Tíminn - 16.12.1972, Síða 24
IVIyndin var tekin á skrifstofu forseta islands, þegar Guðmundur Pétursson, formaður framkvæmda-
nefndar Landssöfnunar i Landhelgissjóð^afhenti dr. Kristjáni Eldjárn þrjá fyrstu landhelgispeningana,
sem slegnir voru. Lengst til vinstri á myndinni er Konráð Axelsson, framkvst. Útflutningssamtaka gull-
smiða, — við hlið Guðmundar er Jens Guðjónsson, gullsmiður og lengst til hægri Jón Asgeirsson,
Færðu forsetanum
fyrstu peningana
Góður afli
í fyrstu
veiðiferð
GS—tsafirði.
Nýi togarinn', Július Geir-
mundsson, kom inn i dag úr
sinum fyrsta veiðitúr. Hefurskip-
ið verið úti i fjóra sólarhringa.
Aflinn er 60 tonn eftir svo stuttan
tima, sem verður að telja mjög
gott.
Skipið og búnaður þess
reyndust prýðilega i alla staði og
eru skipverjar ánægðir með það.
Aflinn er nær eingöngu sæmilega
stór þorskur, en togarinn var að
veiðum út af Djúpinu. Fer skipið
i annan stuttan veiðitúr fyrir jól
Stórum
bílum
ofaukið
á þvotta
plönunum
Klp—Iteykjavik.
I'rjó oliufélög I Iteykjavík liafa
farið þess á leit við borgaryfir-
völdin. að þau fái úthlutaða lóð á
horgarsvæðinu undir þvottastæði
lyrir stærri ökutæki. Félögin eru
Oliuver/lun tslands, Oliufélagið
og Skcljungur. Pessi umsókn
þeirra var tekin fyrir á siðasta
l’undi borgarráðs og henni visað
til umsagnar horgarvcrk-
fræðings.
Að sögn Svans Friðgeirssonar
stöðvarstjóra hjá Oliuverzlun
Islands, væri nokkuð liðið siðan
þessi þrjú félög hefðu farið að
ræða um að reisa sameiginlegt
þvottastæði fyrir stærri bila.
Þetta væri orðið aðkallandi, þvi
stórir bilar væru orðnir hálf illa
séðir á þvottastæðunum, þar sem
þeir tækju mikið rúm og þeim
fylgdi oft nokkur óþrifnaður.
Okumenn þessara stóru bila, eins
og vörubila, steypubila, gripa-
flutningabila og fleiri gerðu sér
grein fyrir þessu og vildu þvi
gjarna fá svæði, sem eingöngu
væri fyrir þá.
,,Það er aðeins til eitt plan hér i
bænum, sem er ætlað fyrir þessa
stóru bila, en það er hjá Vörubila-
stöðinni Þrótti við Borgartún og
það er þegar orðið of litiö” sagði
Svan. ,,Þar sem þessir stóru bilar
eiga að fá þvott, verða að vera
háþrýstidælur og fleira, en þær er
ekki að hafa á þessum venjulegu
þvottaplönum, sem þar fyrir utan
eru ekki gerð fyrir það álag, sem
þessum stóru og þungu bilum
fylgir.
Við höfum bent á einn hugsan-
legan stað fyrir þetta stórbila-
þvottaplan, en engin ákvörðun
hefur verið tekin hjá borgaryfir-
völdunum um það né annað varð-
andi þessa umsókn okkar og við
biðum nú bara eftir þvi”.
Grímsey-
ingar fá
nýja báta
GJ—Grimsey
Héreru nú tólf til fjórtán bátarl
vor var keyptur ellefu lesta bátur,
sem veiddi hvorki meira né
minna en fjórða hlutann af þeim
fiski, sem kom á land i Grimsey i
sumar.
Nú hafa verið fest kaup á
öðrum báti, jafnstóðum, og mun
hann koma til Grimseyjar seinni
hluta vetrar.
Framkvæmdanefnd Lands-
söfnunar i Landhelgissjóð hefur
gefið forseta Islands, dr.
