Fréttablaðið - 12.06.2004, Síða 4
4 12. júní 2004 LAUGARDAGUR
DÓMSMÁL Sænski ferðalangurinn
sem handtekinn var í Leifsstöð 21.
maí síðastliðinn með tvær milljón-
ir króna í reiðufé í vösunum var
dæmdur til fjögurra mánaða fang-
elsisvistar í gær. Hann hafði játað
á sig fjársvik við yfirheyrslu og
birti sýslumannsembættið á
Keflavíkurflugvelli honum ákæru
í gær. Síðan dæmdi Héraðsdómur
Reykjaness hann í fjögurra mán-
aða fangelsisvist, þar af þrjá mán-
uði skilorðsbundna. Svíinn var síð-
an fluttur á Litla-Hraun, þar sem
hann afplánar nú.
Þetta óvenjulega mál tók á sig
endanlega mynd í fyrradag, þegar
íslenskur karlmaður var kallaður
til yfirheyrslu hjá sýslumanns-
embættinu sem vitni. Samkvæmt
upplýsingum blaðsins var það sá
maður sem Svíinn játaði fyrir
Héraðsdómi í gær að hafa svikið
milljónirnar tvær af.
Ekki er með öllu ljóst hvernig
viðskipti mannanna höfðu verið þar
sem framburður þeirra var ekki
samhljóða við yfirheyrslur. Ljóst er
þó að Svíinn hafði með blekkingum
tilgreinda upphæð af Íslendingnum
sem hann hugðist síðan taka með sér
úr landi. Þá er ekki með öllu ljóst
hvernig Svíinn hugðist nýta sér fjár-
munina, þegar hann væri kominn á
erlenda grund, en talið líklegt að
hann hafi verið að flýta sér úr landi
og haldið að hann gæti skipt milljón-
unum í erlenda mynt þar.
Maðurinn hafði dvalið hér á
landi síðan 6. apríl. Hann hafði
gist á ýmsum gistiheimilum, bæði
í Reykjavík og Kópavogi. Þegar á
dvölina leið leigði hann sér hús-
næði sem hann bjó í þar til hann
hugðist yfirgefa landið. Hann er
fæddur í Tyrklandi en er með
sænskan ríkisborgararétt. Hann
hefur lengi búið í Svíþjóð og Nor-
egi og hefur komist í kast við lög-
in erlendis. ■
Hagvöxturinn
á fleygiferð
Hagvöxtur mældist 4,9 prósent. Bólga í öllum tölum, segir seðlabanka-
stjóri. Íslandsbanki telur vöxt einkaneyslu fjármagnaðan með lántöku.
EFNAHAGSMÁL Hagvöxtur fyrsta
ársfjórðungs þessa árs mældist 4,9
prósent og hefur ekki mælst meiri
síðan á fyrsta ársfjórðungi ársins
2001. Hagvöxtur var þó svipaður á
síðasta ársfjórðungi, samkvæmt
Hagtíðindum Hagstofu Íslands.
Verðbólga er einnig að aukast
en vísitala neysluverðs hefur
hækkað um 3,9 á síðustu tólf mán-
uðum. Jafngildir það níu prósenta
verðbólgu á ári.
„Verðbólgan hefur farið á meira
skrið en við reiknuðum með fyrr í
vetur,“ segir Birgir Ísleifur Gunn-
arsson seðlabankastjóri. Að sögn
Birgis Ísleifs hafa vextir verið
hækkaðir tvisvar síðastliðinn mán-
uð. „Við sögðum jafnframt að búast
mætti við að bankinn hækkaði
stýrivexti fljótlega aftur ef nýjar
upplýsingar gæfu ekki vísbend-
ingu um betri verðbólguhorfur.“
Birgir Ísleifur bendir á að hag-
vöxturinn sé einnig á mikilli fleygi-
ferð. „Einkaneysla og fjárfestingar
eru miklar þannig að það er bólga í
öllum tölum enn sem komið er.“
Birgir Ísleifur á þó von á að
heldur muni draga úr verðbólgu
þegar líður á árið. „Við sjáum að
tveir þriðju af þessari verðbólgu
skýrast af tveimur þáttum, olíu-
verði og hækkun á húsnæðis-
verði,“ segir Birgir Ísleifur. „Olíu-
verð er þegar byrjað að lækka og
vonandi heldur sú þróun áfram. Þá
getur þessi mikla hækkun á hús-
næðisverði staðið í einhverju sam-
bandi við skipulagsbreytingar á
lánum Íbúðalánasjóðs þannig að
hugsanlegt er að meira jafnvægi
komist á þann markað þegar frá
líður. Gengið hefur einnig verið að
hækka aðeins og það vinnur á móti
verðbólgunni.“
Hagvöxtur fyrsta ársfjórðungs
einkenndist af mikilli aukningu á
einkaneyslu og fjárfestingum, segir
í Hagtíðindum. Einkaneysla jókst
um 8 prósent og fjárfesting talin
hafa vaxið um 17 prósent milli ára.
