Fréttablaðið - 12.06.2004, Qupperneq 8
8 12. júní 2004 LAUGARDAGUR
REAGAN KVADDUR
Dómkirkjan í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, var þétt setin meðan minningar-
athöfn um Ronald Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, fór fram. Þar voru meðal annarra
167 sendiherrar, 25 núverandi þjóðarleiðtogar, fjórtán utanríkisráðherrar og ellefu fyrrver-
andi þjóðhöfðingjar.
Kvikmyndamiðstöðin
braut reglugerð
Kvikmyndamiðstöð Íslands gerði ekkert formlegt mat á umsóknum Passport kvikmynda um
eftirlits- og kynningarstyrki áður en þeim var synjað. Passport kærði niðurstöðuna til mennta-
málaráðuneytisins, sem felldi annan úrskurðinn úr gildi.
STJÓRNSÝSLUKÆRA Menntamálaráðu-
neytið hefur fellt úrskurð Kvik-
myndamiðstöðvar Íslands um að
neita kvikmyndafyrirtækinu Pas-
sport um kynningarstyrk vegna
myndarinnar Þriðja nafnið úr
gildi. Kvikmyndamiðstöðinni er
gert að taka málið upp að nýju þar
sem ekkert formlegt mat fór fram
áður en ákveðið var að hafna um-
sókninni.
Einar Þór Gunnlaugsson, fram-
leiðandi og eigandi fyrirtækisins
Passport, telur að gagnrýni hans á
Kvikmyndamiðstöðina hafi ráðið
úrslitum um að hann fékk ekki
styrkinn sem og styrk um eftir-
vinnslu. Hann segir úrskurðinn
áfellisdóm yfir Laufeyju Guðjóns-
dóttur forstöðumanni og Hirti
Grétarssyni, framleiðslustjóra
Kvikmyndamiðstöðvarinnar, þar
sem bæði voru í nefnd sem vann að
gerð reglugerðar fyrir Kvik-
myndamiðstöðina.
Laufey Guðjónsdóttir, forstöðu-
maður Kvikmyndamiðstöðvar Ís-
lands, segir ákvörðun Kvikmynda-
miðstöðvarinnar ekki hafa verið
vegna gagnrýni Einars. „Þegar það
er takmarkaður sjóður og margir
umsækjendur með verðugar um-
sóknir þá, því miður, veit maður að
margir verða óánægðir og gagn-
rýna,“ segir Laufey. „Það er rétt að
kvikmyndin fékk ekki skriflega
umsögn kvikmyndaráðgjafa. Við
fengum mjög margar umsóknir og
voru margir sem biðu svara, með-
al annarra Einar.“ Laufey segir
það hafa verið mistök að ekki hafi
farið fram formlegt mat á umsókn-
inni. „Við viljum ekki meina að það
hafi að minnsta kosti verið vilj-
andi. Það lá ekki fyrir að myndin
væri tilbúin,“ segir Laufey en það
sé skilyrði fyrir kynningarstyrk.
Hratt hafi hins vegar verið unnið.
„Við vitum það núna að hún er
sannarlega tibúin, myndin, og okk-
ur ekkert að vanbúnaði að fjalla
um umsóknina aftur.“
Einar segir mikilvægt að
menntamálaráðuneytið endur-
skoði reglugerðina og geri hana ít-
arlegri til að forðast svona uppá-
komur. „Kvikmyndamiðstöð Ís-
lands verður að vera hafin yfir all-
an grun, að þar sé heiðarlega og
eðlilega að mati umsókna staðið
því heil atvinnugrein stólar á
þessa stofnun.“
gag@frettabladid.is
Bandarísk ungmenni:
Sjálfsvígum
fækkar
BANDARÍKIN, AP Sjálfsvígum banda-
rískra ungmenna hefur fækkað
undanfarin ár og aðferðirnar sem
þau beita til þess hafa breyst.
