Fréttablaðið - 12.06.2004, Page 53
EM Í PORTÚGAL Í D-riðli, eða „dauða-
riðlinum“ eins og hann hefur ver-
ið nefndur, mun að minnsta kosti
einn af risunum, Þýskaland, Hol-
land eða Tékkland, þurfa að pakka
saman eigum sínum að lokinni
riðlakeppninni og halda heim á
leið. Hvert svo sem hið óheppna
lið verður er ljóst að litla Lettland
mun spila stóra rullu í að ákvarða
hver það á endanum verður sem
kemst ekki áfram.
Hollendingar líklegir
Eingöngu með því að líta yfir
leikmannalista Hollendinga er
hægt að setja liðið á meðal þeirra
þjóða sem sigurstranglegastar
eru. Svo óheppilega vill til að sam-
band nokkurra af þessum framúr-
skarandi leikmönnum er ekki eins
og best verður á kosið, og gæti
það komið niður á leik liðsins. Lið-
ið býr yfir góðri blöndu af yngri
og eldri leikmönnum og spilar frá-
bæran bolta þegar það nær sér á
strik. Ef liðið kemst upp úr riðlin-
um gæti sú staðreynd að liðið hef-
ur fallið úr leik í síðustu þremur
EM eftir vítaspyrnukeppni haft
áhrif á sálartetur leikmanna, og
munu þeir vilja forðast vítin eins
og heitan eldinn.
Tékkar með frábært lið
Tékkar eru með frábært lið og
eru margir sem spá því að þeir
komi mest allra liða á óvart í
keppninni. Með Pavel Nedved,
Tomas Rosicky, Karel Poborsky
og Tomas Galasek hafa Tékkar
einhverja best skipuðu miðju í
keppninni, sem getur matað ris-
ann Jan Koller í sókninni. Spurn-
ingarmerkið er sett við vörnina
þar sem bakvarðastöðurnar eru
verst mannaðar, og þarf hinn ungi
Petr Cech í markinu líklega að
eiga gott mót.
Þjóðverjar í vandræðum
Helsti styrkur þýska liðsins er
hefðin sem liðið hefur, en ekkert
landslið frá Evrópu hefur verið
sigursælla í sögunni. Á pappírun-
um þykir liðið ekki hafa verið lak-
ara í mörg ár, en ef þeir ná upp
sínum agaða bolta má ekki af-
skrifa Þjóðverja. Þeim var spáð
óförum á HM fyrir tveimur árum
en komust samt í úrslitaleikinn.
Það sama er uppi á teningnum nú;
allir hafa afskrifað liðið fyrir
keppnina og munu leikmenn liðs-
ins ólmir vilja sýna fram á annað.
Erfitt hjá Lettum
Lettland hefur verðskuldað
tryggt sér sæti á EM með því að
slá út þjóðir á borð við Tyrkland
og Pólland. Lettar byggja leik sinn
á skyndisóknum þar sem hinn eld-
snöggi framherji Maris Verpa-
kovskis er í lykilhlutverki. Hann
skoraði grimmt fyrir liðið í
undankeppninni og er þeirra aðal-
vopn. Þetta er í fyrsta skipti sem
Lettar komast í lokakeppni stór-
móts og að komast í gegnum þenn-
an dauðariðil yrði ekkert minna
en kraftaverk. ■
41LAUGARDAGUR 12. júní 2004
KLÁR Á ÆFINGU
Oliver Kahn hefur ekki miklar áhyggjur af
slæmu gengi landsliðsins í síðustu leikjum.
Hvað gera Þjóðverjar?
Kahn er
kokhraustur
EM Í PORTÚGAL Fáir tóku mark á
markmanni Þjóðverja, Oliver
Kahn, þegar hann spáði sínu liði
góðu gengi á HM 2002. Annað
kom á daginn og ólseigt lið Þjóð-
verja fór alla leið í úrslitaleikinn
en beið þar lægri hlut gegn Bras-
ilíumönnum.
Nú er Kahn aftur kominn á
ferðina og er sannfærður um að
Þjóðverjar geri góða hluti á EM
þvert ofan í allar spár sérfræð-
inga en liðinu hefur gengið afleit-
lega í vináttulandsleikjum að und-
anförnu.
„Ég hef nákvæmlega sömu til-
finningu og ég hafði fyrir HM
2002,“ sagði Kahn, kokhraustur að
vanda: „Ég veit að fólk efast um
möguleika okkar en ef við spilum
sem ein heild og hver einasti leik-
maður gefur allt sem hann á, er
allt mögulegt. Okkur gekk líka
herfilega á undirbúningstímabil-
inu fyrir HM 2002 en sagan er
með okkur Þjóðverjum og við höf-
um margoft sýnt að það borgar
sig ekki að dæma okkur úr leik of
snemma,“ sagði Oliver Kahn. ■
■ ■LEIKIR
12.00 HK og ÍA mætast á
Kópavogsvelli í 32 liða úrslitum
VISA-bikars karla í knattspyrnu.