Kristjáni Eldjárn þrjá fyrstu
Landhelgispeningana, sem
slegnir hafa veriö á vegum
nefndarinnar og útflutningssam-
taka gullsmiða — Minnispen-
ingarnir, „sett” númer 1, voru af
hentir forsetanum á skrifstofu
hans i morgun, en fyrstu pen-
ingarnir komu til landsins i gær,
frá Sviþjóð, þar sem þeir eru
slegnir.
Erl—Keykjavik
Eins og komiö hefur fram i
fréttum, er nú mjög mikill snjór
viðast á austanverðu Norður-
landi, einkum i S-Þingeyjarsýslu.
Snjórinn er sums staðar svo mik-
ill, að þýðingarlaust er talið að
svo stöddu að moka suma vegi
a.m.k. á meðau ekki breytist tíð.
Er blaðið hafði samband við
Jón Sigurðsson, vegaverkstjóra á
Húsavik, i gær sagði hann, að þá
Óvenjulega litið hefur verið um
aö vera hjá Landhelgisgæzlunni
það sem af er þessa mánaðar. Er-
léndu togurunum hefur fækkað
verulega út af Vestfjörðum. Þar
hafa gæftir verið stirðar, oftast 6
til 9 vindstig á miðunum. Leiðir
þá af sjálfu séc að ágangur togar-
anna minnkar mjög. Aftur á móti
hefur þeim fjölgað úti fyrir
Austurlandi, en þar hefur veður
verið betra.
1 mánuðinum hefur ekki farið
nákvæm talning á erlendu togur-
unum við landið, sagði blaðafull-
trúi Landhelgisgæzlunnar i gær.
Vegna veðurs hefur litið verið
hægt að fljúga, en þó liggja fyrir
sæmilegar upplýsingar um fjölda
togaranna.
Um 20 vestur-þýzkir togarar
hafa verið að veiðum við landið
Formaður framkvæmda-
nefndarinnar, Guðmundur
Pétursson, afhenti forsetanum
gjöfina, gullpening, silfurpening
og bronspening, alla i öskjum.—
Peningarnir eru slegnir hjá
sænska fyrirtækinu SPORRONG
eftir teikningu Jens Guðjóns-
sonar, gullsmiðs. —
Þegar hafa margar pantanir
borizt, viðs vegar að af landinu.
Nokkrir gullpeningar eru eftir af
fyrstu sendingunni, en silfur- og
mætti teljast fært stórum bilum
og jeppum milli Akureyrar og
Húsavikur. Búiðværiaðmoka frá
Akureyri austur i Háls i Fnjóska-
dal og frá Húsavik suður að
Hjaltastöðum i Kinn, en þar á
milli yrði ekki mokað að óbreyttu
ástandi. Vegirnir þarna i Ljósa-
vatnsskarðinu og Suður-Kinn eru
gamlir og ekki upphækkaðir, og
er þvi ekkert hægt að gera við
þann snjó, sem á þeim er, annað
og um 60 brezkir. Eins og áður
hefur komið fram i fréttum halda
varðskipin áfram að stugga við
erlendu togurunum.
Vegna samgönguerfiðleika á
Vestfjörðum og Austfjörðum
hefur Landhelgisgæzlan haft
mörgum öðrum verkefnum að
sinna. Má nefna sjúkraflutninga,
bronspeningarnir eru allir seldir,
og önnur sending er væntanleg
fljótlega eftir áramót. Alls verða
slegnir 1000 gullpeningar, 4000
silfur- og 4000 bronspeningar. —
Allir peningarnir eru tölusettir,
og verða 250 „sett” afgreidd fyrir
áramót. Tekið er á móti
pöntunum á skrifstofu Lands
söfnunar, Laugavegi 13, simi
26723, og einnig er unnt að panta
skriflega, pósthólf 5010,
Reykjavik. —
en að setja hann i háa ruðninga
við vegkantana, en um leið og
snjó hreyfði myndu þau göng um-
svifalaust fyllast.
Jón sagði, að á þessum
kafla væru harðtroðnar slóðir,
sem þó héldu að sjálfsögðu ekki
fullhlöðnum vörubilum. Nokkur
bleyta hefur verið i snjó á svæð-
inu, þó að ekki hafi tekið, og eru
þvi slóðirnar vel þéttar og sums
Framhald á bls. 23
fólksflutninga, þar á meðal flutn-
ing á skólabörnum og þjónustu
við vitanna. Snjóbilar á Vest-
fjörðum og Austfjörðum biluðu
um tima. Jók það mjög á
aðstoðarþörfina, og eru varð-
skipin stundum einu samgöngu-
tækin, sem fólk i strjálbýlum
byggðum hefur.
