Fréttablaðið - 19.07.2004, Side 10

Fréttablaðið - 19.07.2004, Side 10
10 19. júlí 2004 MÁNUDAGUR GÖMLUM VOPNUM EYTT Íraskir hermenn koma gömlum sprengjum fyrir á stað utan Basra áður en þeir sprengja þær í loft upp. Unnið er að því að eyða gömlum vopnum og skotfærum. Miðbær Reykjavíkur: Fáir nota stæði í bílahúsum BORGARMÁL Rúm 70 prósent öku- manna nota sjaldan eða aldrei bílahús í miðbæ Reykjavíkur og hækkar þetta hlutfall í 90 prósent þegar um fullorðið fólk er að ræða. Þetta eru niðurstöður könn- unar sem gerð var um notkun bílahúsanna af hálfu nokkurra nemenda í endurmenntunardeild Háskóla Íslands. Könnunin var gerð í desember síðastliðnum. Bílahúsin í miðbænum eru sex talsins með rúmlega þúsund bílastæðum alls og verið er að byggja eitt enn á lóð þeirri er Stjörnubíó stóð á áður. Þar verður pláss fyrir 200 bíla til við- bótar en gert er ráð fyrir að bygging þess hefjist í júní á næsta ári. Bílastæðasjóður rekur húsin en tilgangur sjóðsins hefur verið að stýra nýtingu bílastæða í því skyni að auka verslun og þjónustu í miðborginni en sé tekið mið af könnuninni hefur sú tilraun mistekist enda er nýting flestra bílahúsa enn vel undir 50 prósentum. Kynningar og aug- lýsingar á bílastæðamöguleikum í húsunum virðast hafa haft tak- mörkuð áhrif sem sést líklega best á því að tæp 70 prósent að- spurðra vissu ekki að frítt er í flest bílahúsin á laugardögum. ■ Erfiðar aðstæður fæla frá fólk Yfirmaður framkvæmda Impregilo við Kárahnjúka segir starfsmannaveltu mikla, óháð þjóðerni starfsmanna. Erfiðar aðstæður setja strik í reikninginn. Heldur færri Íslendingar starfa við gerð Kárahnjúkavirkjunar en upphaflega var áætlað. Vinna við stöðvarhús Kárahnjúka- virkjunar og göng því tengdu er langt komin. Í kynnisferð sem Landsvirkjun bauð fjölmiðlum landsins í fyrir helgi kom fram að lokið hefur verið við um 75 prósent af göngum tengdum stöðvarhúsinu og ætlað að þeim hluta verksins ljúki í haust. Foss- kraft JV sér um þann hluta verks- ins. Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo sér hins vegar um gerð aðrennslis- og veituganga úr lón- um og á þeirri gangagerð að vera lokið í byrjun árs 2007. Impregilo er stærsti einstaki verktakinn sem vinnur við gerð Kárahnjúkavirkjunar, en fyrir- tækið sér einnig um smíði aðalstí- flunnar við Fremri Kárahnjúk. Á blaðamannafundi sem haldinn var kom fram að nokkrar tafir hafa orðið á vinnu við gerð undirstöðu stíflunnar vegna gljúps jarðvegar og sprungna. Gianni Porta, yfir- maður framkvæmda hjá Impregilo, segist þess hins vegar fullviss að takist að vinna upp glataðan tíma. „Upphaf fram- kvæmda er alltaf langerfiðasti tíminn,“ sagði hann og dró ekki úr að hér hafi nokkrir hlutir komið þeim Impregilo mönnum á óvart. Einna helst sagði hann þó veður- far og aðstæður síðasta vetur hafa verið erfiðar. „Rokið er langverst og alveg ótrúlegt,“ sagði hann og bætti við að þekking á aðstæðum og veðurfari kynni að hluta til að skýra hvers vegna Íslendingar sæktu ekki í meira mæli í að vinna við stíflugerðina við Kára- hnjúka. Hann sagði þó að hjá Imp- regilo væri hlutfall erlendra og innlendra starfsmanna þó í takt við þær áætlanir sem gerðar höfðu verið. „Íslendingar sem hjá okkur vinna eru um 20 prósent af heildarfjölda starfsmanna,“ sagði hann. Veðurfar og aðstæður sagði hann að gerðu mannahald dálítið erfiðara en ella og hefði það áhrif í starfsmannaveltu hjá öllum þjóðernum sem hjá fyrirtækinu störfuðu. „Minnst áhrif eru grein- anleg hjá starfsfólki frá þriðja- heimslöndum. Við erum með fólk sem starfað hefur við ámóta framkvæmdir í Patagóníu í Suður- Argentínu við sambærileg