Fréttablaðið - 12.06.2004, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 12.06.2004, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 12. júní 2004 31 Ég er 35 ára karlmaður og vil meina að rót vandans byrji þegar ég er um átján ára. Ég var þá mjög hrifinn af stúlku sem var með mér í skóla, en sú notaði hrifningu mína til að valda afbrýðisemi hjá öðrum og ná athygli hans og ástum. Að vera notaður á þennan hátt hafði djúpstæð áhrif á mig og síðan hef ég sífellt þurft að sanna fyrir sjálfum mér að ég sé ekki minni en hver annar. Ég er afburðagreindur; með gífurlega menntun að baki. Hef unnið mig upp í ábyrgðar- stöðu þar sem ég ræð öllu og hef mikil mannaforráð. Launa- lega hef ég það mjög gott; með rífleg bankastjóralaun á ís- lenskan mælikvarða og get þannig leyft mér hvað sem ég vil. Ég er giftur, á dásamlega konu sem ég elska meira en allt annað, og eigum við þrjú yndisleg börn. Eftir því sem velgengnin hefur aukist hefur áhugi kvenna á persónu minni aukist í sama hlutfalli. Ég er ósköp venjulegur útlits; þyki frekar sætur en alls ekkert módel. Er feitvaxinn; 180 cm á hæð og 100 kíló. Á vinnustað mínum er gnótt kvenfólks og hvort sem skýringin liggur í útliti mínu eða velgengni er ljóst að marg- ar þeirra hafa áhuga á nánu samneyti við mig. Þannig byrj- aði þetta smátt og smátt. Í vinnustaðateitum fór ég ein- staka sinnum að fylgja dömum heim og prufa hvernig þær væru. Bera þær saman við konuna heima. Þurfti að ganga úr skugga um hvort grasið væri grænna hinum megin. Við höfum síðan flutt til útlanda og ég haldið u p p t e k n u m hætti, en það sem var ein- s t a k a s i n n - um er n ú o r ð i ð d a g - l e g t brauð. Nú á ég tvær vinkon- ur á Íslandi sem báðar eru giftar og ég hitti báðar daglega þegar ég er heima. Auk þess á ég eina hjásvæfu þar sem ég bý ytra og enn aðra í landi sem ég fer oft til vegna vinnunnar. Ég verð að hafa samfarir minnst tvisvar á dag og ef ég sé álitlega dömu verð ég að fá hana. Hef allar klær úti til að finna dömur; hef konuna mína og fjórar aðrar, en það er ekki nóg. Grasið hefur aldrei ver- ið grænna hinum megin en samt held ég áfram að leita. Á Íslandi nota ég einkamál.is og private.is til að finna dömur. Í svörtu bókinni eru sömuleiðis nöfn þrigg- ja vændiskvenna því ég verð einfaldlega að fá mitt hvað sem það kostar og ef ekk- ert annað býðst þá borga ég hiklaust fyrir greiðann. Ég er mikið í Noregi og Danmörku og þar hef ég sama háttinn á. Annars eru vinnustaðateitin best til að finna dömur til kyn- maka. Partíin eru makalaus. Fólk vinnur náið saman og smá daður verður auðveldlega að meiru. Samkvæmt rannsókn- um halda meira en fjörutíu prósent karla fram hjá konum sínum og á milli 20 og 25 pró- sent kvenna. Það sýnir sig og sannast á slíkum samkomum. Í dag upplifi ég kynlífsfíkn- ina sem hreint helvíti. Ég reyni að stoppa og er virkilega ánægður með fjölskylduna, en eftir stutt hlé er eins og eitt- hvað bresti og ég byrja á nýjan leik og þá tvíefldur. Þetta er martröð sem erfitt er að stoppa. Ég reyni að sannfæra sjálfan mig um að ég sé ekki svo slæmur því ég nota smokk og ver þannig eiginkonuna fyr- ir sjúkdómum. Ég reyni í ör- væntingu að finna eithvað til að réttlæta sjálfan mig og ég á enga ósk heitari en að sigra glímuna við fíknina áður en spilaborgin hrynur til grunna. Til að auka spennuna hef ég svo byrjað að stunda ýmsar kyn- lífsgrúppur; til að mynda Nor- dicgangbang og Norskgangbang sem halda úti kynlífsorgíum um allan heim. Götuvændi í Noregi