Fréttablaðið - 19.07.2004, Síða 12
12 19. júlí 2004 MÁNUDAGUR
Tilkynningar um lottóvinninga:
Svikamylla frá Spáni
FJÁRSVIK Margir fengið tilkynn-
ingu í pósti um að þeir hafi unnið
í El-Gordo-happdrættinu á Spáni.
Í bréfinu segir að vinningsmiði
með nafni viðkomandi hafi verið
dreginn og hans bíði verðlaun upp
á ríflega 785 þúsund evrur, eða
um 69 milljónir króna. Viðtakand-
inn þarf aðeins að gefa upp per-
sónulegar upplýsingar sem og
númer á bankareikningi svo hægt
sé að leggja vinninginn inn. Ást-
rún Ósk Ástþórsdóttir er ein
þeirra sem fengið hefur tilkynn-
ingu frá El-Gordo-lottóinu, en hún
kannast hvorki við að hafa verið á
Spáni nýlega eða að hafa keypt
miða í happdrættinu.
Hörður Jóhannesson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn segir svika-
myllur á borð við þessa algengar í
dag. „Nígeríubréfin svokölluðu
hafa verið í gangi í nokkur ár og
nú hefur þetta spænska lottó bæst
við. Þeir sem senda þetta eru að
öllum líkindum með íslenska
símaskrá og senda bréfin af
handahófi, lögreglan hefur meira
að segja fengið svona.“ Efnahags-
brotadeild Ríkislögreglustjóra
heldur utan um þessi mál og varar
fólk reglulega við gylliboðum og
svikahappdrættum. ■
Ársskýrsla Brunamálastofnunar:
Eignartjón minnkaði
um helming
Fjárhagstjón vegna bruna hefur minnkað um helming milli ára. Athugun Brunamálastofnunar
sýnir að ástand brunavarna á gistiheimilum er slæmt í 46 prósentum tilvika og hefur staðið í stað
SKÝRSLA Ástand brunavarna er
slæmt í nær helmingi gistiheim-
ila að því er fram kemur í nýrri
ársskýrslu Brunamálastofnun-
ar. Björn Karlsson, brunamála-
stjóri, telur þó að tölurnar segi
ekki alla söguna.
„Við erum með einfalt ein-
kunnarkerfi sem metur það
hvort aðbúnaður sé samkvæmt
byggingareglugerð eða ekki.
Það sem tölurnar sýna er að 46
prósent gistiheimila uppfylla
ekki reglugerðina að öllu leiti.“
Ástand gistihúsa hefur ekkert
batnað frá árinu 1997 og segir
Björn fjölgun þeirra vera helstu
skýringuna. „Það er þó nauð-
synlegt að taka á ástandinu þar
sem það er slæmt, í næstum
helming tilvika.“
Þegar framhaldsskólar víðs
vegar um landið voru skoðaðir
kom í ljós að 24 prósent þeirra
eru með slæmar brunarvarnir
og 4 prósent með algjörlega
óviðunandi. Þessar tölur sýna
þó að ástandið hefur batnað
verulega frá árinu 1998 þegar
60 prósent framhaldsskóla var
með slæmar eða óviðunandi
brunavarnir. Auk framhalds-
skólanna og gistihúsanna gerði
Brunamálastofnun könnun á
veiðihúsum. Þegar þær tölur
eru kannaðar
kemur í ljós að
sá flokkur hef-
ur hlutfalls-
lega flest í óvið-
unandi ástandi
eða 13 prósent.
S t æ r s t u
fréttirnar segir
Björn hins veg-
ar vera þær að
e i g n a r t j ó n
vegna bruna á
síðasta ári var
h e l m i n g i
minna en und-
anfarin þrjú ár
eða 880 millj-
ónir auk þess
sem ekkert
manntjón var
vegna bruna.
„Það eru auð-
vitað alltaf viss-
ar tölfræðileg-
ar sveiflur í
tölum sem
þessum en
þetta er tölu-
verð breyting.
