Fréttablaðið - 12.06.2004, Page 50
EM Í PORTÚGAL Varnarmaðurinn
sterki John Terry mun ekki leika
með Englendingum gegn Frökk-
um á sunnudaginn. Terry meidd-
ist í vináttuleiknum gegn Japön-
um um daginn og hefur lítið æft
síðan. Sven-Göran Eriksson lands-
liðsþjálfari setti það sem skilyrði
að hann þyrfti að taka fullan þátt í
æfingunni í gær til þess að kom-
ast í liðið en það gekk ekki eftir
þar sem Terry gat aðeins skokkað
á æfingunni.
„Hann er ekki alveg orðinn
nógu góður og því finnst mér
glórulaust að tefla honum fram
gegn Frökkum. Ég held samt að
hann verði orðinn í lagi fyrir
næsta leik á fimmtudag,“ sagði
Eriksson á blaðamannafundi í
gær.
Það verður því annað hvort
Jamie Carragher eða Ledley King
sem leikur með Sol Campbell í
miðju ensku varnarinnar á morg-
un. ■
EM Í PORTÚGAL Hann er jafnvígur á
báða fætur, með góða skallatækni
og meðfæddur markaskorari og
Portúgalar treysta mjög á þennan
snjalla leikmann.
Með þessa hæfileika, og Luis
Figo og Rui Costa fyrir aftan sig,
má leiða líkur að því að Pauleta,
aðalframherji portúgalska lands-
liðsins, skori nokkur mörk á Evr-
ópumótinu.
Hann skoraði 65 mörk í í 98
leikjum með Bordeaux í Frakk-
landi en fór til Paris Saint Germ-
ain fyrir síðasta tímabil og skor-
aði 18 mörk í 37 leikjum. Hann
hefur tvisvar verið kosinn besti
leikmaður Frakklands. ■
38 12. júní 2004 LAUGARDAGUR
Spáð í liðin í A-riðli Evrópukeppninnar í Portúgal sem hefst í dag:
Nágrannar berjast
EM Í PORTÚGAL Í A-riðli er að finna
gestgjafa keppninnar í ár, Portú-
gal, og helstu erkifjendur þeirra,
Spánverja. Grikkland og Rúss-
land eru lið sem ekki eru talin lík-
leg til að velgja þessum þjóðum
undir uggum, og finnst mörgum
mesta spennan vera í kringum
innbyrðis viðureign Portúgals og
Spánar, en sá leikur mun senni-
lega ráða því hvort liðið hafnar í
efsta sæti riðilsins. Ber þó að var-
ast þessa minni spámenn, til að
mynda náðu Grikkir ofar en Spán-
verjar í undankeppni EM, þar sem
þjóðirnar voru saman í riðli.
Hungrar í velgengni
Portúgalar eru þekktir fyrir
gríðarlega hreyfanlega knatt-
spyrnu sem er skemmtileg
áhorfs. Luis Felipe Scolari er
þjálfari liðsins og mun vonast til
þess að endurtaka leikinn frá því
á HM fyrir tveimur árum, þegar
hann stjórnaði liði Brasilíu til
heimsmeistaratitilsins. Nú hyggst
hann ná Evróputitlinum með
Portúgal. Portúgalar munu leggja
traust sitt á Luis Figo og Rui
Costa, reynda og hungraða í vel-
gengni með landsliðinu - vel-
gengni sem þeir hafa aldrei feng-
ið að njóta.
Nánast á heimavelli
Spánverjar græða mikið á því
að keppnin fer fram í nágranna-
landinu Portúgal, og gerir þjóðin
sér vonir um að landsliðið nái aft-
ur þeim árangri sem liðið náði
árið 1964, þegar liðið hampaði
Evrópumeistaratitlinum. En sí-
endurtekinn slakur árangur á
stórmótum síðustu ára gæti setið í
mönnum og valdið því að trúna
vanti hjá leikmönnum. Spánn spil-
ar sóknarleik með Raul sem leið-
toga og hafa tvo frábæra mark-
menn, Iker Casillas and Santiago
Canizares, til að stjórna heldur
vafasamri vörn.
