Fréttablaðið - 12.06.2004, Page 12
Breska þingið felldi fyrr á árinulagafrumvarp þess efnis að
setja skyldi í lög skilyrði um lág-
marksþátttöku í þjóðaratkvæða-
greiðslu ef telja ætti hana gilda.
Þótti það ólýðræðislegt að krefjast
þess að helmingur kosningabærra
manna þyrfti að mæta á kjörstað
svo kosningin teldist gild.
Breska ríkisstjórnin var mót-
fallin hugmyndinni. Í máli full-
trúa stjórnarinnar á þinginu kom
fram að það væri „rangt“ að setja
þessi skilyrði. „Það væri of stíf og
ósveigjanleg nálgun að setja skil-
yrði um helmingsþátttöku í öllum
þjóðaratkvæðagreiðslum undir
hvaða kringumstæðum sem er.
Mikilvægt er að hver þjóðar-
atkvæðagreiðsla sé skoðuð á eigin
forsendum. Í grundvallaratriðum
er það rangt að hafa skilyrði um
lágmarksþátttöku og gefa þannig
þeim sem kjósa ekki synjunarvald
í raun.“ Þeir gætu hafnað lögum
með því að mæta ekki á kjörstað.
„Er það algjörlega ólýðræðisleg
nálgun. Þeir sem vildu að mál yrði
fellt gætu haft uppi áróður sem
hvetti fólk til að mæta ekki á kjör-
stað.“
Utanaðkomandi þættir
verða mikilvægari
Skilyrði um lágmarksþátttöku
voru einnig til umræðu í Bret-
landi 1996. Var þá skipuð nefnd
um málið. Í niðurstöðum hennar
segir meðal annars að helsta
vandamálið við að setja skilyrði
um lágmarksþátttöku liggur í því
að ákveða hvaða hlutfall eigi að
velja. Hvort setja eigi mörkin við
til að mynda 60%, 65% eða 75%.
Ef ætlunin með þjóðar-
atkvæðagreiðslunni er að fá lög
staðfest vandast málið enn frekar,
segir jafnframt í skýrslu nefndar-
innar. Sumir kjósendur gætu talið
að með því að nýta ekki atkvæðis-
rétt sinn séu þeir í raun að kjósa
gegn málinu sem kosið er um.
„Því gætu skilyrði um lágmarks-
þátttöku valdið misskilningi hjá
kjósendum og framkalla niður-
stöður sem væru ekki í samræmi
við ætlun kjósenda,“ segir í
skýrslunni. Þá er bent á að skil-
yrði um lágmarksþátttöku geri ut-
anaðkomandi þætti mikilvægari,
svo sem veður á kjördag eða dag-
setningu kosninganna.
Þátttökuskilyrði til verndar
stjórnarskrá
Umræðan um skilyrði um lág-
marksþátttöku í þjóðaratkvæða-
greiðslum í Bretlandi hófst 1975
er fyrsta og eina þjóðaratkvæða-
greiðsla landsins til þessa var
haldin. Í skýrslu sem unnin var af
því tilefni kom fram að hægt væri
að færa rök fyrir því að setja ætti
skilyrði sem þessi. Því mætti
halda fram að einfaldur meiri-
hluti, sem tölfræðilega gæti ráðist
af einu atkvæði, nægði ekki í svo
stórum málum sem þjóðar-
atkvæðagreiðsla yrði haldin um.
Hægt væri að setja skilyrði um að
fyrirfram ákveðinn meirihluta
þyrfti annaðhvort til að fella eða
samþykkja málið. Fordæmi séu
fyrir slíku í öðrum löndum, en það
sé yfirleitt í því skyni að ekki sé
of auðvelt að knýja í gegn breyt-
ingar á stjórnarskrá.
Í skýrslunni segir jafnframt að
ríkisstjórnin geri sér grein fyrir
því að mikilvægt sé að góð þátt-
taka sé í þjóðaratkvæðagreiðslu
og sé hún sannfærð um að svo
verði. Einnig skipti það afar miklu
að útkoman sé skýr og afgerandi.
Þó sé það vilji ríkisstjórnarinnar
að setja ekki sérstök skilyrði um
þátttöku eða aukinn meirihluta.