Helsta ástæða
þessarar þró-
unar er sú að
s l ö k k v i l i ð i n
hafa aukið sam-
vinnu sína veru-
lega. Sameining
hefur átt sér stað á höfuðborg-
arsvæðinu og það hefur leitt af
sér mun öflugri útkallsdeildir.
Þeir eru fljótari á staðinn og
það eru oft örfáar mínútur sem
stjórna því hvort við fáum stórt
eða lítið tjón,“ segir Björn og
bætir því við að öflugt forvarn-
arstarf sé þó einnig að skila
árangri.
vbe@frettabladid.is
TILKYNNING UM LOTTÓVINNING
Í bréfinu er beðið um númer á bankareikningi svo hægt sé að leggja verðlaunin inn.
■ EVRÓPA
Vatnsskemmdir:
Vatn lak
milli hæða
VATNSLEKI Tveir vatnslekar voru
tilkynntir til Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins um hálf átta
leytið í gærmorgun. Annar var við
Laugaveg og hafði þar vatn safn-
ast saman í kjallara. Skemmdir
voru einhverjar en ekki veruleg-
ar. Hinn vatnslekinn var við
Kaplaskjólsveg þar sem vatn fór
af fjórðu hæð og niður á aðra hæð.
Miklar skemmdir urðu í húsinu
við Kaplaskjólsveg. Í báðum til-
vikum var um vatnsleiðslu sem
fór í sundur að ræða. Báðar íbúðir
voru mannlausar. Starfsmenn
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
vilja brýna fyrir fólki að gæta vel
að öllu áður en haldið er í frí og
ganga vel frá öllu sem viðkemur
rafmagni og vatni. Einnig vilja
starfsmenn slökkviliðsins minna
fólk á að einnig eru þjófar á stjá
og því í mörg horn að líta. ■
BRÚÐGUMINN RAKAÐUR
Brúðguminn Igor Petrov var rakaður fyrir
manna og dýra augum áður en hann gekk
í það heilaga. Á degi heilags Péturs, sem
var í gær, halda íbúar makedónska þorps-
ins Galicnik brúðkaup að hefðbundnum
sið þar sem öllum gömlu reglunum er
fylgt til hins ítrasta.
1.046
2.372
1.499 1.570
880
ELDSVOÐI
Ný skýrsla Brunamálastofnunar sýnir meðal annars að ástand
brunavarna gistihúsa hefur haldist óbreytt frá árinu 1997.
BRUNAMÁLASTJÓRI
Björn Karlsson telur sameiningu slökkviliða
á höfðuborgarsvæðinu skýra að hluta til
verulega minnkun eignartjóns vegna
bruna.
EIGNARTJÓN Í ELDSVOÐUM
1999 - 2003 í milljónum króna
4%
24%
44%
28%
46%25%
29%
46%25%
29%
ÁSTAND BRUNA-
VARNA FRAM-
HALDSSKÓLA
Óviðunandi 4%
Slæmt 24%
Sæmilegt 44%
Ágætt 28%
ÁSTAND BRUNA-
VARNA GISTI-
HÚSA
Slæmt 46%
Sæmilegt 25%
Ágætt 29%
ÁSTAND BRUNA-
VARNA Í VEIÐI-
HÚSUM
Óviðunandi 13%
Slæmt 20%
Sæmilegt 54%
Ágætt 13%
ÞJÓFÓTTUR PÓSTUR Fyrrum
starfsmaður breska póstsins
hefur verið ákærður fyrir að
stela 130.000 bréfum og auglýs-
ingabæklingum og fyrir að bera
póstinn ekki út til viðtakenda.
Stærstur hluti þess sem hann bar
ekki út voru auglýsingabækling-
ar sem hann fékk þó greitt auka-
lega fyrir. ■
12-13 18.7.2004 20:54 Page 2