Fréttablaðið - 19.07.2004, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 19.07.2004, Blaðsíða 2
PALESTÍNA, AP Staða Jassers Arafat, leiðtoga Palestínumanna, er erfið- ari en hún hefur verið um margra ára skeið. Mikillar óánægju gætir með spillingu sem þykir hafa vaðið uppi innan heimastjórnarinnar auk þess sem hópar Palestínumanna keppast nú um að tryggja sér áhrif í aðdraganda þess að Ísraelar draga sig á brott frá Gazasvæðinu. Palestínskir vígamenn réðust á stjórnarbyggingu í Gaza í gær til að mótmæla skipan náfrænda Ara- fats í embætti yfirmanns öryggis- stofnana. Þá eru skipulagsbreyt- ingar á öryggissveitum sem Arafat tilkynnti á laugardag sagðar engu breyta þar sem öryggissveitirnar heyri eftir sem áður undir Arafat og að ekkert sé gert til að draga úr spillingu. Mikil mótmælaalda reis um helgina. Í gær komu hundruð manna saman á götum Gazaborgar, margir vopnaðir, til að mótmæla skipun Moussa Arafat. Tugir grímuklæddra vígamanna gengu um Nusseirat flóttamannabúðirnar og kölluðu „Nei við Moussa Arafat, já við umbótum“. Fjölmenn mót- mæli áttu sér einnig stað á laugardag. Mótmælin gegn Arafat og stjórn hans eru þær mestu um rúmlega eins árs skeið. Í fyrra urðu mótmæli gegn spillingu í heimastjórninni svo mikil að Ara- fat varð að lofa umbótum og skipa nýja ríkisstjórn undir stjórn for- sætisráðherra. Sú staða var þá tek- in upp í fyrsta sinn í palestínsku heimastjórninni. Fyrsti maðurinn til að gegna henni, Mahmoud Abbas, sat þó aðeins í fjóra mánuði áður en hann sagði af sér. Abbas, líkt og Ahmed Qureia, var ósáttur við að Arafat gæfi ekki nógu mikið eftir af völdum sínum. Qureia sagði af sér í fyrradag en Arafat neitar að taka afsagnar- beiðnina gilda. Heimastjórnin á að funda í dag og þar gæti framtíð Qureia ráðist. Gomma Ghali, yfirmaður strandgæslunnar, sem hefur verið tryggur stuðningsmaður Arafats, sagði af sér í gær í mótmælaskyni við skipun Moussa Arafat. ■ 2 19. júlí 2004 MÁNUDAGUR LONDON Fyrrum vopnaeftirlits- sérfræðingur Bandaríkjanna, David Kay, segir að George W. Bush Bandaríkjaforseti og Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, hefðu átt að gera sér grein fyrir því áður en þeir hófu stríð- ið í Írak að upplýsingar um ger- eyðingarvopn Íraka hefðu verið byggðar á veikum grunni og að ekkert benti til að Saddam Hussein ógnaði öryggi Vestur- landa. Kay lét þessi orð falla í viðtali við breska sjónvarpsstöð. Kay sagði af sér embætti í janúarmánuði síðastliðnum og var sú niðurstaða hans að Írakar ættu ekki birgðir af vopnum sem eru á bannlista afar óþægileg fyrir Bush og Blair. Réttlæting þeirra á stríðinu hafði byggst á gereyðingarvopnaeign Íraka. David segir að leiðtogarnir hefðu ekki verið nægilega gagnrýnir á upplýsingar um vopnaeign Sadd- ams þar sem þeir hefðu haft nægar aðrar ástæður fyrir inn- rásinni og því hafi efinn um tilv- ist gereyðingarvopna ekki verið jafn alvarlegur í þeirra huga og hann var í hugum heimsbyggðar- innar. ■ Hart sótt að Arafat Mikil mótmælaalda hefur risið gegn Jasser Arafat um helgina. Óánægja ríkir með að lítið sé gert til að vinna gegn spillingu innan heimastjórnarinnar og nokkrir hópar reyna að tryggja