Það verði að fallast á það að úrslit
í atkvæðagreiðslu geti ráðist af
einu atkvæði.
Mikil umræða var um málið á
þinginu. Þingmaður Íhaldsflokks-
ins vildi að sett yrðu ákvæði í lög
að ef færri en sex af hverjum tíu
á kjörskrá mættu ekki á kjörstað
yrði kosningin gerð ógild. Einnig
vildi flokkurinn að ná þyrfti aukn-
um meirihluta til að fella eða sam-
þykkja mál og miða ætti við tvo
þriðju hluta atkvæða. Ríkisstjórn-
in var þessu mótfallin og var til-
laga þingmannsins felld.
Reglur í öðrum löndum
Í öðrum löndum er algengt að
aukinn meirihluta kjósenda þurfi
til að samþykkja breytingu á
stjórnarskrá.
Í Austurríki er skylt að halda
þjóðaratkvæðagreiðslu við al-
gjöra endurskoðun stjórnarskrár-
innar. Ef um endurskoðun á hluta
getur þriðjungur þingmanna farið
fram á þjóðaratkvæðagreiðslu.
Í Frakklandi verður að halda
þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórn-
arskrárbreytingar nema ef þrír
fjórðu hlutar beggja deilda þings-
ins greiði atkvæði með breyting-
unum. Forseti Frakklands, sem er
höfuð ríkisstjórnarinnar, getur
boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu
hvenær sem er.
Á Ítalíu er ekki skylt að halda
þjóðaratkvæðagreiðslu um breyt-
ingu á stjórnarskrá. Hins vegar
kemur það til greina og einnig ef
hálf milljón kjósenda fer fram á
þjóðaratkvæðagreiðslu, fimmti
hluti annarrar deildar þingsins
eða fimm sveitarstjórnir. Ekki er
þó hægt að krefjast þjóðarat-
kvæðagreiðslu ef málið sem um
ræðir hefur verið samþykkt af
tveimur þriðju meirihluta beggja
deilda þingsins.
Á Spáni þarf að fara fram þjóð-
aratkvæðagreiðsla við algjöra end-
urskoðun stjórnarskrár. Einnig ef
einungis hluti er endurskoðaður, sé
um tiltekin grundvallaratriði
stjórnarskrárinnar að ræða. Hægt
er að boða þjóðaratkvæðagreiðslu
um önnur mál ef þess er krafist af
tíunda hluta þingmanna í hvorri
deild þingsins sem er.
Fordæmi um lög um
þjóðaratkvæðagreiðslu
Fordæmi eru fyrir lögum um
lágmarksþátttöku í þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Á Ítalíu gilda
þær reglur að helmingur kjós-
enda plús einn verði að mæta á
kjörstað svo kosningin teljist gild.
Í Danmörku er þess krafist að
fjórir af hverjum tíu á kjörskrá
verði að veita samþykki sitt fyrir
breytingum á stjórnarskrá. Þar
gilda einnig þau lög að þriðjungur
þingsins geti krafist þjóðar-
atkvæðagreiðslu um lög sem
samþykkt hafa verið á þinginu.
Til þess að fella lögin þarf meiri-
hluti kjósenda að greiða atkvæði
gegn þeim, þeir þurfa þó að vera
fleiri en 30% þeirra sem eru á
kjörskrá.
Engin lög eru í Noregi um þjóð-
aratkvæðageiðslu. Sett voru sér-
stök lög um þjóðaratkvæða-
greiðsluna sem fram fór 1994 þar
sem kosið var um hvort Noregur
ætti að ganga í Evrópusambandið.
Þar réð einfaldur meirihluti nið-
urstöðunni, er 52,2 prósent sögðu
nei og 47,8 prósent já. ■
12 12. júní 2004 LAUGARDAGUR
EFNAFRÆÐIPRÓF Í AFGANISTAN
Skólakerfið í landinu er frumstætt miðað
við íslenska mælikvarða en grettistaki hef-
ur þó verið lyft í menntunarmálum síðan
stjórn talibana hraktist frá völdum.