Greining Íslandsbanka telur
vöxt einkaneyslu fjármagnaðan
með lántöku, þar sem á sama tíma-
bili varð samdráttur í kaupmætti
launa. Þrátt fyrir talsverða aukn-
ingu fjárfestinga segir greiningin
vöxtinn nokkuð minni en mælst hafi
á síðustu ársfjórðungum og bendir
á að meginástæða vaxtarins sé fjár-
festing í stóriðju. Þá hafi fjárfesting
í íbúðarhúsnæði aukist.
hegat@frettabladid.is
Forstöðumaður
Hagfræðistofnunar HÍ:
Óvenjulegt
ástand
EFNAHAGSMÁL „Íslenska hagkerfið
byrjaði mjög snöggt að taka við
sér á seinni hluta síðasta árs,“
segir Tryggvi Þór Herbertsson,
forstöðumaður Hagfræðistofnun-
ar Háskóla Íslands. „Þetta er
mjög óvenjulegt ástand sem kem-
ur upp í kjölfar þess.“
Tryggvi Þór bendir á mikla
aukningu einkaneyslu og fjárfest-
ingar, aðallega vegna stóriðju-
framkvæmda. „Einkaneysla eykst
vegna væntinga um betri tíð og
mikinn hagvöxt, ekki síst vegna
framkvæmda á Austurlandi,“ seg-
ir Tryggvi. „Þessi spenna gerir
það að verkum að þrýstingur
myndast á verðlagið í landinu og
verðbólgan fer af stað.“ ■
2001
I. 8,4
II. 0,8
III. 0,8
IV. 1,5
2002
I. 0,0
II. 0,1
III. -0,4
IV. -1,9
2003
I. 4,6
II. 3,3
III. 3,3
IV. 4,8
2004
I. 4,9
Óttastu aukna verðbólgu?
Spurning dagsins í dag:
Styður þú fyrirhugað verkfall kennara?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
19%
81%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun
visir.is
Miðstjórn ASÍ:
Stjórnvöld
axli ábyrgð
EFNAHAGSMÁL Miðstjórn Alþýðu-
sambands Íslands hefur áhyggjur
af stöðu og horfum efnahagsmála,
að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu frá ASÍ.
„Með nýgerðum kjarasamning-
um hefur launafólk á almennum
vinnumarkaði sýnt að það er reiðu-
búið að axla sinn hluta af ábyrgðinni
á að viðhalda stöðugleika í efnahags-
lífinu,“ segir í tilkynningunni. „Jafn-
framt gerir það kröfu til þess að aðr-
ir aðilar, einkum stjórnvöld, axli
sína ábyrgð með sama hætti.“
Í tilkynningunni segir að ríkis-
stjórnin verði að leggja sitt af
mörkum til þess að draga úr of-
þenslu. Áform um verulegar
skattalækkanir og miklar fram-
kvæmdir gangi í þveröfuga átt. ■
Með Avis kemst þú lengra
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú
leggur af stað – Það borgar sig
Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Innifalið í verði er ótakmarkaður akstur, trygging, vsk. og
flugvallargjald. (Verð miðast við lágmarksleigu 7 daga).
Ekkert bókunargjald - Gildir til 31. mars 2005.
Verð háð breytingu á gengi.
Benidorm kr. 1.900,- á dag m.v. A flokk
Alicante kr. 1.900,- á dag m.v. A flokk
Costa del Sol kr. 2.100,- á dag m.v. A flokk
www.avis.is
Við
gerum
betur
Spánn
AVIS Knarrarvogi 2 - 104 Reykjavík - Sími 591 4000 Fax 591 4040 - Netfang avis@avis.is
Munið Visa
afsláttinn
HANDTEKINN
Svíinn var handtekinn þegar hann hugð-
ist ganga um borð í flugvél sem var á
leið til Bretlands.
