
lýðræðið í landinu.“ ■
GUNNLAUGUR SÆVAR
GUNNLAUGSSON
Formaður útvarpsráðs
Á að gæta
hlutleysis
ÞÓRÓLFUR ÁRNASON
Borgarstjóri Reykjavíkur
Innti Kastljós-
menn svara
„Það hefur ekki þótt ástæða til
þess að boða Ólaf F. Magnússon í
þáttinn á tímabilinu. Hér er ein-
ungis um að ræða sjö þætti á
tímabilinu þar sem rætt hefur
verið um borgarmál, þar af þrjá
þar sem hefur verið rætt um
skipulagsmál. Ólafur hefur hvað
helst kvartað yfir því að hafa ekki
verið boðaður í þessa þrjá þætti.
Það er spurning hversu mikið
vægi oddviti flokks með 5 pró-
senta vægi í borgarstjórn á að
hafa gegn hinum 95 prósentunum
í umræðuþætti eins og Kastljósi
þar sem borgarmál eru rædd
þetta sjaldan.
Það getur vel verið klaufaskap-
ur af okkar hálfu að hafa ekki boð-
að Ólaf í þáttinn þegar við hefðum
getað gert það en hér er ekki um
að ræða fyrirfram ákveðna stefnu
af okkar hálfu um að sniðganga
hann. Ég er alveg reiðubúinn að
játa á mig hugsunarleysi í þessu
máli en ekki stærri syndir.“ ■
KRISTJÁN KRISTÁNSSON
Umsjónarmaður Kastljóssins
Klaufaskapur
en ekki meira