Fréttablaðið - 12.06.2004, Side 62
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Evrópuþingið.
Orkuveita Reykjavíkur.
Í Washington, DC.
50 12. júní 2004 LAUGARDAGUR
... fá bifhjólamenn með Sniglana
í broddi fylkingar fyrir að minn-
ast með kyrrðarstund í Kúagerði
við Reykjanesbraut þeirra sem
látist hafa í umferðarslysum.
HRÓSIÐ
„Saga borgaralegrar óhlýðni
hér á landi er frekar fátækleg.
Hún hefur ekki verið stunduð
mikið hér,“ segir Páll Hilmars-
son hjá Samtökum her-
stöðvaandstæðinga. „En það
kannski breytist.“
Á vegum samtakanna eru kom-
in hingað til lands hjónin Milan
Rai og Emily Johns, sem eru
þekktir breskir friðar- og um-
hverfisverndarsinnar. Þau verða
með námskeið nú um helgina í
borgaralegri óhlýðni og á mánu-
daginn. Hvert námskeið stendur
í fimm tíma, og hefjast þau
klukkan þrjú í dag og á morgun,
en klukkan 18 á mánudaginn.
„Þau sérhæfa sig í svona nám-
skeiðum og hafa haldið mörg slík,
aðallega í Bretlandi. Þau hafa líka
skipulagt mótmæli mikið, og þau
vilja meina að stundum sé nauð-
synlegt að brjóta lög. Sérstaklega
ólög.“
Milan Rai hefur starfað náið
með Noam Chomsky í gegnum
árin og hefur skrifað bækur um
efni á borð við stríðsreksturinn í
Írak og um kenningar Chomskys.
Í gær hélt hann fyrirlestur í
Reykjavíkurakademíunni um
Íraksstríðið. Þar fjallaði hann
meðal annars um hvað hefði mátt
gera betur af hálfu friðarhreyf-
ingarinnar og einnig hvað var vel
gert.
„Hann vill meina að stríðið í
írak hafi ekki verið til að skipta
um stjórnarfar heldur að skipta
um stjórnarherra, það sé eina
merkjanlega breytingin.“
Eiginkona hans, Emily Johns,
er þekktur listamaður innan al-
þjóðlegu friðar- og umhverfis-
hreyfingarinnar. Þau búa á Bret-
landi, en Milan Rai er fæddur í
Nepal.
„Þau koma hingað ekki bara
sem friðarsinnar, heldur líka sem
aktivistar. Þau eru harðir and-
stæðingar Kárahnjúkavirkjunar
og ætla þangað í næstu viku.“
Milan rekur vefsvæðið Justice
not Vengeance, á www.j-n-v.org. ■
Finnski stórmeistarinn HeikkiWesterinen var efstur eftir tvær
umferðir á Sumarskákmóti Ístaks,
sem Hrókurinn heldur í höfuðstöðv-
um sínum í Skúlatúni. Í annarri um-
ferð bar hæst sigur Björns Þorfinns-
sonar á tékkneska stórmeistaranum
Jan Votava, sem er langstigahæsti
keppandinn á mótinu. Skák Björns
og stórmeistarans var mjög spenn-
andi, og náði Björn að leika laglega á
hann í tímahraki. Önnur úrslit urðu
þau að Lenka Ptacnikóva, nýjasti
stórmeistari Íslendinga, sigraði ald-
ursforsetann Ingvar Ásmundsson,
Páll Þórarinsson sigraði Bjarna
Hjartarson eftir að hafa lent í kröpp-
um dansi og jafntefli gerðu þeir
Faruk Tairi og Ingvar Jóhannesson.
Staðan eftir tvær umferðir var því sú
að Heikki Westerinen er efstur með
2 vinninga, síðan komu Lenka, Ingv-
ar Jóhannesson og Björn Þorfinns-
son með 1,5 vinning. Mótið heldur
áfram um helgina og það verður hart
barist og því má eiga von á óvæntum
úrslitum. Þeir sem komast ekki upp í
Skúlatún til þess að fylgjast með
framvindunni eiga þess kost að sjá
skákirnar í beinni útsendingu á net-
inu á slóðinni Hrókurinn.is.
1
6 7
8 9
14
16 17
15
18
2 3 4
1311
10
12
5
FRÉTTIR AF FÓLKI
Sýningin Með næstum allt á
hreinu verður frumsýnd á Broad-
way 2. október næstkomandi.
Verður hún að hluta til byggð á
tónlistinni úr hinni vinsælu Stuð-
mannamynd Með allt á hreinu.
Handritshöfundur og listrænn
stjórnandi sýningarinnar er Stuð-
maðurinn fyrrverandi Valgeir Guð-
jónsson. „Það var leitað til mín og
þessi hugmynd þótti nægilega góð
til að skoða hana,“ segir Valgeir.
