Fréttablaðið - 12.06.2004, Side 28
Á dögunum voru gerðar stærstu bílaprófanir sem um getur og komu
bílarnir Volvo XC90 og S40 best út úr þeim. Volvo XC90 var einnig valinn
bíll ársins 2004 í tímaritinu Fleet News en hann var valnn bíll ársins í fyrra
af tímaritinu Auto Express. Brimborg er umboðsaðili Volvo á Íslandi.
Hollráð
Kaup á notuðum bíl:
Mikilvægt að
prufukeyra
Þegar bíll er keyptur, hvort sem hann er
notaður eða nýr, er mjög mikilvægt að
prufukeyra hann. Áður en farið er í
aksturinn er gott að spyrja bílasalann í
þaula um bílinn, kosti hans og galla.
Eindregið er mælt með því að kaup-
endur skoði bílinn vel og vandlega að
innan fyrir og eftir prufukeyrsluna,
þannig er hægt að sannreyna ástand
bílsins og staðfesta þau svör sem bíla-
salinn gaf fyrir prufukeyrsluna.
Munið að ástand notaðs bíls, og
hvernig um hann var séð áður, er alveg
jafn mikilvægt og tegund, aukabúnaður
eða stærð þegar hann var nýr. Við
prufukeyrsluna er gott að líta eftir
smærri vandamálum sem gætu lækkað
bílinn í verði.
Bæjarflöt 10 · 112 Reykjavík · Sími 567 8686
BÍLAMÁLUN OG RÉTTINGAR
Komdu beint til okkar!
– og við tjónaskoðum í hvelli
þér að kostnaðarlausu!
Nýir tímar fyrir tjónaþola:
Það skiptir engu
máli hvernig bíl þú ert á!
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
Góð ráð
JÓN HEIÐAR ÓLAFSSON UPPLÝSIR
AÐ GUFUR ÚR PÚSTRÖRINU SEGI
MIKIÐ UM ÁSTAND MÓTORSINS.
Gufurnar sem koma úr púst-
rörinu á bílnum geta sagt mikið
til um ástand mótorsins. Til
dæmis þegar bíll tekur upp á því
að gefa frá sér blágráan reyk
þegar honum er startað á morgn-
ana, þá er það merki um að það
hafi komist olía inn í sprengihólf
(cylinder) vélarinnar á meðan
bíllinn stóð ónotaður alla nóttina.
Á meðan vélin brennir þetta
af sér myndast blár reykur. Lík-
legast er að olían hafi komist
niður eftir ventlunum, en það
gefur til kynna að ventlastýring-
arnar séu orðnar lélegar. Þó svo
að svona sé komið er engin
ástæða til að hafa miklar áhyggj-
ur ef þetta varir bara í stutta
stund. Þetta ástand hefur engin
áhrif á gang vélarinnar eða þjöp-
pu mótorsins. Að gefa frá sér
smá reyk á morgnana er ekkert
ólíkt því að komast framúr á
morgnana, maður er svona
aðeins stirðari með árunum en
eftir smástund virkar allt eðli-
lega og maður er kominn í gang.
Vantar þig góð ráð? Sendu póst á
bilar@frettabladid.is
Mikilvægt er að athuga ástand bíls
áður en farið er út í kaup á honum.
Blæjubílar eru æ algengari sjón á götum borgarinn-
ar. Hörður Már Harðarson bílasali er eigandi blæju-
bíls af gerðinni Camaro SS Xenon árgerð 2001. Bíl-
inn keypti hann í fyrrasumar og fékk hann á góðu
verði. „Ég er bílasali hjá fyrirtæki sem heitir Bílar
og List og við notum bílinn sem auglýsingu fyrirtæk-
isins og einnig bara til að njóta á góðum degi,“ segir
Hörður Már. Hann telur ómissandi að setja blæjuna
niður á góðviðrisdögum og vill ekki meina að honum
verði neitt kalt þó að hann keyri þannig um göturnar.
„Svona bílar eru miklu vandaðri í dag en þeir voru
hér áður fyrr. Á sólskinsdegi um hávetur er ekkert
mál að hafa blæjuna niðri, þá setur maður bara mið-
stöðina í gang og líður ljómandi vel í bílnum,“ segir
hann. Hörður Már segist fá mikla athygli út á bílinn
og þá sérstaklega frá kvenþjóðinni. „Stelpurnar eru
veikar fyrir bílnum og hef ég að sjálfsögðu bara
gaman af því,“ segir hann.
Haraldur Hannesson, sölumaður hjá Ræsi hf.,
telur töluverða aukningu hafa orðið á innflutningi
nýrra og notaðra sportbíla og þar á meðal blæjubíla.
„Eftir að snjór fór að minnka á Íslandi fóru þeir sem
voru mikið á vélsleðum að snúa sér frekar að mótor-
hjólum og sportbílum. Þetta er meðal annars ástæða
þess að eftirspurn eftir báðum farartækjum hefur
aukist á undanförnum árum,“ segir Hörður. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
„Stelpurnar eru veikar fyrir bílnum og hef ég að sjálfsögðu bara
gaman af því,“ segir Hörður Már Harðarson blæjubílaeigandi.
Blæjubílar vinsælir hér á landi:
Gengur í augun
á stelpunum
smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
Pústið segir sögu
smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
28-29 (2-3) bílar ofl 11.6.2004 15:17 Page 2