Fréttablaðið - 08.08.2004, Page 46
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Jökulsá á Dal.
Fyrrum framkvæmdastjóri Yukos.
Happy End.
Jónsi í Hinsegin göngu
Esther Viktoría Ragnarsdóttir 12
ára nemandi í Rimaskóla gerði sér
lítið fyrir og teiknaði sig inn á
ólympíuleikana í Aþenu.
Esther tók þátt í myndlistar-
samkeppni Visa en fyrirtækið bíð-
ur 29 krökkum á ólympíuleikana í
hvert skipti en í ár tóku um millj-
ón börn þátt í samkeppninni. Ár-
angur Estherar verður því að telj-
ast frábær í myndlistarkeppninni
sem nefnist „Ólympíuleikar
ímyndunaraflsins“.
„Ég teiknaði jörðina en á henni
er auga sem horfir á ólympíuleik-
ana. Í jarðarauganu sjást síðan
nokkrar íþróttagreinar og vinátta
milli manna og þjóða,“ segir
Esther sem heldur út til Grikk-
lands ásamt móður sinni 10. ágúst.
Esther segir alls ekki hafa bú-
ist við að vinna en segist þó hafa
verið nokkuð ánægð með mynd-
ina. „Ég hef reyndar áður unnið í
myndlistarkeppnum og reyndar
líka ljóðasamkeppnum en þetta
kom mér á óvart.“ Það er ekki
laust við tilhlökkun hjá þeim
mæðgum en þær munu meðal
annars fylgjast með keppni í
sundi og auðvitað leikjum ís-
lenska handboltalandsliðsins. „Ég
hef mikinn áhuga á handbolta og
fylgist vel með landsliðinu þegar
það er að keppa. Það verður því
mjög gaman að sjá þá spila úti,“
segir Esther sem er einmitt ný
komin úr handboltaferðalagi frá
Svíþjóð þar sem hún keppti með
liði sínu Fjölni. ■
Á leið á Ólympíuleikana
30 8. ágúst 2004 SUNNUDAGUR
....fá allir þeir sem gerðu miðborg
Reykjavíkur litríka í gær með
þátttöku í Hinsegin dögum.
HRÓSIÐ
Það vakti athygli í gær í göngu
Hinsegin daga að ein af skærustu
poppstjörnum Íslands stóð þar
upp á palli og tók virkan þátt í há-
tíðarhöldunum. Jón Jósep Snæ-
björnsson, eða Jónsi í Svörtum
fötum eins og flestir kalla hann,
prýddi einn af litríku pöllunum í
göngunni og lét ekki heyra minna
í sér en hinir.
„Í göngunni vorum við að taka
upp brot í myndina Strákarnir
okkar. Í því atriði hafa liðsmenn
ástæðu til að fara niður Laugaveg-
inn í Gay Pride-göngunni. Annars
má ég ekki segja meira um mynd-
ina í bili,“ segir Jónsi sem er svo
sannarlega að slá í gegn í leiklist-
arheiminum þessa dagana. „Ég
fékk handritið í hendurnar fyrir
nokkrum dögum og veltist um af
hlátri á gólfinu þangað til mér
varð illt í maganum. Af Guðs náð
fékk ég tækifæri til að leika í leik-
ritum og núna fékk ég kvik-
myndahandrit í hendurnar. Ég
trúi þessu ekki almennilega ennþá
og mér finnst ég vera rosalega
heppinn. Ég gæti ekki verið
ánægðari enda er handritið alveg
drepfyndið og lofar mjög góðu.
Þetta er eins konar blanda af
Priscilla Queen of the Desert, The
Full Monty og Bend it like Beck-
ham. Leikarahópurinn er líka al-
veg svakalega góður. Þarna eru
leikarar sem ég hef verið að horfa
á síðan ég var ungur og einnig ný
andlit sem mér líst mjög vel á,“
segir Jónsi og gæti hugsað sér að
leggja leiklistina að einhverju
leyti fyrir sig. „Aldrei að segja
aldrei.“
Nú hafa verið kjaftasögur á
kreiki um að Jónsi sé í raun sam-
kynhneigður en Jónsi vísar þeim
sögum algjörlega á bug. „Ég er
nýbúinn að sverja af mér samkyn-
hneigð þannig að það er frekar
fyndið að ég mæti svo í Gay
Pride-gönguna. Fólk verður að fá
að trúa því sem það trúir og það
fer allt eftir því hvort þú lest
Fréttablaðið eða ekki. Ég leik
gagnkynhneigðan mann í mynd-
inni og í handritinu er vísað til
mín sem „straight“-leikmaður
númer 2,“ segir Jónsi sem vildi þó
ekki gefa upp hverjir það eru sem
eru samkynhneigðir í myndinni.
Strákarnir okkar er nýjasta
mynd þeirra Róberts Douglas og
Jóns Atla Jónassonar og mun
prýða tjöld íslenskra kvikmynda-
húsa næsta sumar. ■
KVIKMYNDIR
JÓNSI
■ mun leika hlutverk í Strákarnir okkar,
nýjustu mynd Róberts Douglas og Jóns
Atla Jónassonar.
