Fréttablaðið - 12.06.2004, Side 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S E G J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G A S Í M I N N E R 550 5000
Sumt fólk er þannig að það get-ur nöldrað út af öllu. Sér bara
ekki björtu hliðar lífsins og þykir
sem aðrir séu alltaf að gera á
hlut þess. Svo eru aðrir sem fara
í fýlu yfir nánast hverju sem er.
Og ekki bara það, eru kannski í
fýlu dögum, jafnvel vikum, mán-
uðum eða árum saman. Oftast án
þess að sá sem fýlan beinist gegn
hafi minnstu hugmynd um
ástandið.
FÁTT er einskisverðara en vel
heppnuð fýla. Sá sem er fýlu-
gjarn kemst jafnvel svo langt
með þetta ástand að hafa nán-
ast nautn af því að vera í fýlu.
Öll þekkjum við til fólks sem
þannig hagar sér. Sumt af þessu
fólki er lánsamara en annað. Er
í þannig stöðu að geta opinber-
að fýluna, sýnt sig í fýlu þannig
að aðrir hrökkva við og spyrja
hvað hafi nú farið úrskeiðis.
Fýlupúkar sem þannig er ástatt
um eru lánsamari en hinir sem
enginn, í besta falli fáir, vita að
eru í fýlu.
SAMT sem áður er orkan sem
fer í fýluna illa nýtt. Sama er
að segja af þeim sem beinlínis
verða fyrir fýlunni. Mikið betra
er og skemmtilegra þegar fólki
tekst að lifa jákvætt og finna
ilminn af lífinu. Unaður. Þegar
ég var yngri var viðkvæði
sumra krakka að hóta að tala
aldrei við mann aftur ef gert
var eitthvað á hlut þeirra. Dóm-
urinn var stundum harður, sér-
taklega ef hann kom frá sætri
stelpu. Sem betur fer stóðu þær
aldrei við þessar hótanir. Fýlan
varði stutt.
SVO eru það hinir. Þeir sem
segjast ekki ætla að hætta öll-
um tjáskiptum heldur auka þau
sem mest þeir geta mislíki
þeim eitthvað, sem er hið
venjulega ástand þessa fólks.
Mér er sagt að Bjarni heitinn
Benediktsson, fyrrum forsætis-
ráðherra, hafi kallað þannig
fólk nöldurmenni. Sniðugt og
vel heppnað orð sem lýsir þess-
ari manngerð ótrúlega vel. Að-
ferðir nöldurmenna eru margs
konar. Þau eyðileggja kaffitíma,
saumaklúbba, rútuferðir, ferm-
ingarveislur og nánast allar
samkomur sem þau koma á.
NÚTÍMA nöldurmenni hafi
fleiri leiðir en þeir sem á undan
fóru. Í dag geta nöldurmenni
svalað fíkn sinni í spjallþáttum
og á netinu, þar sem sumir
hverjir hafa komið sér upp eig-
in nöldursíðu þar sem þeir geta
hindrunarlaust svalað fíkn
sinni. Nútíma nöldurmenni
virðast berjast innbyrðis um
hver geti kastað mestri rýrð á
venjulega borgara. ■
Fýlupúkar og
nöldurmenni
Tyllidagar í sumar
Sumargleði 29/04–17/06
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
24
96
8
06
.2
00
4
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
4
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is
TUSKÖ borð og 2 stólar
8.990,-
1.990,-
VÄSSARÖ galvaniseraðir pottar
590,-
CACTACEAE 3 stk. kaktusar
295,-
ODLA 3 blómapottar og bakki
3.990,-
BROMMÖ fellistóll
690,-
BRANÄS karfa 25x23 sm690,-
TYVÖ motta
76x114 sm marglituð
TILJA gólfklæðning 50x50 sm
790,-
ÉG ER ÓDÝRASTUR!
BAKÞANKAR
SIGURJÓNS M.
EGILSSONAR
64 (52) bak 11.6.2004 18:42 Page 2