Frábær liðsandi
Grikkland, sem er nú að taka
þátt á EM í fyrsta skipti í 24 ár,
spilar varnarsinnaða og skipu-
lagða knattspyrnu. Þýski aginn er
í fyrirrúmi, enda situr hinn gam-
alkunni Otto Rehhagel við stjórn-
artaumana. Gríska liðið er án
stórstjarna og virðist við það hafa
skapast frábær liðsandi sem stóru
þjóðirnar gæti vantað. Grikkir
höfðu leikið 15 landsleiki í röð án
taps áður en liðið tapaði fyrir
Hollandi í æfingaleik í apríl síð-
astliðnum.
Vængbrotið lið
Rússar koma til með að sár-
sakna leikstjórnanda síns, Yegor
Titov, en hann er í árs banni eftir
að hafa fallið á lyfjaprófi nýlega,
og leiðtoga varnarinnar, Viktor
Onopko, sem er meiddur. Þeir
mæta til leiks með vængbrotið lið
og liggur helsta vonin í að Alex-
ander Mostovoi, hæfileikaríkasti
leikmaður liðsins, nái að búa eitt-
hvað til upp á eigin spýtur. Það
kæmi ekki á óvart ef Rússar fara
illa út úr keppninni. ■
EM Í PORTÚGAL Brasilíumaðurinn
Luis Felipe Scolari hefur alltaf
haft gaman af erfiðum áskorun-
um og má með sanni segja að
hann hafi staðist þær allar.
Síðast tók hann að sér brasil-
íska landsliðið þegar það var ein
rjúkandi rúst. Hann þjappaði
hópnum saman og gerði þá að
heimsmeisturum í Asíu. Nú hefur
hann tekið það erfiða verkefni að
sér að gera gullkynslóðina frá
Portúgal að Evrópumeisturum á
heimavelli. Sérfræðingar eru
sammála um að ef honum tækist
það verkefni væri það hans
stærsti sigur til þessa.
„Ég tel að það verði erfiðara að
gera Portúgal að Evrópumeistur-
um en það var að gera Brasilíu að
heimsmeisturum,“ sagði stóri
Phil, eins og Scolari er oftast kall-
aður. „Það eru að minnsta kosti tíu
lið sem geta unnið þetta mót en á
HM er meira af slökum liðum.
Hér eru öll bestu lið í heimi fyrir
utan Brasilíu og Argentínu.“ ■
ÁST
Cristiano Ronaldo þykir vænna um Deco
en Luis Figo. Ronaldo faðmar hérna Deco
á æfingu.
Portúgalinn Luis Figo:
Ósáttur
við Deco
EM Í PORTÚGAL Luis Figo varpaði
léttri sprengju í portúgalska
landsliðshópinn í gær þegar hann
gagnrýndi hinn brasilíska Deco,
leikmann Porto, sem hefur portú-
galskt ríkisfang og hefur leikið
með portúgalska landsliðinu síð-
ustu ár. Figo gagnrýndi harkalega
þá ákvörðun landsliðsþjálfarans
þegar hann valdi Deco fyrst í hóp-
inn á síðasta ári og hann er ekki
hættur.
„Ég hef ekki trú á því að fólk
frá Spáni yrði ánægt ef ég fengi
mér spænskt ríkisfang og færi að
spila með spænska landsliðinu,“
sagði Figo í gær. „Þetta hefur
áhrif á andann í liðinu og ég er
ekki ánægður með þetta. Fyrir
mér er þetta einfalt. Ef þú fæðist
í Kína þá spilarðu með kínverska
landsliðinu. Mér finnst að menn
séu að misnota aðstöðu með þessu
og ég mun ekki breyta skoðun
minni þótt Deco sé í landsliðinu
núna.“ ■
TÆPUR
Óvíst er hvort van der Sar geti varið mark
Hollands gegn Þjóðverjum.
Edwin van der Sar:
Meiddur
á fingri
EM Í PORTÚGAL Hollendingar urðu
fyrir miklu áfalli í gær þegar
markvörðurinn Edwin van der
Sar meiddist á fingri á æfingu.
Meiðslin eru það alvarleg að óvíst
er hvort hann geti spilað gegn
Þjóðverjum á þriðjudag.