og Danmörku er tvenns konar. Heimakonur eru dópistar og þær lætur maður vera, en svo fást fallegar konur frá ýmsum löndum, Rússlandi, Eistlandi, Al- baníu, Tékklandi og víðar að. Góður efnahagur og gott að- gengi gerir mönnum eins og mér létt fyrir að svala fíkninni. ■ Í Reykjavík: Tveir skráðir fundir í viku í (Al-Anon) Héðinshúsinu, herb. 3. Sunnudagar: Blandaður fundur kl. 20.15. Upplýsingar í síma 898 5698. Miðvikudagar: Blandaður fundur kl. 19.15. Upplýsingar í síma 695 7541. Á Akureyri: Einn fundur í viku haldinn Í Al-Anon-húsinu, Geislagötu 12. Laugardagar: Blandaðir fundir kl. 11. Upplýsingar í síma 820 5889. Heimasíða: geocities.com/slaais Aukið þol sem einkennist af þörf fyrir aukið magn til að ná sömu áhrifum, eða áberandi minni áhrif af sama magni hegðunar. Vart er fráhvarfseinkenna eða gripið er til sömu eða svipaðrar hegðunar til að milda fráhvarfseinkenni. Hegðun gengur lengra og varir í lengri tíma en ætlað var í fyrstu. Viðvarandi löngun eða misheppnaðar tilraunir til að minnka eða ná stjórn á þessari hegðun. Miklum tíma er varið í að komast í aðstæður til að stunda þessa hegðun. Miklum tíma varið í hegðunina sjálfa eða til að jafna sig eftir hana. Fjölskylda og vinna vanrækt vegna hegðunar. Hætt við eða dregið úr ýmsum heilbrigðum venjum og tóm- stundum. Hegðuninni er viðhaldið þótt viðkomandi geri sér grein fyrir að hún valdi viðvarandi eða endurteknum lík- amlegum eða andlegum veikindum. 7 6 5 4 3 2 1 Saga kynlífsfíkils Greiningarviðmið kynlífsfíknar Fundir SLAA-samtakanna Úr banvænum fjötrum lostans SLAA-samtökin á Íslandi voru stofnuð fyrir rúmu ári og eru fé- lagsskapur karla og kvenna sem samhæfa reynslu sína, styrk og vonir, svo þau megi leysa sam- leiginlegt vandamál sitt og séu fær um að hjálpa öðrum til að losna úr fjötrum ástar og kyn- lífsfíknar. Samtökin eru byggð upp á sama 12 spora kerfi og erfðavenjum AA-samtakanna, en SLAA stendur fyrir Sex and Love Addicts Anonymous og er rekið sem samtök fyrir kynlífs- og ástarfíkla um allan heim. „Það er augljós þörf fyrir starfsemi SLAA á Íslandi og góðu fréttirnar fyrir kynlífs- fíkla eru þær að það er vel hægt losna undan þessari fíkn. Það er til lausn,“ segir félagi SLAA- samtakanna, sem ekki vill láta nafn síns getið. „Sjálfur hef ég öðlast frelsi frá fíkninni og líf mitt hefur breyst til mikils batnaðar. Ég hef ekki farið inn á stefnumótaheimasíður eða spjallrásir í níu mánuði og fyrir fimm mánuðum strokaði ég út símanúmer bólfélaganna úr gemsanum mínum. Bati minn á svo án efa eftir að birtast í fleiri myndum, sem ég treysti Guði fyrir. Það sem ég hef fyrst og fremst grætt á þessu eru klukkustundirnar í deginum, en ég eyddi að meðaltali tíu klukkutímum á dag fyrir fram- an tölvuna í kynferðislegum til- gangi. Ástar- og kynlífsfíkn er banvænn sjúkdómur, bæði í orðsins fyllstu merk- ingu vegna sjálfs- vígshættu, en ein- nig í mörgum öðr- um skilningi. Hann rústar at- vinnutækifær- um, tæmir budd- una hjá fólki, af- vegaleiðir fólk félagslega, skekk- ir sjálfsmynd þeirra, stofnar hjónaböndum í hættu og getur klippt á samskipti við börn og fjölskyldu. Fyrir utan þetta er maður alls óstarfhæfur þegar fíknin nær yfirhöndinni. Því miður eru dæmi þess að kynlífs- fíklar hafi verið myrtir þegar þeir bjóða ókunnugum gestum inn á heimili sín fyrir skyn- dikynni. Einnig þekki ég kyn- lífsfíkla sem dáið hafa úr sjúk- dómum sem þeir fengu vegna þess að þeir stunduðu hættulegt kynlíf. Fyrsta sporið í átt að bata er að viðurkenna vanmátt