veður- farsskilyrði. Svo líka fólk sem vann þar sem ég var áður við fyrra verkefni í Mongólíu. Þegar blæs þá blæs og þegar frost er 35 gráður, þá er það bara svoleiðis. Þetta er spurning um að hafa fólk sem hefur þjálfun í að vinna við erfiðar aðstæður,“ sagði hann, en bætti því líka við að Impregilo væri reynslunni ríkara eftir síðasta vetur og vissu nú að ■ LÖGREGLUFRÉTTIR Mistök sjúkrahúss: Fékk vitlaust blóð og lést BANDARÍKIN, AP Sjúklingur lést á sjúkrahúsi í Sarasota í Flórída eftir að hafa fengið blóð úr röng- um blóðflokki. Sjúkrahúsyfirvöld hafa ekki viljað staðfesta að blóð- skiptin hafi orðið henni að bana en játa að mistök hafi verið gerð. Konan lést í síðasta mánuði degi eftir að hafa fengið blóðgjöf- ina. Duncan Finley, framkvæmda- stjóri Sarasota Memorial sjúkra- hússins, segir að ástæðan fyrir því að konan hafi fengið vitlaust blóð hafi verið röng merking á blóðpokanum. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem mistök eru gerð á sjúkrahús- inu. Í mars var framkvæmd smá- vægileg hjartaaðgerð á röngum sjúkling. Þá gleymdist að bera merkingar á úlnlið sjúklingsins saman við sjúklingaskrá. ■ FÉLL AF HESTBAKI Ung stúlka féll af hestbaki milli Þórisstað og Geitabergs í Svínadal um kvöld- matarleitið í fyrradag. Stúlkan meiddist nokkuð og var flutt til aðhlynningar með sjúkrabifreið. TRAKTOR VALT Traktor valt í Skálholtsbrekku við Reyki í kjöl- far áreksturs við fólksbíl. Ekki urðu alvarleg slys á fólki en öku- maður traktorsins var fluttur á slysadeild Landspítalans í Foss- vogi. ÍKVEIKJA Grunur leikur á að kveikt hafi verið í vörubifreið við Stekkjargötu í Hnífsdal í gær- morgun. Bíllinn er talsvert mikið skemmdur en enginn er grunaður um íkveikjuna enn sem komið er. Málið er í rannsókn hjá lögregl- unni á Ísafirði. Nýbýlavegi 2 • 200 Kópavogi • S 570 5300 • www.yamaha.is TIL AFGREI‹SLU STRAX Vi› lánum allt a› 70% Arctic Trucks bjóða lán til kaupa á nýjum mótorhjólum. Lánin geta numið allt að 70% af kaupverði og gilt til 60 mánaða. Kynnið ykkur möguleikana og látið draum- inn verða að veruleika. Hjólaðu í sumar. Grizzly 660FWA 1.267.000 Kodiak 450FWAN 1.087.000 Bruin 350WAN 897.000 Blaster 200 657.000 YFZ 450 1.097.000 Y A M A H A F J Ó R H J Ó L Y A M A H A F J Ó R H J Ó L ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 25 28 7 0 7/ 20 04 VINNUHJÓL verð SPORTHJÓL verð Opið mánudaga til föstudaga kl. 8.00 - 18.00 BLASTER 200 GRIZZLY 660FWA STÍFLUGERÐ Í MYNNI DIMMUGLJÚFRA Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar og Guðmundur Pétursson, verkfræðingur, yfirmaður verkefnisstjórnar vegna Kárahnjúkavirkjun- ar ráða ráðum sínum á aðalstíflusvæðinu við hlíðar Fremri Kárahnjúks. Að baki Friðriks stendur Ásbjörg Kristinsdóttir, verkfræðingur Landsvirkjunar sem hefur umsjón með áætlunum og kostnaðareftirliti vegna Kárahnjúkavirkjunar. ÓLI KRISTJÁN ÁRMANNSSON, BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING GANGUR FRAMKVÆMDA VIÐ KÁRAHNJÚKAVIRKJUN KYNNINGARFUNDUR LANDSVIRKJUNAR Frá vinstri: Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar; Albert Guðmundsson, verkfræðing- ur sem hefur umsjón með lagningu raforkuflutningsvirkis vegna Fjarðaráls; Guðmundur Pétursson, verkfræðingur sem hefur yfirumsjón með framkvæmdum vegna Kárahnjúka- virkjunar og Sigurður Arnalds, verkfræðingur og kynningarfulltrúi Landsvirkjunar vegna virkjunarinnar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Í BÆINN Fáir nýta sér bílahúsin í miðbænum og er nýting þeirra flestra vel undir 50 prósentum. 10-11 18.7.2004 18:54 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.