Það er einnig að frétta af hol-
lenska landsliðinu að Clarence
Seedorf er orðinn heill heilsu á ný
og æfði með liðinu í gær. Það
breytir litlu um fyrirætlanir
landsliðsþjálfarans, Dicks
Advocaat, sem hefur þegar sagt
að ungstirnið Rafael Van der
Vaart frá Ajax muni byrja leikinn
í stað Seedorfs.
Það er aftur á móti óvíst hver
leikur á vinstri kantinum en þar
þarf Advocaat að velja á milli
Arjen Robben, sem er á leið til
Chelsea, og Andy van der Meyde,
leikmanns Inter á Ítalíu. ■
EM Í PORTÚGAL
■ FYLGSTU MEÐ
Portúgalanum
Pedro Pauleta
Luis Felipe Scolari, þjálfari portúgalska landsliðsins:
Erfiðasta áskorunin
HARÐUR STJÓRI
Scolari segir hér Luis Figo til á æfingu hjá
portúgalska landsliðinu í gær.
■
Pauleta er baráttuhundur, mjög sterkur
og algjörlega óútreiknanlegur framherji.
Vahid Halihodzic, þjálfari PSG.
Vandamál hjá Króötum:
Pletikosa
meiddur
EM Í PORTÚGAL Otto Baric, þjálfari
króatíska landsliðsins, stendur
frammi fyrir stóru vandamáli því
nú er ljóst að aðalmarkvörður
liðsins, Stipe Pletikosa, verður
ekki með í fyrstu tveimur leikjum
liðsins, gegn Svisslendingum og
Frökkum, á Evrópumótinu í
Portúgal. Það er einnig tæpt að
Pletikosa verði búinn að ná sér
fyrir síðasta leik liðsins í riðlinum
gegn Englendingum en læknar
liðsins telja að hann verði frá
næstu 10-15 dagana.
Tomislav Butina, sem spilar
með belgíska liðinu Club Brugge,
mun að öllum líkindum leysa
Pletikosa af á meðan hann er
meiddur en fjarvera hans er mik-
ið áfall fyrir króatíska liðið. ■
Enski varnarmaðurinn John Terry er meiddur aftan á læri:
Ekki með gegn Frökkum
MEIDDUR
John Terry getur ekki leikið með Englend-
ingum gegn Frökkum.
Svissneska landsliðið:
Vefst tunga
um tönn
EM Í FÓTBOLTA Svissneska landsliðið
stendur frammi fyrir mjög sér-
stöku vandamáli á EM sem gæti
komið mörgum á óvart. Þannig er
mál með vexti að leikmenn liðsins
tala bæði frönsku og þýsku og þar
að auki margar mállýskur af þess-
um tungumálum. Það sem gerist í
kjölfarið er að leikmenn liðsins
eiga ákaflega erfitt með að skilja
hvern annan. Varnarmaðurinn
Stephane Henchoz, sem leikur
með Liverpool, hefur stórar
áhyggjur af þessu vandamáli.
„Það hefur verið erfitt að venj-
ast þessu og þetta hefur oft verið
mikill hrærigrautur þar sem eng-
inn hefur skilið neinn,“ sagði
Henchoz. „Ég er viss um að fólk
utan Sviss skilur ekki hvernig við
náum í lið en það er alveg ljóst að
þetta vandamál hjálpar okkur
ekki í því að ná árangri.“ ■
SOPINN ER GÓÐUR
Spænski sóknarmaðurinn
Fernando Morientes fær sér
sopa af vatni í hitanum í
Portúgal.
LYKILMENN Í A-RIÐLI
Portúgal
Sókn Pedro Pauleta
Miðja Luis Figo
Vörn Fernando Couto
Spánn
Sókn Raul Gonzalez
Miðja Ruben Baraja
Vörn Carles Pyuol
Grikkland
Sókn Demis Nikolaidis
Miðja Vassilis Tsiartas
Vörn Yiannis Goumas
Rússland
Sókn Dmitry Sychev
Miðja Alexander Mostovoi
Mark Sergei Ovchinnikov
50-51 (38-39) sport 11.6.2004 19:47 Page 2