sinn gagnvart kynlífsfíkn og að manni sé orðið um megn að stjórna eigin lífi. Maður nær nefnilega bata á sama augna- bliki og maður er tilbúinn til þess að öðlast bata. Ef maður er ekki tilbúinn notar maður hvaða afsökun sem er til að forðast batann. Sumir reyndar kjósa að velta sér upp úr eymdinni árum saman, eða þar til líf þeirra er í rúst. Flestir mæta á SLAA-fund þegar þeir hafa náð botninum. Botninn hjá hverjum og einum er svo einstaklingsbundinn; hjá einum að halda fram hjá maka sínum; öðrum að verða þrælar ástarsambands við manneskju sem hefur ekkert að gefa til- finningalega. Persónulega óttaðist ég að ganga í SLAA-samtökin vegna þess að ég hélt að með því þyrfti ég að hætta að stunda kynlíf að eilífu. Það er vitaskuld bull. Eina skilyrðið er löngunin til að losna undan áþján ástar- og kynlífsfíknar. Við erum í hlekkjum sjúkdóms og erum óhæf að taka ákvarðanir í ásta- og kynlífsmálum, eins og venjulegt fólk getur gert. Fíknin heimtar alltaf meira og meira, og við gefum henni lausan tauminn þar til hún er komin út í al- gjört stjórnleysi. Það sem byrjar sem saklaust fikt og ævintýr, endar sem martröð. Fólk missir jafnvel sjónar á eigin kynhneigð og fer að telja sér trú um að það sé tví- eða samkynhneigt, bara til að prófa eitthvað annað og nýtt. Við þurfum því að læra að elska upp á nýtt og kynnast sjálfum okkur sem tilfinningaverum á nýjan leik. Á fundum SLAA forðumst við að segja neyslusögur því þær geta komið virkum fíklum inn á fundina til að næra hana og fóðra. Fundirnir eru mjög sterkir og vel haldið á spöðun- um; við gerum allt eftir bókinni. Mér líður alltaf svo mikið betur í hjartanu eftir fundina og hef svo minn eigin trúnaðarmann sem ég leita til þegar bjátar á og með sértæk vandamál mín. Við höfum sameiginlega velferð í fyrirrúmi; erum í liði með hvort öðru. Það er ómetanlegt að sækja fund þar sem maður þarf ekki að afsaka neitt eða útskýra ofan í kjölinn þar sem hinir skil- ja upp á hár hvað talað er um. Þetta hefur breytt lífi mínu en áður sá ég ekki sjálfan mig geta orðið frjálsan undan fíkninni. Ég var orðinn tilfinningadofinn svampur sem gat ekki sofnað á kvöldin nema stunda sjálfsfró- un vegna skyldurækni. Fyrst eftir að ég hætti á spjallrásun- um fékk ég fráhvarfseinkenni, lagðist í rúmið veikur í nokkra daga, með hita- og kuldasótt til skiptis. Seinna var mér sagt að spennan við að sitja negldur við tölvuna sólarhringum saman og spennan við að vera skotinn í ósýnilegu manneskjunni; þetta líkamlega álag sem maður legg- ur á líkamann og hjartað, jafn- gildir því og að vera á kókaíni allan daginn. Nú lifi ég öðru lífi þar sem forgangsröðin er rétt: sé sjálfur um þarfir mínar og sjálfan mig, og er hættur að hlýða þörfum fíknarinnar. Ég mæti í vinnuna og get þar af leiðandi greidd reikningana, hef reglulega matmálstíma, rækta sambandið við fjölskyldu og vini, og rækta ekki síst líkama og sál, er snyrtilegur til fara, og skúra og vaska upp heima hjá mér! Kannski næ ég að stofna til ástarsambands í framtíðinni, hver veit? Þangað til er ég í það minnsta hamingjusamur, einn með sjálfum mér. Ég þakka Guði fyrir SLAA-samtökin, því ég er að fá tækifæri til að byrja nýtt líf sem er miklu auðveldara fyrir mig að lifa. ■ Ef þú svarar þremur af sjö greiningarviðmiðum á tólf mánaða tímabili ertu kynlífsfíkill með vandamál. Heimasíða SLAA samtakanna á Íslandi er: geocities.com/slaais 42-43 (30-31) kynlíf / ee lesið 11.6.2004 18:07 Page 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.