Tíu ára afmæli Reykjanesbæjar:
Þakkar sameiningunni
góða stjórnsýslu
AFMÆLI „Besta afmælisgjöfin er
líklega mjög góð niðurstaða í
svokölluðu Bertelsmannsprófi
sem er alþjóðlegur mælikvarði á
gæði í stjórnsýslu,“ sagði Árni Sig-
fússon, bæjarstjóri Reykjanesbæj-
ar, á tíu ára afmæli bæjarins í gær.
Árni segir Bertelsmannsprófið
sýna að sveitarfélagið standi sig
mjög vel í stjórnsýslu og þakkar
hann það sameiningu sveitarfé-
laganna þriggja fyrir tíu árum
síðan. Hann segir alveg ljóst að
niðurstaðan úr prófinu hefði ekki
verið svona góð ef sveitarfélagið
væri minna, en um ellefu þúsund
manns búa í sveitarfélaginu.
Margt komi til og þá helst kostn-
aður tengdur þjónustu.
Árni sagði góða stemningu
vera í bænum enda alltaf gaman í
tíu ára afmælum. „Við vildum
hafa afmælið alþýðlegt og fá okk-
ur kaffitár með bæjarbúum og
landsmönnum. Hér hefur veðrið
líka verið mjög fallegt,“ sagði
Árni. Fyrir krakkana var settur
upp hoppukastali og þrautabraut í
skrúðgarðinum auk annarra uppá-
koma. Þá var opnuð sýning á
byggðasafninu. Á sýningunni eru
bornir saman gamlir og nýir tím-
ar og stendur hún yfir í eitt ár. ■
Skilyrði um lágmarks-
þátttöku ólýðræðisleg
Breska þingið hafnaði frumvarpi um lög um lágmarksþátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslu. Lögin
voru sögð ólýðræðisleg. Þeim sem mættu ekki á kjörstað yrði þar með gefið synjunarvald.
■ EVRÓPA
HVALSKURÐUR
Gert að hrefnu í fiskbúðinni Sæbjörg.
Hrefnuveiðar:
Þrjú dýr
veidd
HVALVEIÐAR Búið er að veiða þrjár
hrefnur það sem af er sumri af
þeim 25 sem stendur til að veiða í
ár. Í fyrra tók það þrjú skip hálfan
annan mánuð að veiða dýrin. Sam-
kvæmt upplýsingum sem fengust
frá Hafró eru dýrin af svipaðri
stærð og þau sem veiddust í fyrra
en þau þóttu í magrara lagi.
Samkvæmt vísindaáætlun
stendur til að veiða alls 200
hrefnur, 200 langreyðar og 100
sandreyðar. Óvíst er hvenær
veiðar á lang- og sandreyðum
hefjast en líklega verða gömlu
hvalveiðibátarnir notaðir þegar
þar að kemur. ■
BIÐJA UM FRAMSAL Spænska rík-
isstjórnin hefur farið þess á leit
við Ítali að Rabei Osman Sayed
Ahmed verði framseldur. Hann
var handtekinn á dögunum og er
grunaður um að vera höfuðpaur
hryðjuverkaárásanna í Madríd
11. mars.
TILNEFNDUR Á NÝ Þrátt fyrir að
pólska þingið hafi neitað að stað-
festa stjórn undir forsæti Marek
Belka í síðasta mánuði vonast
Aleksander Kwasniewski forseti
til þess að hann verði forsætis-
ráðherra. Hann hefur því tilnefnt
Belka aftur sem forsætisráð-
herra og verður þingið að kjósa
um hann á næstu vikum.
KJÓSA FORSETA Litháar kjósa sér
forseta um helgina. Kjósa verður
forseta í stað Rolandas Paksas,
sem var rekinn úr embætti sak-
aður um að hafa uppljóstrað um
ríkisleyndarmál og tengjast rúss-
nesku mafíunni. Valdus Adam-
kus, fyrrum forseti, þykir sigur-
stranglegastur.
M
YN
D
/A
P
Land 1. 2. 3. 4. 5. 6.