MYNDLISTARSAMKEPPNI
ESTHER VIKTORÍA
RAGNARSDÓTTIR
■ hlaut ferð á ólympíuleikana í Aþenu
fyrir mynd sína „Svo heimurinn sjái“.
JÓNSI Í GAY PRIDE
Jónsi bar höfuðið hátt í Gleðigöngunni í gær og lætur kjaftasögur um samkynhneigð sem vind um eyru þjóta.
Spenna magnast nú meðal ungra sjálf-stæðismanna í Reykjavík vegna
stjórnarkjörs í
Heimdalli um næstu
helgi. Tveir sækjast
eftir formannsembætti,
þau Bolli Thoroddsen
og Helga Árnadóttir.
Helga var varaformað-
ur Heimdallar í fyrra
þegar stjórnin hafnaði
um 1100 stuðningsmönnum Bolla inn-
göngu í félagið í aðdraganda aðalfundar.
Talið er að kosningarnar nú verði á milli
sömu fylkinga og tókust á þá.
Þeir sem standa að framboði Helguhafa safnað nöfnum ýmissa forystu-
manna flokksins á stuðningsmannalista.
Þetta hefur valdið titringi innan flokksins
því fram til þessa hafa
þingmenn og ráðherrar
ekki blandað sér með
beinum hætti í kosning-
ar ungliðanna. Kosn-
ingastjóri Helgu og
hvatamaður stuðnings-
yfirlýsinganna mun vera
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stjórnar-
maður í SUS. Kunnugir segja að Þorbjörg
stefni á formennsku í SUS á næsta ári og
atkvæði frá Heimdalli muni tryggja henni
kosningu þar. Hún eigi því mestra hags-
muna að gæta í Heimdallarkosningun-
um nú.
FRÉTTIR AF FÓLKI
VIÐEY
Gönguferðir öll þriðjudagskvöld
kl 19:30.
Fjölskyldudagar á sunnudögum.
Ljósmyndasýning í skólahúsinu um
Viðey á fyrri hluta 20. aldar.
Tuttugu ný fræðsluskilti í þorpinu.
Minnum á listaverk Richard Serra, nýjan
upplýsingabækling, ókeypis hjólalán,
grillaðstöðu, tjaldstæði, veitingasölu, fjölda
gönguleiða, óspillta náttúru og friðsæld.
Nánari upplýsingar:
arbaejarsafn.is,
videy@rvk.is og s: 693-1444.
SVO HEIMURINN SJÁI
Myndin sem Esther teiknaði sýnir vináttu
manna og þjóða sem myndast á Ólympíu-
leikunum.
ESTHER VIKTORÍA
Hún segist alls ekki hafa búist við því að
vinna myndasamkeppnina.
Hvernig ertu núna? Er bara í góðum fíling
Hæð: 186 cm, held ég
Augnlitur: Blár
Starf: Ég vinn á leikjanámskeiði í sumar
hjá ÍTH, annars er ég bara nýbúinn með
stúdentinn og veit ekki alveg hvað tekur
við
Stjörnumerki: Krabbi
Hjúskaparstaða: Á lausu
Hvaðan ertu? Kem úr Geiradalnum
Helsta afrek: Íslandsmótið í 2. flokk í
fyrra þegar FH vann með fullt hús stiga
Helstu veikleikar: Feiminn
Helstu kostir: Fínn gaur
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: American
Idol og O.C.
Uppáhaldsútvarpsþáttur: Ætli það sé
ekki Mín skoðun með Valtý Birni á Skon-
rokk
Uppáhaldsmatur: Grillaðir hamborgarar
Uppáhaldsveitingastaður: Ruby Tuesday
Uppáhaldsborg: Gautaborg
Uppáhaldsíþróttafélag: FH
Mestu vonbrigði lífsins: Held ég eigi eftir
að upplifa þau, annars eru það bara
meiðslin í gegnum tíðina
Hobbý: Fótboltinn og að spila á gítar og
að tjilla
Viltu vinna milljón? Já, það væri fínt
Jeppi eða sportbíll: Jeppi í augnablikinu
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir
stór? Atvinnumaður í fótbolta
Skelfilegasta lífsreynslan: Þegar ég fór í
rússibana í Bandaríkjunum tíu ára. Hef
ekki þorað í rússibana síðan
Hver er fyndnastur? Leikarinn Chris
Tucker
Hver er kynþokkafyllst? Halle Berry og
Beyonce eru flottastar
Trúir þú á drauga?Nei, ég geri það ekki
Hvaða dýr vildirðu helst vera? Væri til í
að vera ljón
Hvaða dýr vildirðu ekki vera? Ormur
Áttu gæludýr? Nei
Hvar líður þér best? Heima í góðu tjilli
Besta kvikmynd í heimi: The Shawsank
Redemption
Besta bók í heimi: Biblían
Næst á dagskrá: Leikur á móti Víking
klukkan sex og svo tónleikar með 50
cent á miðvikudaginn
Þorir ekki lengur í rússibanaBakhliðinÁ NÍNU EMIL HALLFREÐSYNI, FÓT-BOLTASTJÖRNU FH
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M