12.30 Fjarðabyggð og Valur
mætast á Eskifjarðarvelli í 32 liða
úrslitum VISA-bikars karla í
knattspyrnu.
13.00 Víðir og KR mætast á
Garðsvelli í 32 liða úrslitum VISA-
bikars karla í knattspyrnu.
13.00 KS og Stjarnan mætast á
Siglufjarðarvelli í 32 liða úrslitum
VISA-bikars karla í knattspyrnu.
13.00 KFS og Þróttur mætast á
Helgafellsvelli í 32 liða úrslitum
VISA-bikars karla í knattspyrnu.
13.00 Ægir og FH mætast á
Þorlákshafnarvelli í 32 liða úrsli-
tum VISA-bikars karla í knattspyr-
nu.
14.00 Völsungur og Keflavík
mætast á Húsavíkurvelli í 32 liða
úrslitum VISA-bikars karla í
knattspyrnu.
14.00 Sindri og Víkingur R.
mætast á Sindravöllum í 32 liða
úrslitum VISA-bikars karla í
knattspyrnu.
■ ■ SJÓNVARP
12.00 Gullmót í frjálsum íþróttum
á RÚV. Endursýnt.
13.00 Leiðin á EM 2004 á RÚV.
Fjórir þættir sýndir hver á eftir
öðrum.
15.00 EM í fótbolta á RÚV.
Upphitun fyrir leik Portúgala og
Grikkja.
15.40 EM í fótbolta á RÚV.
Setningarathöfn EM í fótbolta í
Portúgal.
16.00 EM í fótbolta á RÚV. Bein
útsending frá opnunarleik
Portúgals og Grikklands í A-riðli
EM í fótbolta.
17.00 Inside the USA PGA Tour
2004 á Sýn.
17.30 Trans World Sport á Sýn.
Íþróttir um allan heim.
17.50 Formúla 1 á RÚV. Upptaka
frá tímatöku fyrir Montreal-kap-
paksturinn í Kanada sem fram fór
fyrr um daginn.
18.25 Motorworld á Sýn.
18.30 EM í fótbolta á RÚV. Bein
útsending frá leik Spánar og
Rússlands í A-riðli EM í fótbolta.
19.00 Fákar á Sýn. Þáttur fyrir alla
hestaáhugamenn.
19.30 Gillette-sportpakkinn á
Sýn. Íþróttir um víða veröld.
20.00 Beyond the Glory á Sýn.
Fyrri hluti þáttar um hnefa-
leikakappann Mike Tyson.
20.55 Beyond the Glory á Sýn.
Seinni hluti þáttar um hnefa-
leikakappann Mike Tyson.
21.30 Spurt að leikslokum á RÚV.
Þorsteinn J. fer um víðan völl í
umfjöllun sínni um EM í fótbolta
og fær til sín spekinga.
21.50 K-1 á Sýn. Barist með öllu.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
9 10 11 12 13 14 15
Laugardagur
JÚNÍFréttablaðið spáir í Evrópukeppnina í knattspyrnu í Portúgal:
„D“ fyrir dauðariðil
Frakkar hafa ekki fengið á sig mark í 1.039 mínútur eða síðan í júnímánuði í fyrra:
Erfitt að skora hjá Evrópumeisturunum
FÓTBOLTI Frökkum er spáð Evrópu-
meistaratitlinum og það ekki að
ástæðulausu. Flestir segja að yfir-
burðir liðsins liggi í sóknarleikn-
um þar sem sóknarmenn á borð
við Thierry Henry og David
Trezeguet sjá um að enda sóknirn-
ar á meðan menn eins og Robert
Pires og Zinedine Zidane leggja
upp færin fyrir þá.
Þegar liðið er krufið nánar
kemur í ljós að varnarleikur
Frakka er kannski stærsta ástæð-
an fyrir því að Evrópumeistararn-
ir eru sigurstranglegasta liðið í
keppninni í ár. Franska landsliðið
er búið að leika í næstum því 12
mánuði og 11 leiki án þess að fá á
sig mark.
Það eru því samanlagt liðnar
1.039 mínútur síðan skorað var
hjá frönsku vörninni, sem hefur
lítið breyst frá því liðið tryggði
sér Evrópumeistaratitilinn 1998.
Markvörðurinn er ennþá Fabien
Barthez og fyrir framan hann
bægja þeir Marcel Desailly, Bix-
ente Lizarazu og Lilian Thuram
allri hættu frá. Allir eru þeir þó
komnir á síðasta hluta ferilsins,
Thuram er yngstur, 32 ára, og
Desailly elstur, 35 ára.