áhrif sín fyrir brotthvarf Ísraela frá Gaza. Sundgarpi bjargað: Synti til Engeyjar LÖGREGLA Rétt fyrir sjö í gær- morgun var lögreglunni í Reykja- vík tilkynnt um mann sem hafði hent sér í sjóinn við Reykjavíkur- höfn. Samferðarmenn sundkappans létu lögreglu vita og mætti lög- regla á Olísstöð við Sæbraut til að tala nánar við fólkið. Maðurinn hafði þá hent sér út í sjó og ætlaði að synda til Viðeyjar. Neyðaráætl- un var sett í gang og björgunar- bátur lögreglunnar fór af stað að ná í manninn. Þegar björgunar- bátur náði manninum var hann kominn út í Engey. Maðurinn var ekki fluttur á sjúkrahús og virtist hann vera í góðu lagi að sögn lögreglu. Mað- urinn gaf enga aðra ástæðu fyrir þessu uppátæki sínu og hann var allsgáður. ■ ■ BANDARÍKIN „Sagan segir að Manchester United taki þetta en ég vildi óska að Manchester City gerði kraftaverk.“ Magnús Ragnarsson er framkvæmdastjóri Íslenska sjónvarpsfélagsins hf. sem rekur sjónvarpsstöðina Skjá 1. Enski boltinn mun hefja göngu sína á Skjá einum 15. ágúst og vinna starfsmenn stöðvarinnar nú hörðum höndum að því að bæta dreifikerfið á sem ódýrastan máta. SPURNING DAGSINS Magnús, hverjir verða meistarar? Breskir kjósendur: Treysta Blair ekki í stríð BRETLAND Meirihluti breskra kjós- enda treystir Tony Blair forsætis- ráðherra ekki lengur til að leiða land sitt í stríð samkvæmt niður- stöðum skoðanakönnunar sem birtist í Sunday Times. 57 prósent segjast ekki myndu treysta Blair ef kæmi til annars stríðs og aðeins 31 prósent sagðist treysta honum til að leiða landið í öðru stríði. Nær helmingur, eða 46 prósent, sagðist telja að Blair hefði vísvitandi beitt blekkingum í tengslum við innrásina í Írak en litlu færri, eða 43 prósent, telja að forsætisráðherrann hafi trúað því sem hann sagði. Þrír af hverjum fimm vilja að Blair biðjist afsökunar. ■ MÓTMÆLI GEGN ARAFAT Sú ákvörðun Jassers Arafat að skipa frænda sinn Moussa yfirmann öryggissveita vakti mikla reiði. Moussa er sakaður um mannréttindabrot og pyntingar. TONY BLAIR 61 prósent telur að hann eigi að biðja þjóðina afsökunar vegna rangra upplýs- inga um gjöreyðingarvopn Íraka. Hjónaerjur: Kona barin með krókódíl BANDARÍKIN, AP Karlmaður í Flórída er sakaður um að hafa barið unn- ustu sína með krókódíl, auk þess að hafa hent í hana flöskum. Krókó- díllinn, sem maðurinn hafði geymt í baðkari, hefur verið afhentur dýraverndunarsamtökum. Unnustan sagði lögreglu að kærastinn hefði barið hana með hnefunum, síðan gripið krókódílinn og sveiflað honum í átt að henni þegar hún reyndi að flýja. Hún segist hafa fengið að minnsta kosti eitt högg með krókódílnum. Hún sakar unnustann einnig um að hafa hent tómum bjórdósum í sig. Kær- astinn segir aðra sögu, hann heldur því fram að kærastan hafi bitið hann í höndina vegna þess að hún var í uppnámi yfir því að ekkert áfengi var til á heimilinu. ■ KAUPMÁTTUR MINNKAR Laun bandarískra verkamanna halda ekki í við verðbólgu. Atvinnu- leysi undanfarinna ára hefur leitt til þess að laun hafa að mestu staðið í stað. Þetta hefur orðið til þess að hagfræðingar telja hættu á að hagvöxtur verði minni en ella fari laun ekki að hækka. ■ Viðræður um lyfjaverð: