Fréttablaðið - 12.06.2004, Blaðsíða 6
6 12. júní 2004 LAUGARDAGUR
Skýrsla um fækkun hryðjuverka röng:
Hryðjuverkum fer fjölgandi
HRYÐJUVERK Bandarísk stjórnvöld
eru að tapa stríðinu sem þau
hófu árið 2001 gegn hryðjuverk-
um í heiminum en tölur fyrir
árið 2003 sýna mikla aukningu
hryðjuverka hvarvetna. Hefur
bandaríska utanríkisráðuneytið
dregið til baka skýrslu sem
sýndi hið gagnstæða eftir að í
ljós kom að hún var full af stað-
leysum og beinlínis röng í sum-
um atriðum. Sem dæmi sýndi
skýrslan eingöngu tölur um
hryðjuverk fram að nóvember
2003 og því vantaði tölfræði
tveggja mánaða á árinu.
Er þetta olía á eld þeirra sem
gagnrýnt hafa George Bush,
forseta Bandaríkjanna, en hann
hefur ítrekað lýst yfir að vel
gangi í baráttunni. Colin Powell,
utanríkisráðherra landsins, seg-
ir það alvarlegt að umrædd
skýrsla hafi verið röng og lang-
ur vegur sé frá því að stríðið sé
að vinnast. „Forsetinn hefur
gefið það skýrt í ljós að baráttan
heldur áfram og ljóst er að við
verðum enn frekar að spýta í
lófana.“ ■
Lögreglan á Selfossi:
Kannabis á
dvalarstað
LÖGREGLA Kona um fertugt var tek-
in á Selfossi í fyrrakvöld grunuð
um að aka undir áhrifum lyfja eða
fíkniefna. Í kjölfarið var gerð hús-
leit á dvalarstað konunnar og
fundust þar sautján grömm af
kannabis.
Konan gisti fangageymslur
lögreglunnar á Selfossi en var
sleppt að loknum yfirheyrslum í
gær. ■
RJÚPA
Rjúpnastofninn er í uppsveiflu.
Náttúrufræðistofnun:
Enn lítið
af rjúpu
FRIÐUN Uppsveifla hefur orðið í
rjúpnasofninum samkvæmt
rjúpnatalningu, á vegum Náttúr-
fræðistofnunar Íslands, í vor. Mat
Náttúrufræðistofnunar er að ekki
sé hægt að hverfa frá ákvörðun
um þriggja ára veiðibann að því
er fram kemur í fréttatilkynningu
frá stofnuninni.
Uppsveifla á stofninum var
hafin í fyrravor á friðaða svæðinu
á Suðvesturlandi en eftir að veiði-
bannið var sett gætir uppsveiflu í
nær öllum landshlutum. Þá segir
að búast megi við áframhaldandi
vexti stofnsins næstu þrjú til fjög-
ur árin. Vöxturinn er í samræmi
við væntingar sem gerðar voru til
friðunaraðgerða. Þrátt fyrir vöxt-
inn er enn tiltölulega lítið af rjúpu
í landinu. ■
■ ASÍA
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 72,64 0,61%
Sterlingspund 131,99 -0,05%
Dönsk króna 11,72 0,09%
Evra 87,12 0,01%
Gengisvísitala krónu 122,46 0,07%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 346
Velta 8.8945 milljónir
ICEX-15 2.709 -0,09%
MESTU VIÐSKIPTIN
Marel hf. 813.380
Össur hf 368.662
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 303.253
MESTA HÆKKUN
Marel hf. 5,68%
Vátryggingafélag Íslands 3,42%
Burðarás hf. 2,58%
MESTA LÆKKUN
Bakkavör Group hf. -2,53%
Actavis Group hf. -0,96%
Samherji hf. -0,93%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ 10.410,1 lokað
Nasdaq 1.999,9 lokað
FTSE 4.484,0 -0,1%
DAX 4.014,6 -0,2%
NK50 1.410,5 -0,1%
S&P 1.136,5 lokað
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
VEISTU SVARIÐ?
1Nú standa yfir kosningar í öllumlöndum Evrópusambandsins, þar sem
kosnir eru fulltrúar í eina af stofnunum
ráðsins. Hvaða stofnun er það?
2Hvaða opinbera stofnun í eiguReykjavíkurborgar hefur hækkað
gjaldskrá sína um 10% á tveimur árum?
3Hvar fór minningarathöfn um Ron-alds Reagan, 40. forseta Bandaríkj-
anna, fram í gær?
Svörin eru á bls. 50
Bandaríkjaher:
Eyðir eigin
eiturefnum
BANDARÍKIN, AP Bandarísk stjórn-
völd hafa ákveðið að láta eyða öllum
birgðum sínum af VX eiturgasinu.
VX er baneitrað og var grunur um
að Írakar ættu slík efni sem var ein
af ástæðunum sem nefnd var til
stuðnings innrás í Írak.
