Fréttablaðið - 19.07.2004, Qupperneq 21
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
3MÁNUDAGUR 19. júlí 2004
Góð ráð
Friðrik Weisshappel gefur góð ráð um
gamalt baðkar.
Gamalt baðkar
gert upp
Sæll Frikki !
Ég er í vandræðum með baðkarið hjá mér. Það er gamalt og
húðin er farin af því og því setjast óhreinindi í það og virkar
því mjög skítugt fyrir vikið. Geturðu gefið mér góð ráð með
það hvaða efni gæti virkað best til að gera það hvítara? Ein í
baðkarsvandræðum
Sæl sjálf
Nú veit ég ekki hvort um gamalt pottbaðkar er að ræða
eður ei. Ef svo er þá hef ég einu sinni gert upp pottbaðkar
sjálfur og þá pússaði ég það upp með fínum sandpappír og
lakkaði það svo með epoxy-lakki, þetta reyndist vel enda mjög
gott efni og sterkt. Ef um nýlegt baðkar er að ræða þá er ég
viss um að þetta gæti virkað en held að um bráðabirgðalausn
væri að ræða, þau voru bara betri í gamla daga. Ef þú svo
ákveður að gera þetta ekki mundi ég bara tala við eitthvert
hreingerningafyrirtæki og athuga hvort til séu einhver
atvinnumannaefni sem duga á þetta. Nú eða bara að skipta út,
fá þér nuddbaðkar og sleppa sumarfríinu!
Kveðja Frikki
Viltu spyrja Frikka? Sendu póst á hus@frettabladid.is
Einar
Guðmundsson
lögg. fasteignasali
Finnbogi
Hilmarsson
lögg. fasteignasali
Skipholti 29a
105 Reykjavík
sími 530 6500
fax 530 6505
heimili@heimili.is
Opið mánudaga
til föstudaga 9-17
Bogi
Pétursson
lögg. fasteignasali
Rósa María
Sigtryggsdóttir
ritari
Félag Fasteignasala
HAMRAVÍK - björt og falleg
4ja herberja íbúð með
sérinngangi. Nýkomin í sölu ca 124
fm íbúð á 2. hæð með sérinngangi í nýlegu
fjölbýlishúsi í Grafarvogi. Þrjú svefnherbergi
og björt og góð stogfa með útgengi út á
svalir í suður. Áhv. góð lán. Verð 16,7
millj.
SÓLVALLAGATA - rúmgóð
3ja í risi. Frábært útsýni af
stórum svölum. Góð 3ja herbergja
íbúð í risi. Tvö herbergi og björt parketlögð
stofa ásamt vinnuherb. Stórar svalir í austur
með frábæru útsýni. Íbúðin hefur verið
töluvert endurnýjuð. Fallegt hús á góðum
stað í miðbænum. Verð 12,9 millj.
VESTURBERG. Góð 85 fm íbúð á 2.
hæð með vestursvölum Stórt eldhús og
FANNAFOLD Parhús á einni hæð með bílskúrHEIMILI er öflug og f rsk f steignasala í eigu þriggja löggiltra fasteignasala sem allir starfa hjá
fyrirtækinu og h fa áralanga reynslu af fasteignaviðskiptum. Við leggjum sérstaka áherslu á
vönduð og traus vinnubrögð og úrvals þjónustu. Metnaður okkar er að allir viðskiptavinir finni
heimili við sitt hæfi og verði sáttir og ánægðir með samskiptin við okkur.
Láttu gæði og góða reynslu
ráða vali þínu á ofnhitastillum
Danfoss ofnhitastillar fyrir þig
Danfoss hf
Skútuvogi 6 104 Reykjavík
Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss er leiðandi í framleiðslu ofnhitastilla
R
A
2
0
0
0
D
B
L
Sameiginlegur pallur í fjölbýli:
Allir leggja til vinnu og efni
„Við erum 16 manns sem búum
hér í fjórum íbúðum og samkomu-
lagið er sérdeilis gott. Þess vegna
ákváðum við að byggja sameigin-
legan pall og hafa hann út við
grindverkið en ekki upp við
glugga,“ segir Gunnar Hrafn
Gunnarsson, sem keppist við að
smíða stóran pall í garðinum við
Barmahlíð 53 í Reykjavík. Hann
segir eigendurna alla leggja til
efni, vinnu, hönnun og smíði.
Þegar haft er orði á að þetta sé
upplagður danspallur er vel tekið
undir það og greinilegt að sú hug-
mynd hefur komið upp áður. Því
er lofað að ekki muni dragast
lengi að sporin verði tekin á nýja
pallinum. Það atriði réð þó
kannski ekki stærðinni upp-
haflega. Gunnar Hrafn hefur að
minnsta kosti fleiri skýringar.
Stærðin helgast meðal annars af
því að við þurftum að fella tvö
grenitré á blettinum og vildum
teygja pallinn inn yfir stofnana til
að hylja þá.“ ■
Gunnar sníður til efni, frúin Elísabet Reynisdóttir situr á nýja pallinum
með dótturina Auði Gunnarsdóttur. Gestirnir Baldur Trausti og börnin
Tómas og Eva Baldursbörn láta líka fara vel um sig.
Hér hefur sandkassinn verið
felldur ofan í pallinn.
Sandkassi í
pallinum
Þegar pallar eru smíðaðir er
bráðsniðugt að gera ráð fyrir
sandkassa fyrir börnin ofan í
pallinum. Þegar börnin hafa
mokað nægju sína er lítið mál
að sópa sandinum sem fór út
fyrir aftur ofan í kassann og
loka. ■
02-03 Hús ofl - les 16.7.2004 22:05 Page 3