Héraðsdómur Reykjaness:
Milljóna-Svíinn dæmdur fyrir fjársvik
HAGVÖXTUR
0
2001 2002 2003 2004
8,4
0,8 -1,9
4,6
4,9
HAGVÖXTUR ÁRANNA 2001-2004
Hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi ársins
mældist 4,9 prósent og hefur ekki
mælst meiri síðan á fyrsta ársfjórð-
ungi ársins 2001.
Hjálmar Árnason:
Skoða þarf
svigrúmið
EFNAHAGSMÁL Hjálmar Árnason,
þingflokksformaður Framsóknar-
flokksins, telur lækkun virðisauka-
skatts eina leið til þess að bregðast
við aukinni verðbólgu.
„Sumir hagfræðingar hafa
reyndar haldið því fram að óráð-
legt sé að grípa til skattalækkana
þegar hitinn er sem mestur í hag-
kerfinu þar sem hún muni ýta und-
ir þensluna,“ segir Hjálmar. „Þessu
eru þó ekki allir sammála.“
Hjálmar segir þó ljóst að stjórn-
arflokkarnir hyggist lækka skatta
og skoða þurfi hvaða svigrúm gef-
ist til þess. „Jafnframt þarf að hafa
í huga að eftir því sem skattar eru
lækkaðir minnka tekjur ríkissjóðs
og þar með svigrúmið til þess að
standa undir velferðarkerfinu,“
segir Hjálmar. ■
EFNAHAGSMÁL Einar Oddur Krist-
jánsson, varaformaður fjárlaga-
nefndar, telur rétt að lækka virð-
isaukaskatt í kjölfar aukinnar
verðbólgu.
„Við lýstum því yfir í stjórnar-
sáttmálanum að við ætlum að
lækka skatta um 20 milljarða á
kjörtímabilinu,“ segir Einar Odd-
ur. „Þessi verðbólguvá sem núna
er komin upp segir mér að við eig-
um að einbeita okkur að því að
lækka virðisaukaskattinn eins
mikið og við getum.“
Að sögn Einars Odds þurfa
stjórnvöld að koma til móts við
aðila vinnumarkaðarins. „Við
þurfum að gera allt sem í okkar
valdi stendur til þess að kjara-
samningar geti haldið.“
„Lækkun virðisaukaskatts
kemur til með að lækka vöruverð
og gæti þar af leiðandi unnið gegn
verðbólgunni,“ segir Pétur Blön-
dal, formaður efnahags- og við-
skiptanefndar, þegar hugmyndir
Einars Odds eru bornar undir
hann. „Mér finnst vel koma til
greina að skoða þann flöt í ljósi
aðstæðna. Hins vegar megum við
ekki gleyma meginmarkmiði okk-
ar, sem er lækkun tekjuskatts.“
Pétur telur hins vegar ekki rétt
að einblína einungis á ríkisfjár-
málin vegna verðbólgunnar.
„Þetta er líka spurning um sparn-
aðarhegðun landsmanna, sem ég
tel ekki síður mikilvæga.“ ■
Varaformaður fjárlaganefndar:
Lækkun virðisaukaskatts í forgang
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
EINAR ODDUR KRISTJÁNSSON
Varaformaður fjárlaganefndar telur rétt að lækkun virðisaukaskatts verði sett í forgang í
ljósi verðbólguvár.
Samtök atvinnulífsins:
Vara við
rýmkun lána
EFNAHAGSMÁL „Þessi hagvöxtur á
fyrsta ársfjórðungi er að stórum
hluta til kominn vegna aukinnar
einkaneyslu og mikillar lántöku,“
segir Hannes G. Sigurðsson, að-
stoðarframkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins. „Hann er því
ekki byggður á varanlegri aukn-
ingu verðmætasköpunar.“
Hannes telur ástæðu til þess að
stjórnvöld beiti þeim ráðum sem
tiltæk eru til að reyna að stuðla að
auknu jafnvægi í efnahagskerf-
inu. „Okkur finnst ástæða til þess
að fara mjög varlega í það að
rýmka lánareglur Íbúðalánasjóðs
og auka lánveitingar til fasteigna-
kaupa,“ segir Hannes. „Stór hluti
þessarar vaxandi verðbólgu er til
kominn vegna verðhækkana á
íbúðarhúsnæði.“ ■
04-05 11.6.2004 21:05 Page 2