Búist er við að það taki tvö og
hálft ár að eyða þeim 1.269 tonnum
sem framleidd voru á árunum 1961
til 1969. Þá fyrirskipaði Richard
Nixon, nýkjörinn Bandaríkjafor-
seti, að framleiðslu þeirra skyldi
hætt. Herinn hefur aldrei notað efn-
in í hernaði en því var fyrir mistök
sprautað á kindur með þeim afleið-
ingum að 6.000 þeirra drápust. ■
HRYÐJUVERK
Ellefu létust í sprengjuárás í Afganistan í
gær en Bandaríkjamenn hafa viðurkennt
að árangur í stríði þeirra gegn hryðjuverk-
um sé lítill.M
YN
D
/A
P
TÍU LÉTUST Tíu létust þegar ráðist
var á bílalest hershöfðingja í paki-
stönsku borginni Karachi. Hers-
höfðinginn slapp hins vegar lif-
andi. Miklar róstur hafa verið í
borginni undanfarið. Stutt er síðan
25 létust í þriggja daga átökum í
kjölfar morðs á klerki í borginni.
ATVINNULÍF Baugur Group afskrifaði
ríflega 2,2 milljarða króna vegna
gjaldþrots Bonus Stores í Banda-
ríkjunum á síðasta ári, að því er
fram kom á aðalfundi félagsins í
gær. Þá hefur verið gert ráð fyrir
áætlaðri skattakvöð vegna hugsan-
legra skattbreytinga, sem gætu
fylgt í kjölfar frumskýrslu skatt-
rannsóknarstjóra, en hún var afhent
félaginu 4. júní síðastliðinn. Met-
hagnaður varð á rekstri félagsins á
síðasta ári eða 9,5 milljarðar króna.
„Ég vil ekki gefa það upp,“ sagði
Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri,
spurður um þá upphæð sem lögð
hefði verið til hliðar vegna skatt-
rannsóknarinnar. Spurður hvernig
sú upphæð væri fundin sagði Jón
Ásgeir að krafan frá skattrann-
sóknarstjóra hefði verið reiknuð út
eins og hún liti út í fyrsta umgangi.
„Við höfum andmælarétt til 25.
júní næstkomandi og teljum okkur
geta svarað þessu öllu, en gagnvart
okkar lánardrottnum teljum við
rétt að gera þetta með þessum
hætti,“ sagði hann.
Á aðalfundinum kom fram að
Baugur Group hf. er nú kjölfestu-
fjárfestir í alls 9 félögum hér á
landi og erlendis og jafngildir velta
þessara félaga um 130 milljörðum
króna á ári. Hjá þessum félögum
starfa samtals um 9.500 manns.
Miklar vonir eru bundnar við að
verðmæti hluta félagsins í þessum
fyrirtækjum eigi eftir að aukast
enda hafa þau öll verið að eflast.
Gildir það jafnt um skráðu félögin
og hin óskráðu. Í því sambandi má
benda á að EBITDA-hagnaður Oas-
is á síðastliðnu ári jafngildir um 4,5
milljörðum króna, en Baugur
Group hf. á 57% í félaginu.
Félagið hyggst auka umsvif sín
og fjárfestingar erlendis en draga
úr vægi starfsemi sinnar á Íslandi.
Baugur Group hf. hefur myndað
sterk viðskiptatengsl við margar af
virtustu fjármálastofnunum Bret-
lands og mun í samstarfi við þær
og aðra fjárfesta freista þess að
nýta margvísleg fjárfestingartæki-
færi þar í landi, einkum á sviði
verslunar og fasteignareksturs.
Fram kom á fundinum að búist
er við að endanleg skýrsla skatt-
rannsóknarstjóra verði send til rík-
isskattstjóra til afgreiðslu síðar í
sumar eða í haust. Skattrannsóknin
er sprottin upp úr lögreglurann-
sókn embættis ríkislögreglustjóra,
en sú rannsókn hófst 28. ágúst 2002
í kjölfar ásakana Jóns Geralds Sul-
lenberger í garð þeirra Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar forstjóra og
Tryggva Jónssonar, þáverandi að-
stoðarforstjóra. Báðir hafa stað-
fastlega haldið fram sakleysi sínu
og ekkert hefur komið fram hjá fé-
laginu sem bendir til þess að
stjórnendur hafi brotið á því, að
mati endurskoðenda.
jss@frettabladid.is
www.plusferdir.is
Benidorm
29.955 kr.
N E T
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára í íbúð með 1 svefnherbergi
í 7 nætur á Halley 23. júní.
Innifalið er flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli erlendis,
íslensk fararstjórn og allir flugvallarskattar.
Verð miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman 39.990 kr.
NETplús er einungis bókanlegur á www.plusferdir.is
23. júní
Verð frá
AÐALFUNDUR
Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri og Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, eftir aðal-
fundinn í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
V
A
Lagt til hliðar vegna
skattrannsóknar
Baugur Group hefur lagt til hliðar tiltekna fjárhæð vegna yfirstandandi
skattrannsóknar. Þá afskrifaði félagið 2,2 milljarða vegna gjaldþrots
Bonus Stores. Þrátt fyrir það er síðasta ár metár í rekstri félagsins.
06-07 11.6.2004 19:40 Page 2