Fréttablaðið - 12.06.2004, Blaðsíða 14
FISKELDI Tvær fiskikvíar í Hval-
firði gegnt álveri Norðuráls hafa
vakið athygli margra vegfarenda
um Hvalfjörðinn síðustu mánuði
og hafa þeir bent Fréttablaðinu á
að fyrir utan nálægð álversins
við kvírnar séu viðkvæmar lax-
veiðiár í grenndinni. Samkvæmt
upplýsingum blaðsins er þarna
um þorskeldi að ræða í annarri
kvínni en hin stendur auð. Hætta
er því ekki á ferðum enda hefur
sá einstaklingur sem að þessu
stendur öll tilskilin leyfi. Ekki
náðist í eigandann sjálfan svo
óvíst er hvort hann hyggst halda
þorskeldi sínu þarna áfram. ■
14 12. júní 2004 LAUGARDAGUR
BUDWEISER Í PEKING
Pekingbúi hjólar fram hjá auglýsingaskilti
bandaríska bjórframleiðandans Budweiser
í gær. Framleiðendur bjórsins yfirtóku í
síðustu viku eina stærstu bjórverksmiðju
Kína en mikil barátta stendur yfir um
þennan fjölmennasta bjórmarkað heims.
Frjálshyggjufélagið:
Hvetur stjórnvöld til að
hafna reykingalöggjöf
REYKINGAR Frjálshyggjufélagið
hvetur stjórnvöld til að hafna öll-
um hugmyndum um sérstaka lög-
gjöf um reykingar í fréttatilkynn-
ingu sem félagið sendi út. Þar seg-
ir að slík löggjöf sé óþörf þar sem
eignarréttur leysi allan þann
vanda sem reykingar kunna að
valda öðrum en reykingamönnum.
Eigendur heimila, veitingastaða
og annarra bygginga eiga sjálfir
ákvörðunarrétt um hvort reykt sé
á eignum þeirra eða ekki. Þá bend-
ir félagið á að ekki megi gleyma
því að reykingar valdi fólki
ánægju en kunni jafnframt að
valda því skaða. Sama gildi þó um
sykur, majones og aðrar neyslu-
vörur sem kunna að valda offitu og
hjartasjúkdómum.
Segir félagið að niðurstöður
skoðanakannana sem segja að þrír
af hverjum fjórum vilji reyklaus
kaffihús sé ekki merki um að setja
þurfi sérstök lög. Frekar vísbend-
ing um að mikil eftirspurn sé eftir
slíkum kaffihúsum. Þá segir að
smekkur meirihlutans sé ekki rök-
stuðningur fyrir frelsisskerðingu
minnihlutans. ■
Indland:
HIV-sýkt börn
eftir blóðgjöf
ALNÆMI Eftirlit með indverskum
blóðbönkum hefur verið hert til
muna eftir að fregnir bárust af því
að 30 börn hefðu smitast af HIV-
veirunni við blóðgjöf á síðustu
þremur árum. Fjölmiðlar í Kalkútta
greindu frá því að börn niður í þrig-
gja ára hefðu smitast en alls eru 58
blóðbankar starfræktir á vegum yf-
irvalda í Kalkútta.
Talið er að 610 þúsund hafi smit-
ast af HIV í fyrra en fjöldi smitaðra
á Indlandi er talinn vera um 4,5
milljónir. Hvergi í heiminum eru
jafn margir smitaðir af HIV-
veirunni, ef frá er talin Suður-Afr-
íka. ■
KB banki:
Styrkir 15
námsmenn
STYRKIR Fimmtán námsmenn sem
stunda nám á háskólastigi hafa
fengið 200 þúsund
kr. hver úr Náms-
mannalínu KB
banka en styrkirnir
eru veittir árlega.
Er þetta fjórtánda
árið sem bankinn
veitir styrki úr
Námsmannal ín -
unni.
Í ár barst bank-
anum 451 umsókn sem er mikil
aukning frá því í fyrra en þá sóttu
335 námsmenn um námsstyrk.
