Fréttablaðið - 19.07.2004, Page 19
Stokkaðu upp fjármálin
Þú getur auðveldlega samið um hagstætt lán hjá Frjálsa fjárfest-
ingarbankanum, sem er kjörið til að skuldbreyta óhagstæðum
lánum á borð við skammtímabankalán. Þannig lækkarðu
greiðslubyrðina hjá þér og eykur fjárhagslegt svigrúm. Lánið er
veitt til allt að 40 ára gegn veði í fasteign.
Fasteigna- og framkvæmdalán Frjálsa fjárfestingarbankans eru
einnig hentug leið fyrir þá sem standa í húsbyggingum eða fast-
eignakaupum.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í Ármúla
13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
www.frjalsi. is
– með hagstæðu fasteignaláni
Hólmgeir Hólmgeirsson rekstrarfræðingur
er lánafulltrúi og ráðgjafi á viðskiptasviði
9
0
4
0
4
4
2
H
im
in
n
o
g
h
a
f-
9
0
4
0
4
4
2
80%veðsetningarhlutfall
5,40% 5,95% 6,50% 7,50% 8,00%
5 ár 19.050 19.300 19.570 20.040 20.280
15 ár 8.120 8.410 8.710 9.270 9.560
30 ár 5.610 5.960 6.320 6.990 7.340
40 ár 5.090 5.470 5.850 6.580 6.950
2 4.500 4.960 5.420 6.250 6.670Afborgunar-laust *
*Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
Vextir %
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 24
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 104 stk.
Keypt & selt 21 stk.
Þjónusta 52 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heilsa 9 stk.
Heimilið 8 stk.
Tómstundir & ferðir 9 stk.
Húsnæði 16 stk.
Atvinna 11 stk.
Tilkynningar 3 stk.
Góðan dag!
Í dag er mánudagur 19. júlí,
201. dagur ársins 2004.
Reykjavík 3.54 13.34 23.12
Akureyri 3.13 13.19 23.22
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Fasteignasölur
101 Reykjavík 8
Ás 18–19
Draumhús 4–5
Eign.is 12
Eignalistinn 17
Fasteignamarkaðurinn 14
Fasteignamiðlun 10–11
Fasteignam. Grafarv. 6
Fjárfesting 15
Heimili 3
Híbýli 20
ÍAV 21
Hraunhamar 22–23
Lyngvík 9
Lyngvík kópavogi 13
Remax Búi 12
Remax kópavogi 20–21
X-hús 15
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Samtökin The National Trust
í Bretlandi hafa gagnrýnt harð-
lega áætlanir ríkisstjórnarinnar
um að leysa húsnæðisvanda í
Bretlandi með nýjum félagsleg-
um íbúðahverfum í nágrenni
borga og bæja. Samtökin óttast
að ekki verði nægilega vel hug-
að að náttúruperlum og sögu-
legum slóðum sem og útivist-
arsvæðum fyrir íbúana. Tals-
maður samtakanna segir mikil-
vægt að fólk hafi aðgang að
opnum svæðum og sé gert
kleift að tengjast umhverfi sínu
í sögulegu samhengi. Það geri
það að verkum að fólk verði já-
kvæðara gagnvart umhverfinu.
Liggur í loftinu
Í fasteignum
Skipulagið mitt:
Svefnherbergið
í eldhúsið
„Þessa dagana hugsa ég bara
um að skipuleggja eldhúsið
mitt, lítið annað þar sem ég er
að skipta á því og svefnher-
berginu mínu,“ segir Vigdís
Hrefna Pálsdóttir leikkona
sem stendur í miðjum fram-
kvæmdum og hefur snúið
heimili sínu á hvolf í kjölfarið.
„Svefnherbergið var í stof-
unni en við erum með tvær
stofur og við sváfum í annarri
þeirra. Reyndar er þetta
stærsta og bjartasta her-
bergið í íbúðinni og þess
vegna vildum við frekar nýta
það undir eldhús. Við erum
mjög mikið í eldhúsinu og höf-
um gaman af því að elda og
bjóða fólki í mat,“ segir Vigdís
Hrefna sem telur eldhúsið
vera einn helsta íverustað
fjölskyldunnar og því mikil-
vægt að það nýtist á marga
vegu.
„Mér finnst að eldhúsið
eigi að vera afslappað og mér
finnst gaman að hafa hluti
sem eru ekki oft í eldhúsinu,
eins og píanóið mitt og bæk-
ur,“ segir Vigdís Hrefna.
Helstu hugmyndir sínar
segist hún sækja í bók
Terence Conran um eldhús
sem hún fékk lánaða á Borg-
arbókasafninu og dönsk hönn-
unarblöð eins og Bo bedre og
Bolig liv.
„Danski stíllinn höfðar til
mín vegna þess að hann er
bjartur og afslappaður og
Danir eru svo klárir að blanda
saman gömlu og meira
módern húsgögnum. Sjálf bý
ég í gömlu timburhúsi og aðal-
togstreitan er hvort við eigum
að halda í gömlu eldhúsinn-
réttinguna sem er upprunaleg
eða smíða nýja,“ segir Vigdís
Hrefna en hún tekur það fram
að hún er ekki sérstaklega
hrifin af heilum innréttingum
en frekar hrifin af því að
blanda saman hinu og þessu.
„Við keyptum okkur
hansahillur á nytjamarkaðin-
um á góðu verði en mig langar
til að fá mér gamlan skáp í
framtíðinni. Opnar hillur
kalla á vandað val og gott
skipulag svo þetta virki ekki
draslaralegt,“ segir Vigdís
Hrefna, sem telur sig ekkert
sérstaklega mikla skipulags-
frík en leggur frekar áherslu
á að hafa hlutina snyrtilega.
Fyrir utan að skipuleggja
eldhúsið hefur Vigdís Hrefna
nóg fyrir stafni. Hún er í
sumarfríi frá leikhúsinu en í
haust heldur hún áfram að
leika í Piaf í Þjóðleikhúsinu
og fer að æfa írskt verk í
leikstjórn Eddu Heiðrúnar
Backman sem verður frum-
sýnt eftir áramótin. „Margt
skemmtilegt er að gerast í
leikhúsinu og ég hef verið
heppin með verkefni en
akkúrat þessa stundina sinni
ég aðeins eldhúsinu mínu,“
segir Vigdís hlæjandi.
kristineva@frettabladid.is
Vigdís Hrefna Pálsdóttir færir svefnherbergið inn í eldhús og eldhúsið inn í
svefnherbergi.
hus@frettabladid.is
01 forsíða - les 18.7.2004 15:46 Page 1