Viðmiðunarverð afnumið LYFJAVERÐ Nú standa yfir viðræður á milli félags íslenskra stórkaup- manna og heilbrigðisráðuneytisins um lækkun á lyfjaverði. Félag ísl- enskra stórkaupmanna vill afnema svokallað viðmiðunarverð á lyfjum og koma nýju kerfi á laggirnar. „Við viljum leita annarra leiða og nema viðmiðunarverðið úr gildi. Það er margt annað hægt að gera og vilj- um við skapa sérstakt kerfi. Við vilj- um skoða aðra þætti í lyfjamálum en ekki aðeins verðlagningu og koma því þannig fyrir að lyfjaverð sé ekki alltaf ádeiluefni. Yfirleitt fer um- ræða um lyfjaverð úr böndunum á hverju ári. Við viljum skapa kerfi sem flestir eru sáttir við og hægt sé að nota það til framtíðar,“ segir Hjörleifur Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri lyfjafyrirtækisins Glaxo Smith Kline og einn af fulltrú- um félags íslenskra stórkaupmanna í þessum viðræðum. „Mál þetta skýrist allt í næstu viku en ég er mjög bjartsýnn maður að eðlisfari. Báðir aðilar vilja ná sáttum á þeirri leið sem á að fara og því er ég handviss um að við lendum þessu,“ bætir Hjörleifur við. ■ BÍLVELTA Í SVÍNAHRAUNI Bifreið valt um hálfsjöleytið í gærmorgun rétt fyrir neðan Hveradalabrekku í Svínahrauni. Einn maður var í bíln- um og var hann fluttur á Land- spítala - háskólasjúkrahús til skoð- unar. Tildrög slyssins eru ókunn en bifreiðin er mikið skemmd að sögn lögreglunnar á Selfossi. Maðurinn var lítillega slasaður og var hleypt heim eftir skoðun að sögn vakt- hafandi læknis á slysadeild. ERILL Á DALVÍK Fjórir voru teknir fyrir of hraðan akstur aðfaranótt sunnudags í umdæmi lögreglunnar á Dalvík. Einn ölvaður einstakling- ur var síðan fjarlægður af ættar- móti aðfaranótt sunnudags sem og einn einstaklingur í annarlegu ástandi í Hrísey og fluttur á sjúkrahús. ■ ■ LÖGREGLUFRÉTTIR LÆKKUN Á LYFJAVERÐI Félag íslenskra stórkaupmanna vill afnema viðmiðunarverð og skapa kerfi þar sem deilur blossa ekki reglubundið upp um lyfjaverð á Íslandi. VÍGAMAÐUR GEFUR SIG FRAM Ibrahim al-Sadeq al-Qaidy, varð fjórði sádí-arabíski vígamaðurinn til að gefa sig fram eftir að þar- lend stjórnvöld hétu því að krefj- ast ekki dauðadóms yfir víga- mönnum sem það gerðu. Al- Qaidy gaf sig fram í Sýrlandi og var flogið með hann til Sádí-Ara- bíu. Krafist verður dauðadóms yfir þeim vígamönnum sem ekki gefa sig fram en nást. ■ EFTIRLÍKINGAR AF BUSH OG BLAIR Maðurinn sem stjórnaði vopnaleit Banda- ríkjanna í Írak segir Bush og Blair ekki hafa verið nógu gagnrýna á upplýsingar. Vopnaeftirlitssérfræðingur gagnrýninn á þjóðarleiðtoga: George W. Bush og Tony Blair áttu að vita betur ■ MIÐAUSTURLÖND Stúlka datt af baki: Ekki alvar- lega slösuð SLYS Ung stúlka slasaðist er hún datt af hestbaki síðdegis í gær í Heydal í Mjóafirði í Ísafjarðar- djúpi. Stúlkan var flutt á Landspít- ala - háskólasjúkrahús í Reykja- vík og þjáðist af höfuðmeiðslum. Hún gekkst undir nokkrar rann- sóknir á sjúkrahúsinu og átti eftir að fá niðurstöður úr þeim þegar Fréttablaðið fór í prentun í gær- kvöldi. Að sögn vakthafandi lækn- is á slysadeild þá virtist hún ekki alvarlega slösuð. ■ 02-03 18.7.2004 21:57 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.