Komið upp
um ársgamla
stuldi
Oftast gengur erfiðlega fyrir
rétta eigendur að fá aftur þær
eignir sinar, sem þjófar stela.
Þótt takist að hafa hendur i hári
þjófanna eru þeir iðulega búnir að
eyða eða farga þvi sem þeir stálu.
En stundum komast gripir i
hendur réttra eigenda þótt siðar
verði. 1 októbermánuði i fyrra var
stolið verðmætum stól i rokkóstil
úr húsgagnaverzlun i Reykjavik.
F'yrir nokkrum dögum játaði
náungi nokkur að hafa stolið
stólnum og vísaði rannsóknar-
lögreglunni á hann. Var stóllinn
þá i viðgerð á verkstæði, en hann
hefur prýtt heimili þjófsins i rúmt
ár.
Sami maður viðurkenndi einnig
að hafa stolið silfurborðbúnaði,
fatnaði, útvarpstæki, matvælum
og fleiru úr mannlausri ibúð
siðasta gamlaársdag. Silfrið
fannst i fórum mannsins, en hitt
var étið, selt og eytt.
TRUMAN
VIÐ DYR
DAUÐANS
Kansas City 15/12 (NTB-Reuter-
UPI)
Harry S. Truman, fyrrum for-
seti Bandarikjanna er lifshættu-
lega veikur enn, þar sem hann
liggur á sjúkrahúsi i Kansas City.
Þar var hann lagður inn fyrir 10
dögum vegna bronkitis. Mun
hann hafa sofið litið á föstudags-
nótt, og i gær var hann meira og
minna meðvitundarlaus. Samt
sem áður er likamshiti hans,
andardráttur og púls með eðli-
legum hætti.
Truman var hætt kominn i
nokkra daga um daginn, en náði
sér nokkuð aftur um siðustu helgi.
Nú hefur heilsu hans sem sé
hrakað mjög aftur, svo að
minnsta breyting á hita eða blóð-
þrýstingi getur leitt til dauða.
Einnig virðast nýru hans ekki
starfa eðlilega, og tækjabúnaður
kemur þar ekki til neinnar
hjálpar.
Dóttir Trumans, Margarethe,
og tengdasonurinn Robert
Crahm, eru stöðugt hjá honum.
Vindasamt
en lítill
snjór
S.Þ.—Hvassafelli
Að undanförnu hefur verið með
eindæmum vindasamt i Borgar-
firði og minnast menn varla svo
langvinns hvassveðurs hér um
slóðir. Ekki er mér þó kunnugt
um, að tjón hafi orðið af völdum
veðursins.
Það vegur þó upp á móti, að lit-
ill snjór er i héraðinu og allir veg-
ir bilfærir. Við getum þvi verið
ánægðir með tiðina þegar á heild-
ina er litið.
Annars er litið að fréttn úr
mannlifinu hér um slóðir, nema
það helzt, að óvenju fámennt er á
bæjum og litið af ungu fólki
heima. Illa hefur gengið að fá að-
keypt vinnuafl til starfa i sveit-
inni, þótt á hafi legið.enda ekkert
atvinnuleysi i landinu.
Holtavörðuheiði fær öllum bílum
HÖ—Fornahvammi
Norðurleiðin hefur verið
fær siðan á þriðjudag, og
hefur verið mikil umferð
bæði norður og suður af
fólks- og flutningabilum.
Snjór er ekki mikill, en veður
heldur leiðinleg, norðanátt
og litilsháttar renningur.
Sökum hins leiðinlega og
litilsháttar renningur.
Sökum hins leiðinlega
tiðarfars hefur ekki verið
gengið til rjúpna að undan-
förnu, en áður. en tið spilltist
var veiði oftast ágæt, og
komu skyttur hlaðnar heim.
TR0ÐNAR SLÓÐIR A ANN-
AN METRA YFIR VEGINUM
- Mokstur þýðingarlaus á meðan ekki batnar tíð
Erlendum togurum fækkar
- en verkefnum gæzlunnar fjölgar