Fyrir tólf árum frömdu að
meðaltali 6,2 af hverjum hundrað
þúsund tíu til nítján ára Banda-
ríkjamönnum sjálfsvíg. Árið 2001
var tíðnin komin niður í 4,6 sjálfs-
víg á hver 100.000 ungmenni.
Algengast er að ungmenni
skjóti sig en mjög hefur aukist að
þau hengi sig eða kæfi með öðrum
hætti. Þetta á sérstaklega við
meðal tíu til fjórtán ára ung-
menna, 163 kæfðu sig árið 2001 en
90 skutu sig. ■
Þingvellir:
Nýr prestur
í sumar
KIRKJUHALD Karl Sigurbjörnsson,
biskup Íslands, hefur falið sr.
Kristjáni Val Ingólfssyni prests-
þjónustu í Þingvallaprestakalli til
loka ágústmánaðar. Mun hann
meðal annars sinna helgihaldi á
Þingvöllum yfir sumarmánuðina
en það verður með fjölbreyttum
hætti og verður leitast við að
koma til móts við þarfir þeirra er
sækja þennan þjóðarhelgidóm.
Auk guðsþjónustu í Þingvalla-
kirkju á sunnudögum verður fjöl-
breytt helgihald í sumar. Verður það
á íslensku, ensku og þýsku. Dagskrá
þess hefur verið unnin í samráði við
þjóðgarðsvörð á Þingvöllum. ■
ÞINGVALLAPRESTUR
Sr. Kristján Valur Ingólfsson mun sjá um
prestsþjónustu á Þingvöllum í sumar.
LAUFEY GUÐJÓNSDÓTTIR
Forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Ís-
lands segir brot á reglugerð ekki viljandi
og ekkert sé að vanbúnaði að fjalla aftur
um kvikmyndina Þriðja nafnið.
ÚTFLUTNINGUR Færi hross voru flutt
út á fimm fyrstu mánuðum þessa
árs en á sama tímabili í fyrra. Þá
höfðu verið flutt út 619 hross á móti
591 nú.
Ef litið er á útflutning til hinna
ýmsu landa hafa verið flutt 30
hross til Austurríkis á móti 17 á
sama tíma í fyrra. Samtals 116 hafa
farið til Þýskalands nú á móti 91 í
fyrra. Til Danmerkur hafa nú verið
seld 94 hross en voru 74 í fyrra.
Samdráttur hefur aftur orðið á
Svíþjóðarmarkaði. Þangað fóru 235
hross á fyrstu fimm mánuðum síð-
asta árs, en 178 í ár. Sala til Noregs
hefur einnig dregist saman það sem
af er árinu, því í fyrra fóru þangað
86 hross, en 43 í ár. ■
ÚTFLUTNINGUR
Færri hross hafa verið flutt út fyrstu fimm
mánuði þessa árs en á sama tíma í fyrra.
Útflutningur til ýmissa landa:
Færri hross en í fyrra
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/G
VA
SVONA ERUM VIÐ
Heimild: Svar landbúnaðarráðherra
við fyrirspurn Kristjáns L. Möller.
Ár 2000 2001 2002
1
.6
7
7
.2
7
4
1
.8
9
3
.9
9
3
1
.9
5
1
.7
0
8
GREIÐSLUR TIL SAUÐFJÁRBÆNDA
Beinar greiðslur sveitarfélaga til sauðfjár-
bænda í þúsundum króna.
Þorsteinn Pálsson heimsótti Reagan 1988:
Mjög skýr markmið
MINNING „Það var mér alveg ljóst í
þessum samtölum að það var ekki til-
viljun ein að hann hafði náð þessari
lýðhylli og þessum áhrifum í Banda-
ríkjunum,“ segir Þorsteinn Pálsson,
fyrrverandi forsætisráðherra, um
Ronald Reagan, fyrrverandi Banda-
ríkjaforseta, sem hann ræddi við í op-
inberri heimsókn til Bandaríkjanna
árið 1988. Þorsteinn var eini íslenski
forsætisráðherrann sem hitti Banda-
ríkjaforseta að máli í Hvíta húsinu.
