Fréttablaðið - 12.06.2004, Síða 61
49LAUGARDAGUR 12. júní 2004
Málning hf. hefur tekið þátt í viðamiklum rannsóknum á áhrifaþáttum
yfirborðsmeðhöndlunar með helstu sérfræðingum á þessu sviði hér
innanlands. Á rannsóknastofu Málningar er jafnframt haft strangt eftirlit með
framleiðslu og hráefnum og unnið kröftuglega að vöruþróun þar sem
nýjungar á sviði yfirborðsmeðhöndlunar með tilliti til íslenskra aðstæðna hafa
skapað málningu frá okkur algjöra sérstöðu.
ÞOL
- létt í notkun og myndar
sterka lakkfilmu.
- mikið veðrunarþol.
- fyrir bárujárnsþök og
aðra málmfleti utanhúss
Þakmálning sem þolir
íslenskt veðurálag
Akrýl - ÞOL
- létt í notkun.
- mjög gott veðrunarþol
- fyrir bárujárn, ýmsar gerðir af
klæðningum og aðra málmfleti
utanhúss.
Við erum sérfræðingar í útimálningu
fyrir íslenskar aðstæður.
Útsölustaðir Málningar:
Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfirði • Málningarbúðin Akranesi • Byko Akranesi •
Axel Þórarinsson, málarameistari, Borganesi • Verslunin Hamrar, Grundafirði • Litabúðin Ólafsvík • Núpur byggingavöruversl. Ísafirði
• Vilhelm Guðbjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sauðárkróki • Byko Akureyri • Versl. Valberg, Ólafsfirði •
Versl. Vík, Neskaupstað • Byko Reyðarfirði • Málningarþjónustan Selfossi • Miðstöðin Vestmannaeyjum • Byko Keflavík.
Morrissey olli miklu fjaðrafoki átónleikum sínum í Dublin á
laugardaginn síðasta. Söngvarinn
upplýsti tónleikagesti að Ronald
Reagan, fyrrum
Bandaríkjaforseti,
væri látinn. Því
næst bætti hann
við að hann hefði
frekað óskað þess
að núverandi
Bandaríkjaforseti,
George W. Bush,
hefði dáið. Ekki
fannst öllum tónleikagestum þetta
smekklegt og írsku dagblöðin skrif-
uðu mikið um málið.
Tom Cruise hefur opnað sérstakalæknastofnun fyrir þá slökkviliðs-
og lögreglumenn sem lögðu líf sitt í
hættu til þess að bjarga fólki undir
rústum Tvíbura-
turnanna eftir
hryðjuverkin 11.
s e p t e m b e r
2001. Margir
þeirra komust í
snertingu við
hættuleg efni sem
eru enn að skaða
heilsu þeirra. Þetta
finnst leikaranum
hræðilegt og vill að
hetjurnar fái þá
meðferð sem þeir
eiga skilið. Talað er um „9/11 sjúk-
dóminn“ á meðal þeirra björgunar-
manna sem þjást líkamlega vegna
efna eftir björgunaraðgerðarnar.
Franska kvikmyndastjarnanBrigitte Bardot var á dögunum
sektuð um 5000 evrur fyrir að ýta
undir kynþáttahatur í bók sem hún
gaf út. Í bókinni,
Grátur í þögninni,
segist hún vera á
móti því að Frakk-
land sé að breytast
í íslamsríki. Í síð-
asta mánuði baðst
hún afsökunar á
þessu fyrir dómara
og sagði það aldrei
hafa verið ætlun sína að særa neinn
með skrifum sínum.
Jennifer Lopez er ekki mjög vinsælí Rússlandi þessa dagana. Fyrst
skrópaði hún á opnun verslunar
sinnar í Moskvu og svo afboðaði hún
þátttöku sína á
g ó ð g e r ð a s a m -
komu sem forset-
inn Vladimir Putin
og 450 munaðar-
leysingjar mættu á.
Í stað þess að
mæta eyddi Lopez
tíma sínum með
nýja eiginmannin-
um Marc Anthony á heimili sínu í
Beverly Hills. Í kjölfarið hefur hún
verið harðlega gagnrýnd í rússnesku
pressunni, aðallega vegna þess að
börnin voru mjög spennt yfir því að
fá að líta goðið sitt augum.
Fyrirtæki Mels Gibson sem sérum að dreifa myndum hans hefur
kært stærstu bíóhúsakeðju í Banda-
ríkjunum vegna vangreiddra launa
fyrir Jesúmynd-
ina The Passion
of Christ. Menn
deila um hver-
su hátt hlutfall
keðjan hafi
samþykkt að
borga af hverj-
um seldum
bíómiða. Ekki
er vitað hversu hátt hlutfall Jesú fær
af hverjum seldum miða.
Fagna fimmtán ára afmæli FM 95,7
„Fólk af öllum stærðum og gerð-
um hefur starfað á stöðinni í
gegnum tíðina,“ segir Heiðar
Austmann útvarpsmaður en í
dag eru liðin fimmtán ár frá því
útvarpsstöðin FM 95,7 fór í loft-
ið. „Milli 1989 og 1993 var dag-
skrárgerðin á stöðinni líkari því
sem Bylgjan er að gera núna. Út-
varpsfólkinu var frjálst að spila
af geisladiskum þá tónlist sem
það fílaði en nú lítum við meira
til erlendra útvarpsstöðva og
spilum lögin eftir ákveðnu
kerfi.“
Ýmsir hafa stigið sín fyrstu
útvarpsskref á FM 95,7. „Þáttur-
inn Tveir með öllu með Jóni Ax-
eli og Gulla Helga byrjaði hér á
stöðinni og Árni Magnússon fé-
lagsmálaráðherra var með síð-
degisþátt á FM 95,7 á sínum
tíma. Hulda Bjarna og Anna
Björk Birgisdóttir eru meðal
þekktra útvarpskvenna sem hafa
starfað hér og svo hafa tónlistar-
menn á borð við Einar Ágúst og
Hreim stjórnað hér þáttum.“
Í tilefni af afmælinu ætlar allt
heitasta liðið í bænum að flykkj-
ast út í Viðey. „Við ætlum að
reisa þar tjald og skapa
skemmtilega útihátíðarstemn-
ingu og eigum von á að um þrjú
hundruð manns taki þátt í fagn-
aðinum með okkur. Úti í Viðey
bjóðum við upp á ýmsar veigar,
grillum, syngjum og skemmtum
okkur. Sverrir Bergmann, Kalli
Bjarni, Hreimur og Magni ætla
sér allir að grípa í gítarinn og ný-
stirnin í Nylon stíga á svið en við
ætlum að leggja af stað út í Við-
ey klukkan sex og vera komin í
bæinn um miðnættið.“ ■
HREIMUR
Er meðal þeirra sem fara út í Viðey í kvöld
til að halda upp á afmæli FM 95,7 en
Hreimur hefur starfað beggja megin borðs-
ins á útvarpsstöðinni.
AFMÆLI
■ Hreimur, Magni og Sverrir Bergmann
eru meðal þeirra sem taka lagið í útihá-
tíðarstemningu í Viðey í kvöld.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
FRÉTTIR AF FÓLKI
60-61 (48-49) TV 11.6.2004 18:14 Page 3