Fréttablaðið - 12.06.2004, Blaðsíða 40
28 12. júní 2004 LAUGARDAGUR
„Strákar! Þar sem búið er að opna
og viðskiptavinir farnir að strey-
ma inn, eruð þið þá til í að halda
ykkur inni í búningsklefunum svo
þið sjáist ekki?“ kallar Pétur
Ívarsson, eigandi Hugo Boss í
Kringlunni, fram í búðina þar sem
standa þrír áberandi fallegir
strákar, vel púðraðir, með gljá-
andi varasalva og svarta augn-
málningu til að undirstrika marg-
litar augnstjörnurnar sem skjóta
gneistum á þessum sólríka sumar-
morgni.
„Úff, þetta var í alvörunni nastí
og ljótt,“ segir sá fíngerðasti af
þeim, Sturla Kaspersen, standandi
í hólkvíðum jakkafatajakka og
með kolsvart hárið stíft af grjót-
hörðu geli. Upp sprettur hlátur
allra viðstaddra, enda helbert grín
hjá Pétri sem vildi aðeins fá þá
baka til svo losa mætti mátunar-
klefa fyrir viðskiptavinina.
„Já, þetta er sannarlega mikil umbreyting. Greini-
lega allt mjög skapandi strákar sem njóta þess að
klæða sig upp í litrík og skemmtileg föt, en þarna
gildir þumalputtareglan eins og annars staðar og
nokkuð sem þeir mættu hafa í huga, sem er að „less
is more“. Þeir klæða sig alltof „busy“. Það er of mik-
ið í gangi. Bæði klóraðar buxur og litríkir, áprentað-
ir bolir; það er einum of djarft teflt því þá fær ekk-
ert að njóta sín til fulls. Samt sem áður finnst mér
þeir flottir í sínum eigin klæðnaði og mundi hiklaust
gefa þeim tækifæri ef þeir sæktu um starf aðstoðar-
manns stílista hjá mér, rétt eins og í jakkafötunum
líka. Þeir eru glæsilegir jakkafataklæddir, en alltof
alvarlegir. Er ekki viss um að þeir myndu velja sér
sjálfir þessar skyrtur eða bindin, og jafnvel sleppa
bindinu. Þá finnst mér hvíta skyrtan og þykki bind-
ishnúturinn ekki fara neitt sérstaklega vel við augn-
málninguna. Þarna gildir millivegurinn. Ekki of
mikið, en ekki of lítið heldur. Mér finnst líka aug-
ljóst að þeim líður ekkert sérstaklega vel komnir úr
sínum eigin fötum, og sá gráklæddi hreinlega eldist
um tuttugu ár, kominn í jakkafötin. Já, í sínum eigin
fötum líta þeir út eins og rokkstjörnur í myndatöku,
en meira eins og fyrirsætur í jakkafatakatalóg
komnir í fínu fötin. Annars mjög flottir strákar í
báðum gervunum og gaman að sjá þá halda andlits-
málningunni og greiðslunni í hinum hefðbundnu
herrafötum.“
[ HVAÐ FANNST HENNI? ]
MARGRÉT EINARSDÓTTIR, STÍLISTI OG BÚNINGAHÖNNUÐUR
Það voru margir sem dýrkuðu sjónvarpsþáttinn „Queer Eye for the Straight Guy“ sem sýndur var við miklar
vinsældir á Skjá einum í vetur, enda hommar áberandi smekklegur samfélagshópur þegar kemur að útliti og tísku.
Helgarútgáfan sneri konseptinu við og fékk gagnkynhneigða herramenn Herragarðsins og Hugo Boss í Kringlunni til
að færa þá Skjöld, Sturlu og Odd í hefðbundin jakkaföt með bindi. Sem sagt: „Straight Eye for the Queer Guy“.
STURLA KASPERSEN
SKJÖLDUR EYFJÖRÐ
Hommar í
herraklæðum
40-41 (28-29) Breytt lúkk 11.6.2004 15:34 Page 2