„Hann hafði greinilega mjög skýr
markmið. Var ef til vill ekki best allra
manna að sér í smáatriðum og hafði
litla miða í lófanum til að styðjast við
þegar kom að slíkum hlutum en hans
hugmyndafræði og markmið voru
greinilega mjög skýr,“ segir Þorsteinn
um Reagan. „Þó
að endalok kalda
stríðsins hafi ef
til vill verið
spurning um tíma
er engum vafa
undirorpið að
hans staðfesta og
hans klára hugs-
un í þeim efnum
réði mestu um
hversu fljótt dró
til loka kalda stríðsins.“
Á fundi sínum ræddu Þorsteinn og
Reagan fyrst og fremst stöðu varnar-
liðsins og varnarsamstarfið, en ein-
nig möguleika á afnámi vegabréfsá-
ritunar sem varð veruleiki upp úr
þessari heimsókn.■
ÞORSTEINN PÁLS-
SON
Fundaði með Ronald
Reagan 1988.
LÖGREGLUMÁL Maður um þrítugt
var í gær í Héraðsdómi Reykja-
víkur úrskurðaður í tveggja
vikna gæsluvarðhald, grunaður
um aðild að stóru fíkniefnamáli,
þar sem maður var handtekinn í
Leifsstöð 24. maí síðastliðinn
með eitt kíló af amfetamíni og
annað eins af kókaíni. Meintur
samverkamaður var handtekinn
síðdegis í fyrradag og yfir-
heyrður í gær. Það leiddi síðan
til þess að hann var úrskurðaður
í gæsluvarðhald. Umræddur
maður er af höfuðborgarsvæð-
inu. Hann hefur áður komið við
sögu í fíkniefnamálum og verið
dæmdur fyrir.
Upphaf þessa máls er að
Tollgæslan á Keflavíkurflug-
velli fann fíkniefnin við eftirlit
á íslenskum manni sem var að
koma frá Kaupmannahöfn þann
24. maí. Hafði hann falið efnin
innanklæða á nokkrum stöðum
en hafði ekki límt þau á lík-
amann eins og gjarnan er gert
þegar um er að ræða tilraunir
til smygls af þessu tagi. Maður-
inn reyndist vera með eitt kíló
af kókaíni og eitt kíló af am-
fetamíni. Er þetta mesta magn
þessara efna sem einn maður
hefur reynt að smygla inn í
landið til þessa. Hann var úr-
skurðaður í 3 vikna gæsluvarð-
hald í Héraðsdómi Reykjavíkur
daginn eftir komuna til lands-
ins.
Umræddur maður er 39 ára.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins hefur hann gerst brotlegur
við lög áður.
Fíkniefnalögreglan verst
frekari frétta af málinu, en rann-
sókn stendur enn yfir. ■
LEIFSSTÖÐ
Maðurinn með tvö kíló af hörðum fíkniefnum
innanklæða var handtekinn í flugstöðinni.
Línur í stóra amfetamín- og kókaínmálinu að skýrast:
Maður um þrítugt í gæsluvarðhald
London og París:
Vilja banna
umferð jeppa
UMFERÐARMÁL Jeppaeigendur í
París munu eiga um sárt að
binda árið 2006 ef nýjar hug-
myndir innan borgarstjórnar
Parísar ganga eftir um að banna
akstur allra jeppa í borginni. Er
forsendan sú að létta örlítið á
hinni gríðarlegu umferð sem
teppir götur borgarinnar oft á
dag og eru rökin þau að enginn
þurfi á jeppa að halda í borgum.
Eru þetta sama viðkvæði og hjá
borgarstjóra London fyrir
nokkru þegar hann sagði að
jeppar væri slæmir og ónauð-
synlegir með öllu í borgarum-
ferð. ■
08-09 11.6.2004 19:39 Page 2