Tíminn - 16.12.1972, Blaðsíða 5
Laugardagur 16. desember 1972
TtMINN
5
flpIIHSifS
Víi&ííí
Sólaóir HJÓLBARÐAR
til sölu á mjög hagstæðu
verði. Full dbyrgð tekin d
sólningunni. Sendum um
allt land gegn póstkröfu.
Hjólbarðavlðgerðir
Verkstæðið opið alla daga kl. 7.30 til 22
nema sunnudaga.
Ármúla 7 — Reykjavík — Sími 30501
ÞAÐ ER TEKIÐ EFTIR
AUGLÝSINGU I TÍMANUM!
Bjarkarbók er góð barnabók
Bókaútgáfan Björk
Túskildingsóperan i sið-
asta sinn
Túskildingsópera Brechts
*verður sýnd i siðasta sinn i Þjóð-
leikhúsinu n.k. laugardag þann
16. des. og er það 17. sýning
leiksins. Leikurinn var frum-
sýndur i byrjun þessa leikárs.
Róbert Arnfinnsson leikur sem
kunnugt er aðalhlutverk, Makka
hnif.
Hin vinsæla norska
Hafa ekki undan að smíða
trúlofunarhrínga fyrír jól
Nýjar barnabækur
Selurinn
Snorri
barnabók eftir Frithjof
Sælen, sem út kom árið
1950 og hefur verið:
ófáanleg um árabil.
Viðkunn bók i mörgum
litum. Þýðandi Vil-
bergur Júliusson.
Kata litla og brúðuvagninn
eftir Jens Sigsgaard, höfund bókarinnar
Palli var einn í heiminum, sem gefin hefur
verið út í 30 þjóðlöndum og nýtur fádæma vin-
sælda hér á landi.
Kata litla og brúðuvagninn
er einnig mjög vinsæl barnabók í mörgum
löndum. Litmyndir eftir Arne Ungermann,
sem teiknaði myndirnar í Palli var einn í
heiminum. Þýðandi Stefán Júlíusson.
Munið ennfremur barnabókasafnið
SKEMMTILEGU SMÁBARNABÆKURNAR.
Eftirtaldar bækur eru nýlega komnar út: Bláa
kannan, Græni hatturinn, Láki, Skoppa og
Stúfur.
Klp—Reykjavik
Um þessar mundir á verzlun
Halldór Sigurðssonar að Skóla-
vörðustig 2 i Reykjavik 15 ára
afmæli. Verzlunin hefur á
þessum árum verið til húsa á
sama stað, fyrst uppi á loft i
húsinu,en nú siðari ár á götuhæð .
Þar hafa nú verið gerðar
miklar endurbætur á verzluninni,
hún stækkuð og vöruúrval aukið
að mun. Var gamla verkstæðið
tekið undir verzlunina og
verkstæðið flutt i næsta hús við
hliðina.
Halldór Sigurðsson sagði i
stuttu viðtali við Timann i gær,
að með þessari stækkun gæti
hann boðið fólki upp á fjöl-
breyttari silfurvörur, aðallega
skálar, bakka og glös, en einnig
fleiri tegundir. Einnig yrði hann
með mikið úrval af norskum tin-
hlutum, sem væru nýkomnar til
landsins. Mest væri þó úrvalið af
steinhringjum, og þvi til sönn-
unnar sýndi hann okkur á milli
500 og 1000 hringa af öllum
stærðum og gerðum. Var verð
þessara hringa æði misjafnt, eða
allt frá 1000 krónum i 50.000
krónur.
Eins og mörgum er eflaust
kunnugt, hefur Halldór smiðað og
selt trúlofunarhringa i fjölda
mörg ár, enda kannast sjálfsagt
margirvið auglýsinguna „Kaupið
hringana hjá Halldóri” og þau
HH—Raufarhöfn.