Að þessu sinni ganga fimm út-
skriftarstyrkir til stúdenta við Há-
skóla Íslands, þrír útskriftarstyrkir
til nemenda í íslenskum sérskólum
og sjö námsstyrkir til íslenskra
námsmanna erlendis. ■
LANDBÚNAÐUR Kálfadauði er vax-
andi vandamál á íslenskum búum
og hefur aukist umtalsvert allra
síðustu ár. Baldur H. Benjamíns-
son, nautgriparæktarráðunautur
hjá Bændasamtökum Íslands,
segir það ekki hafa verið fyrr en
fyrir um áratug síðan að meira fór
að bera í milli í samanburði við
önnur lönd. „Síðustu fimm árin
hefur svo sigið dálítið á ógæfu-
hliðina og við vitum ekki af hver-
ju það stafar. Þetta er svo geysi-
lega flókið kerfi þarna að baki,
það er ekkert eitt sem setur allt úr
skorðum heldur eru þetta sam-
verkandi þættir,“ segir Baldur. Í
máli hans kom fram að í fyrra
hafi að jafnaði um 15 prósent
nautkálfa fæðst dauðir og um 12
prósent kvígukálfa. „En svo er
þetta mjög breytilegt eftir búum.
Til eru bú þar sem vanhöld eru
nánast engin og svo allt upp í 20 til
30 prósent vanhöld annars stað-
ar.“ Baldur segir menn velta fyrir
sér mögulegum ástæðum þessar-
ar þróunar, búið sé að útiloka
sjúkdóma og því horft til um-
hverfisþátta svo sem fóðrunar
annarra þátta. „Svo vitum við líka
að skyldleikaræktun í stofninum
eykst frá ári til árs og hefur ör-
ugglega einhver neikvæð áhrif.
Hún eykst hins vegar mjög hægt
og getur ekki skýrt allan þennan
breytileika,“ segir Baldur en bæt-
ir við að í Danmörku hafi bændur
komist fyrir sambærileg vanda-
mál með kynbótum. ■
UNDARLEGIR NÁGRANNAR
Einn viðmælenda blaðsins sagðist ætla að sleppa þorskáti á næstunni og halda sig við pasta.
Undrun margra hefur verið vakin vegna fiskikvía í Hvalfirði:
Þorskeldi við hlið stóriðju
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/G
VA
REYKINGAR
Frjálshyggjufélagið segir að þó að þrír af
hverjum fjórum vilji reyklaus kaffihús sé það
ekki merki um að setja þurfi sérstök lög.
Hýr hjónabönd:
Bæjarstjóri
sýknaður
BANDARÍKIN, AP Líkurnar á því að
Jason West, bæjarstjóri í New Paltz
í New York-ríki, fari í fangelsi fyrir
að gefa samkynhneigð pör saman
minnkuðu heldur þegar dómari vís-
aði ákæru á hendur honum frá
dómi. Ákæruvaldið getur þó áfrýjað
úrskurðinum.
„Ef sagan segir okkur eitthvað
er þetta upphafið að breytingum í
New York ríki sem ekki verður snú-
ið við,“ sagði West, sem gaf saman
hátt í 30 samkynhneigð pör í febrú-
ar þegar deilur um rétt samkyn-
hneigðra til að ganga í hjónaband
stóðu sem hæst. Hann var ákærður
fyrir að gefa pör saman þó þau
hefðu ekki hjúskaparleyfi.
Hjónabönd samkynhneigðra
hafa verið mikið hitamál i
Bandaríkjunum síðustu misseri.■
Bændur hafa áhyggjur af auknum kálfadauða:
Sigið á ógæfuhlið
síðustu fimm ár
KÁLFUR
Unnið er að rannsóknum á vegum
Bændasamtaka Íslands til að grafast fyrir
um ástæður vaxandi kálfadauða. Síðustu
ár hefur þróunin hér á landi verið á annan
og verri veg en í nágrannalöndunum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
RL
IN
G
U
R
KR
IS
TE
N
SS
O
N
HÁSKÓLI
ÍSLANDS
SKJALDARMERKI HÖFUÐBORGARINNAR
Vinnuflokkur á vegum Reykjavíkurborgar vann að því í vikunni að mynda skjaldarmerki
höfuðborgarinnar með blómum í Ártúnsbrekkunni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
PJ
ET
U
R
14-15 11.6.2004 18:05 Page 2