„Það efni sem þarna um ræðir er að
heilmiklu leyti frá mér komið sem
höfundi og það freistaði mín að
ganga á hólm við það og skoða það í
öðru samhengi en áður. Þetta er efni
sem stendur mér svo nærri að mér
finnst mjög skemmtileg áskorun að
takast á við það.“
Aðspurður játar Valgeir að ef-
laust hafi verið kominn tími á sýn-
ingu sem þessa. „Efni Stuðmanna
er það mikið að vöxtum að það
væri hægt að gera úr því margar
uppfærslur í sjálfu sér. Þessi sýn-
ing gerir fyrst og fremst út á
skemmtun og grín. Þarna er leið-
arljósið að skemmta fólki og leyfa
því að hlusta á tónlist sem það
hefur oft heyrt áður.“
Ekki hefur verið ákveðið að
fullu hverjir muni taka þátt í sýn-
ingunni en að sögn Valgeirs verð-
ur það mjög öflugur hópur leikara
og tónlistarmanna. ■
Mjög skemmtileg
áskorun
VALGEIR GUÐJÓNSSON
Valgeir er handritshöfundur sýningarinnar
Með næstum allt á hreinu sem verður
frumsýnd í nóvember.
SÝNING
MEÐ NÆSTUM ALLT Á HREINU
■ VERÐUR FRUMSÝND 2. OKTÓBER.
Nauðsyn brýtur lög
MÓTMÆLI
SAMTÖK HERSTÖÐVA-
ANDSTÆÐINGA
■ hafa fengið til landsins breska
sérfræðinga í mótmælum.
gg,
óði,
ins,
l,
Lárétt:1möglar, 6óra, 7mó, 8nn,
9nes, 10fær, 12rík, 14met, 15ka,
16ás, 17hak, 18stór.
Lóðrétt: 1móna, 2örn, 3ga, 4ameríka,
5rós, 9nær, 11hest, 13kaka, 14más,
17hr.
Lárétt:
1 kvartar, 6 gruna, 7 þýft land, 8 óþekkt-
ur, 9 tangi, 10 hlotnast, 12 auðug, 14
skoða, 15 íþróttafélag, 16 spil, 17 agnúi,
18 umfangsmikill.
Lóðrétt:
1 sælgætisgerð, 2 fugl, 3 skammstöfun, 4
heimsálfa, 5 urt, 9 fangar, 11 jó, 13 terta,
14 stunur, 17 herra.
Lausn:
ÞRÍR UNDARLEGIR NAFNAR
ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON SKRIFAR
Hann hefur geymt mikið af
myndum af sjálfum sér, mjög
oft fáklæddum úti við, ósjaldan
á suðrænum slóðum.
Ég var píndur til þess að laga til
úti í geymslu í vikunni. Ég hef
lengi komið mér undan því verk-
efni vegna þess að það er fátt
sem mér líkar verr en lítil kvik-
indi sem skríða hratt yfir gaml-
ar bækur án þess að lesa þær.
Ég komst að raun um að það
eru fleiri en ég sem nota þessa
geymslu fyrir gamalt drasl, með-
al annars þrír alnafnar mínir.
Sá fyrsti er einstaklega
barnalegur og hégómlegur í
senn. Hann geymir ýmislegt öm-
urlegt föndur eftir sjálfan sig,
klunnalegar bókastoðir, ösku-
bakka sem minnir á kúadellu og
allar viðurkenningar sem hann
virðist hafa geta komið höndum
sínum yfir, einkunnir og alls
kyns skírteini sem sönnun á
félagsaðild.
Næsti nafni minn er tvíklofinn
persónuleiki. Hann virðist drif-
inn áfram af einhverri mjög
frumstæðri hvöt til þess að
mynda líkamleg sambönd við
kvenkyns borgara á sama aldri.
Hann hefur geymt mikið af
myndum af sjálfum sér, mjög oft
fáklæddum úti við, ósjaldan á
suðrænum slóðum. Og í stað þess
að safna viðurkenningum og ein-
kunnum eins og fyrsti Þorsteinn-
inn safnar þessi erótískum at-
hugasemdum og heimilisföngum.
En hann á sér aðra hlið sem
myndi beinlínis kallast væmin
því hann hefur geymt ljóð sem
hann hefur auðsjáanlega sjálfur
ort til ömmu sinnar og mörg
fyrirgefningar- og afsökunarbréf
til ýmissa aðila. Hann er veik-
lunda persónuleiki, minnir eigin-
lega mest á Enrique Iglesias.
Elsti Þorsteinninn er undar-
legastur. Hann leggur mest upp
úr því að safna að sér alls kyns
kvittunum og nótum. Hann
flokkar þetta niður í möppur og
merkir eftir ártölum. Það væri
auðveldlega hægt að afgreiða
hann sjálfan sem óáhugaverðan
ef ekki væri fyrir nýja áráttu
sem hann virðist vera að taka
upp á, að safna kjánalegu
föndri.
■
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/E.Ó
L.
MILAN RAI OG EMILY JOHNS
Þau verða með námskeið um borgaralega óhlýðni.
62-63 (50-51) fólk 11.6.2004 19:31 Page 2