Það bendir því margt til að þeir
séu að spila á sínu síðasta stór-
móti, Desailly mun hætta og óvist
er hvort hinir muni halda sæti
sínu í liðinu. Það hefur þó ekki
verið hægt að finna nein ellimerki
hjá þessum köppum í síðustu
leikjum en síðastur til að skora
hjá frönsku vörninni var Tyrkinn
Tuncay Sanli sem skoraði seinna
mark síns liðs í 2-3 tapi fyrir
Frökkum í undanúrslitum Álfu-
bikarsins 26. júní í fyrra.
Síðan þá hafa Frakkar leikið
ellefu heila leiki án þess að fá á
sig mark og á sama tíma hafa þeir
skorað 23 sinnum hjá andstæðing-
um sínum. Árangurinn hefur líka
verið til mikillar fyrirmyndar, níu
sigrar og tvö markalaus jafntefli
gegn Brasilíumönnum og Hol-
lendingum. ■
FABIEN BARTHEZ ER VEL Á VERÐI
Fabien Barthez hefur ekki fengið á sig
mark með franska landslinu síðan í lok
júnímánuðar í fyrra.
LYKILMENN LIÐANNA Í D-RIÐLI
Holland
Sókn Ruud van Nistelrooy
Miðja Wesley Sneijder
Vörn Jaap Stam
Tékkland
Sókn Jan Koller
Miðja Pavel Nedved
Vörn Marek Jankulovski
Þýskaland
Sókn Kevin Kuranyi
Miðja Michael Ballack
Vörn Oliver Kahn, markvörður
Lettland
Sókn Maris Verpakovskis
Miðja Vitalijs Astafjevs
Vörn Igors Stepanovs
TVEIR GÓÐIR SAMAN HJÁ HOLLENDINGUM
Þeir Ruud van Nistelrooy og Roy Makaay spretta hér á æfingu hollenska landsliðsins.
Þriðji leikurinn í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta:
Detroit Pistons burstaði LA Lakers
KÖRFUBOLTI Detroit Pistons malaði
Los Angeles Lakers mélinu
smærra, 88-68, í þriðja leik lið-
anna í lokaúrslitum NBA-deildar-
innar í körfubolta og er því komið
2-1 yfir.
Leikurinn fór fram á heima-
velli Detroit og leikmenn liðsins
voru greinilega búnir að jafna sig
eftir afar sárt tap í leiknum á und-
an þar sem þeir glutruðu niður
sex stiga forskoti í blálokin og
töpuðu svo í framlengingu.
Leikmenn Lakers voru einfald-
lega á hælunum í þessum leik og
lykilmenn eins og Kobe Bryant og
Shaquille O’Neal voru eins og
skugginn af sjálfum sér. Reyndar
var varnarleikur Detroit frábær
og það var ekki mikið pláss sem
stjörnur Lakers fengu til að at-
hafna sig.
Sigur Detroit var aldrei í neinni
hættu en liðið tök völdin strax í
byrjun leiks og lét þau ekki af
hendi. Liðið stjórnaði hraðanum á
leiknum og Lakers-liðið náði aldrei
að komast inn í sinn leik.
Næsti leikur verður því algjör
lykilleikur fyrir Lakers því ólík-
legt verður að teljast að þeir geti
komið til baka eftir að lenda undir
1-3 á móti liði sem er hreinlega
stútfullt af baráttu og sigurvilja.
Larry Brown, þjálfari Detroit,
var stoltur af sínum mönnum í
leikslok: „Þetta var frábært hjá
strákunum og ég er ekki frá því
að liðið geti hreinlega ekki spilað
betur - svo gott var þetta,“ sagði
hinn reyndi Brown, sem lengi hef-
ur verið í bransanum en hefur enn
ekki tekist að stýra liði til meist-
aratitils - nú er lag.
Hjá Detroit var Richard
Hamilton atkvæðamestur með 31
stig og tók sex fráköst. Chauncey
Billups kom næstur með 19 stig
en annars var liðsheildin frábær
og skilaði mestu.
Hjá Lakers var Shaquille
O’Neal með 14 stig og tók átta frá-
köst. Þetta er í fyrsta sinn sem
hann skorar minna en 25 stig í 21
leik í lokaúrslitum og segir það
meira en mörg orð.
Kobe Bryant var með 11 stig
og það er hreint með ólíkindum að
þetta dúó sé aðeins með 23 stig
samanlagt í einum leik. Kobe
skoraði meðal annars aðeins eitt
stig í fyrri hálfleik og það kom úr
tæknivíti. ■
BRYANT GERÐI LÍTIÐ Í 3. LEIKNUM
Kobe Bryant komst hvorki lönd né strönd
gegn varnarmönnum Detroit í þriðja
leiknum og skoraði aðeins 11 stig.
52-53 (40-41) sport 11.6.2004 20:03 Page 3