Austurríki Já Já (1) Já Ríkisstjórn eða minnihluti löggjafans Nei Bindandi
Belgía Nei Nei Nei Ríkisstjórn Nei Til viðmiðunar
Bretland Nei Nei Nei Ríkisstjórn Já Til viðmiðunar
Danmörk Já Já Já Minnihluti löggjafans Já Bindandi
Finnland Já Nei Já Ríkisstjórn Nei Til viðmiðunar
Frakkland Já Já (2) Já Ríkisstjórn (3) Nei Bindandi
Grikkland Já Nei Já Þjóðhöfðingi Nei Bindandi
Holland Nei Nei Nei Á ekki við Nei Á ekki við
Írland Já Já Já Þjóðhöfðingi eða minnihluti löggjafans Já Bindandi
Ísland Já Nei (4) Já Þjóðhöfðingi Nei Bindandi
Ítalía Já Nei (5) Já Ákveðið hlutfall kjósenda (6) Já Bindandi
Noregur Nei Nei Nei Ríkisstjórn Nei Bindandi
Portúgal Já Nei Já Þjóðhöfðingi Nei Bindandi
Spánn Já Já (7) Já Ríkisstjórn Nei Bindandi
Sviss Já Já Já Ákveðið hlutfall kjósenda Já Bindandi
Svíþjóð Já Nei Já Ríkisstjórn eða minnihluti löggjafans Já Bindandi og til viðmiðunar
Þýskaland Já Nei Nei Á ekki við Nei Bindandi
1. Er þjóðaratkvæða-
greiðsla nefnd í
stjórnarskrá?
2. Er skylt að halda
þjóðaratkvæða-
greiðslu vegna breyt-
inga á stjórnarskrá?
3. Er þjóðaratkvæða-
greiðsla nefnd í
stjórnarskrá vegna
lagasetninga er varða
ekki stjórnarskrár-
breytingar?
4. Hver boðar? 5. Eru ákvæði um
einfaldan meirihluta?
6. Eru niðurstöður
bindandi eða til við-
miðunar?
(1) Við algjöra endurskoðun stjórnarskrárinnar. Við endurskoðun á hluta getur þriðjungur þingmanna farið fram á þjóðaratkvæðagreiðslu.
(2) Annar möguleikinn. Hinn er sá að þingdeildirnar tvær sameinist um 75% meirihluta.
(3) Forsetinn, sem jafnframt situr yfir ríkisstjórninni, getur boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu hvenær sem er.
(4) Aðeins þegar breyta á stöðu kirkjunnar.
(5) Einn möguleiki. Aðrir eru ef hálf milljón kjósenda fer fram á þjóðaratkvæðagreiðslu eða fimmti hluti annarrar deildar þingsins eða fimm sveitarstjórnir.
Ekki er þó hægt að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu ef málið sem um ræðir hefur verið samþykkt af meirihluta að tveimur þriðju beggja deilda þingsins.
(6) Fimm sveitarstjórnir eða hálf milljón kjósenda.
(7) Við algjöra endurskoðun eða að hluta til ef um ákveðin grundvallaratriði er að ræða. Hægt er að boða þjóðaratkvæðagreiðslu um önnur mál ef þess er
krafist af tíunda hluta þingmanna í hvorri deild þingsins sem er.
ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLUR SAMKVÆMT STJÓRNARSKRÁM Í LÖNDUM Í VESTUR-EVRÓPU
SIGRÍÐUR D. AUÐUNSDÓTTIR
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
LÖG UM ÞJÓÐAR-
ATKVÆÐAGREIÐSLU
Kennaraháskólinn:
Metaðsókn
MENNTAMÁL Annað árið í röð er
metaðsókn í Kennaraháskóla Ís-
lands. Nemendur skólans eru nú
rúmlega 2300 og hefur fjölgað
verulega á síðustu árum, að því er
segir í frétt frá skólanum.
Umsóknir um nám hafa aldrei
verið fleiri en nú í vor. Því miður
verður aðeins hægt að bjóða tæp-
lega helmingi þessa hóps skóla-
vist vegna fjárhagsramma skól-
ans.
Alls bárust 1825 umsóknir um
nám við Kennaraháskólann skóla-
árið 2004-2005. Af þeim voru 1497
um nám í grunndeild og verður
um 660 boðin skólavist. Umsóknir
um nám í framhaldsdeild voru 334
og hefur 235 umsækjendum þegar
verið boðin skólavist. ■
ÁRNI SIGFÚSSON
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar sagði góða
stemningu í bænum á tíu ára afmælinu.
M
YN
D
V
ÍK
U
RF
RÉ
TT
IR
12-13 11.6.2004 21:56 Page 2