Fréttablaðið - 12.06.2004, Page 57
„Við höfum verið í tvö ár að undir-
búa þessa opnun,“ segir María
Karen Sigurðardóttir, forstöðumað-
ur Ljósmyndasafns Reykjavíkur, en
myndavefur safnsins hefur verið
opnaður. Á vefnum má nú finna um
3000 ljósmyndir en að sögn Maríu
mun þeim fjölga verulega á næstu
mánuðum og stefnan er sett á
10.000 myndir í árslok.
„Það er metnaður okkar að auka
þjónustuna við almenning og bregð-
ast við kröfum nútímans.“ Á vefn-
um má nú finna myndir eftir þrjá
ljósmyndara, þá Tempest Anderson,
Magnús Ólafsson, Gunnar Rúnar
Ólafsson og Andrés Kolbeinsson.
„Í eigu safnsins eru um 40
myndasöfn og myndirnar eru á aðra
milljón,“ segir María og bætir því
við að almenningi er boðið að festa
kaup á myndum sem eru í eigu
safnsins. „Þetta er mjög ódýr en
jafnframt falleg og skemmtileg
myndlist.
Myndirnar á vefnum eru frá lok-
um 19. aldar fram til 1960 og eru
fjölbreytilegar. Sem dæmi má
nefna mynd tekna árið 1890 af börn-
um við torfbæi í Þingholtunum og
stemningsmynd frá Austurstræti
upp úr 1960.“
María segir Ljósmyndasafnið
gegna margvíslegu hlutverki ásamt
því að varðveita ljósmyndaeign
Reykjavíkurborgar og halda utan
um myndasöfnin.
Safnið heldur þrjár sýningar
árlega og leggur mikið upp úr
þjónustu við almenning. „Sýning-
in sem við erum með núna er á
finnskum samtímaljósmyndum
en það er í tengslum við Listahá-
tíð. Í haust opnar sýningin „Fyrir
og eftir“ en á henni verður borin
saman ljósmyndatækni fyrr á
tímum og nú. Áður fyrr var mál-
að ofan í ljósmyndir til að fegra
fólkið en nú notum við einfald-
lega photoshop. Á sýningunni
verður þetta borið saman en til-
hneigingin er alltaf að fegra,“
segir María.
Ótrúleg breyting hefur orðið á
starfsemi safnsins eftir að það flut-
ti úr Borgartúninu í Grófarhúsið í
Tryggvagötu. „Nú erum við í sama
húsi og tvö önnur söfn ásamt því að
vera í návistum við Listasafn
Reykjavíkur,“ segir María og bætir
því við að fjöldi gesta hafi marg-
faldast, farið úr þúsund gestum á
ári í tíu þúsund.
Ljósmyndavefurinn verður opn-
aður í dag og er slóðin ljosmynda-
safnreykjavikur.is. ■
45LAUGARDAGUR 12. júní 2004
■ TÓNLEIKAR
■ KVIKMYNDIR
LJÓSMYNDAVEFUR
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
■ hefur opnað myndavef. Um 3000
myndir er finna þar núna en þeim mun
fjölga jafnt og þétt.
Torfbæir og
stemningsmyndir
GUITAR ISLANCIO
Spila á Jómfrúnni við Lækjargötu klukkan
16 í dag.
Í sumarskapi
á Jómfrúnni
Á sumartónleikum Jómfrúarinn-
ar, sem jafnan eru klukkan fjögur
síðdegis á laugardögum, spilar í
dag tríóið góðkunna, Guitar
Islancio, sem skipað er gítarleik-
urunum Birni Thoroddsen og
Gunnari Þórðarsyni ásamt
kontrabassaleikaranum Jóni
Rafnssyni.
Tríóið er nýbúið að senda frá
sér nýja plötu, sem ber heitið
Scandinavian Songs. Þar taka þeir
ýmis þekkt lög frá Norðurlöndun-
um svipuðum tökum og þeir hafa
áður gert með íslensk þjóðlög.
Tónleikarnir verða í garðinum
á bak við Jómfrúna, nema veðrið
verði brjálað – þá verða þeir inni á
veitingastaðnum. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
ÚR BÖRNUM NÁTTÚRUNNAR
Kvikmyndir Friðriks Þórs Friðrikssonar
verða sýndar á Bíódögum á Ísafirði.
Vestfirskir
Bíódagar
Nú stendur yfir á Ísafirði kvik-
myndahátíðin Bíódagar sem er lið-
ur innan listahátíðarinnar Menn-
ing og náttúra á Vestfjörðum.
Sýndar verða myndir eftir
Friðrik Þór Friðriksson og fara
sýningarnar fram í Ísafjarðarbíói.
Í kvöld klukkan níu verður
Djöflaeyjan sýnd en á morgun
verður kvikmyndin Börn náttúr-
unnar sýnd klukkan fimm. Enginn
aðgangseyrir er á þessar sýningar.
Á morgun flytur Elfar Logi
Hannesson leikari fyrirlestur á
Langa Manga um sögu kvikmynd-
anna og ber fyrirlestur hans heit-
ið Hvíta tjaldið. ■
RÓSKA
Myndin er tekin af Ragnhildi Óskarsdóttur er hún fær sér ís á Austurbar sem staðsettur
var í Austurbæjarbíó. Myndin er tekin árið 1957 af Andrési Kolbeinssyni.
56-57 (44-45) Slanga 11.6.2004 17:52 Page 3