Tiðarfar hefur verið nokkuð
rysjótt hér um slóðir i rúman
hálfan mánuð, en sjór er litill og
hefur ekki orðið til verulegs
trafala. Að visu varð maður að
skilja eftir jeppa á leiðinni á milli
Þórshafnar og Raufarhafnar
núna einn daginn, en það var
aðeins snöggvast, að vegurinn
tepptist.
Tvær vörubifreiðar, sem halda
uppi ferðum til Húsavikur, hafa
ávallt komizt leiðar sinnar. Aftur
á móti uröu þær fyrir miklum
töfum núna á dögunum milli
Akureyrar og Húsavikur.
Nú er bloti hér á Sléttu, og snjó
tekur upp.
FÉLACSMERKI
A milli 500 og 1000 steinhringar af öiium geröum og stærðum eru
meðal þeirra skartgripa, sem fást I hinni endurbættu verziun Halldórs
að Skólavörðustig 2. (Timamynd Róbert)
eru ófá pörin, sem hafa farið eftir
henni. Halldór sagði okkur, að
það væri alltaf nóg að gera i þvi
að smiða svona hringa, og nú
væri sannkölluð vertið þeirra að
hefjast.
„Við höfum varla undan að
smiða trúlofunarhringa fyrir
jólin og áramótin, og er nánast
ekkert hægt að gera á verk-
stæðinu siðustu dagana fyrir jól
og á milli jóla og nýárs annað en
að ljúka þvi af, enda afgreiðum
við þá samdægurs”. Aðspurður
sagði Halldór, að i dag væri al-
gengasta verðið fyrir trúlofunar-
hringa um 10 þúsund krónur, en
þeir sem vildu gera sérstaklega
vel við elskuna sina og sjálfan sig,
gætu fengið hringa, sem kostuðu
nálægt 30 þúsund krónum.
Lítill snjór
Afli fogskipa
fer síminnkandi
Aðalfundur Útgerðarfélags Skagfirðinga
GÓ—Sauðárkróki
Aðalfundur Útgerðarfélags
Skagfirðinga var haldinn á
Sauðárkróki 9. des sl\ Samkvæmt
rekstrarreikningi var halli á
árinu 1971 4.891 þús., en þá höfðu
eignir félagsins verið afskrifaðar
um 4.575 þúsund krónur.
Árið 1971 rak Útgerðarfélagið
tvö togskip, Drangey, 250 tonn og
skuttogarann Hegranes, 380 tonn.
Afli Drangeyjar á þvi ári var 888
tonn að verðmæti 13.1 milljónir
króna, er Hegranesið aflaði 1.594
tonn og verðmæti þess afla var
23.7 milljónir króna.
A fundinum kom fram, hversu
mjög afli togskipa hefur minnkað
á siðast iiðnum árum, en út-
gerðarfélagið rak Drangey tæp 4
ár. Árið 1968 (ekki heilt) aflaði
hún 1200 tonn, árið 1969 1589 tonn,
árið 1970 1084 tonn, og árið 1971
888 tonn, eins og áður segir. 1 árs-
byrjun 1972 var Drangey seld, og
var þvi Hegranesið eitt gert úr á
þessu ári, en nú er i smiðum i
Japan skuttogara fyrir félagið,
sem á að afhendast i april nk.
Útgerðarfélag Skagfirðinga var
stofnað 17 jan. 1968. Hákon
Torfason bæjarstjóri hefur verið
formaður stjórnar þess frá
byrjun, og gengdi hann jafnframt
störfum framkvæmdastjóra, þar
til siðla árs 1971, er Stefán Guð-
mundsson bæjarfulltrúi tók við
þvi starfi. Auk þeirra eru i stjórn-
inni: Marteinn Friðriksson,
Kristján Hansen, Árni Guð-
mundsson, Erlendur Hansen og
Haukur Hafstað.
ALLA DAGA
MANUDAGA MANUDAGA ÞRIÐJUDAGA FIMMTUDAGA ALLA DAGA LAUGARDAGA LAUGARDAGA
FÖSTUDAGA FÖSTUDAGA SUNNUDAGA
1