Fréttablaðið - 19.07.2004, Blaðsíða 48
„Þetta eru myndir allt frá árinu
1954 til dagsins í dag. Það má
segja að þetta sé yfirlitssýning á
vatnslitamyndum en bók með
myndum mínum var einnig gefin
út af þessu tilefni,“ segir
Hafsteinn Austmann myndlistar-
maður en hann er sjötugur í dag.
Sýning á verkum hans stendur nú
yfir í Listasafni ASÍ, Ásmundar-
sal við Freyjugötu, og segist
Hafsteinn afar ánægður með sýn-
inguna og ekki síst bókina.
Aðspurður hvort miklar breyt-
ingar á stíl hans megi sjá á sýn-
ingunni segir Hafsteinn ekki
hægt að neita því. „Hann hefur
tekið miklum breytingum enda
fór maður að losa tökin allveru-
lega upp úr 1960 og í kjölfarið fór
ég að leita meira fyrir mér. Ég
var búin að vera í skóla hér heima
og í Frakklandi en þá dugði ekki
að klára bara nám hér á landi
heldur þurfti að fara út í heim til
að fullnema sig. Þegar ég fór í
nám lá straumurinn til Frakk-
lands og ég lenti því þar og tel
mig vera heppinn. Það var nefni-
lega mikið að gerast upp úr styrj-
öldinni þar en New York tók síðan
fljótlega við.“
Hafsteinn segist hafa komist í
kynni við þær stefnur sem helst
voru á þeim tíma. „Ég var nú
reyndar ekki lengi þar til að byrja
með, aðeins í rúmt ár enda bara
19 ára á þeim tíma.“
Hafsteinn kenndi síðan við
Myndlistar- og handíðaskólann í
tuttugu ár en hætti þegar breyta
átti honum í háskóla. „Það er ekki
hægt að taka einhverja BA-gráðu
í myndlist, þetta er grein sem
maður verður aldrei fullnuminn í
því það er ekkert próf endanlegt í
listum. „
Í dag er Hafsteinn enn iðinn
við kolann og málar daglega. „Ég
nýti morgnana í að vinna með
vatnslitum enda er það léttari
vinna. Ef eitthvað mislukkast þá
hendir maður því einfaldlega. Um
hádegisbilið legg ég mig síðan
eins og tíðkast í Frakklandi og
eftir blundinn fer ég að nuddast í
olíunni.“ Aðspurður hvort hann
ætli að leggja pensilinn á hilluna
fljótlega segist hann alls ekki sjá
það fyrir sér. „Ég er bara sjötug-
ur og því rétt að byrja. Þetta er
ein af fáum listgreinum sem
manni fer fram með aldrinum.
Það gerir nefnilega ekkert til þó
maður titri svolítið, sem ég er þó
reyndar ekki enn farinn að gera.“
Sýning Hafsteins í Ásmundar-
sal við Freyjugötu stendur fram í
ágúst en hægt er að festa kaup á
bók hans og plaggöt á sýningunni.
■
20 19. júlí 2004 MÁNUDAGUR
Edgar Degas
Myndlistarmaðurinn fæddist á þessum degi árið 1834
fyrir 170 árum síðan.
AFMÆLI
Erró (Guðmundur Guðmundsson),
myndlistarmaður, er 72 ára.
Birgir Ísleifur Gunnarsson. seðlabanka-
stjóri, er 68 ára.
Sigfús Bjartmarsson, skáld, er 49 ára.
Erla Bolladóttir, er 49 ára.
Guðmundur Týr Þórarinsson (Mummi í
Mótorsmiðjunni) er 46 ára.
ANDLÁT
Ragnheiður A. Runólfsdóttir lést 11.
júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Karl Jóhannesson, kjötiðnaðarmaður,
lést 12. júlí.
Torfi Sveinsson, frá Hóli í Svartárdal,
lést 13. júlí.
Gróa Þorgeirsdóttir-Lawrence, frá
Lambastöðum, Garði, lést 14. júlí.
Haraldur Axel Einarsson, húsasmíða-
meistari, lést 15. júlí.
JARÐARFARIR
10.30 Ingibjörg Þorsteinsdóttir, hús-
freyja, verður jarðsungin frá Hall-
grímskirkju.
13.30 Guðni Guðmundsson, fyrrverandi
rektor Menntaskólans í Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hallgríms-
kirkju.
13.30 Helga Ágústa Hjálmarsdóttir, fyrr-
verandi gjaldkeri ríkisspítalana,
verður jarðsungin frá Grafarvog-
kirkju.
13.30 Magnús Kjartan Ágeirsson, skip-
stjóri, Lækjarfit 3 í Garðabæ, verð-
ur jarðsunginn frá Garðakirkju.
14.00Þórunn Kristrún Elíasdóttir
(Dúdda), dvalarheimilinu
Hvammi á Húsavík, verður jarð-
sungin frá Húsavíkurkirkju.
Fer fram með aldrinum
Sýningin Granadino hefur ver-
ið opnuð á Vínbarnum við Tjörn-
ina. Myndirnar eru úr smiðju
Maríu Kjartansdóttur en hún
hefur dvalist í Granada á Spáni
undanfarin misseri. Nafn sýning-
arinnar merkir raunverulega íbúi
Granada en borgin, sem er sunn-
arlega á Spáni, er fyrst og fremst
háskólaborg og fer því oftast nær
lítið fyrir íbúum hennar. María
fór fljótlega eftir að hún flutti til
borgarinnar að taka ljósmyndir af
íbúum hennar sem hún segir gj-
arnan falla í skuggann af
Alhambra-höllinni og ferðaiðnað-
inum í kringum hana. Hún tók
flestar myndirnar án vitundar
fólksins og segist hafa upplifað
sig sem ósýnilega eða litla flugu á
vegg.
Allar myndirnar eru prentaðar
í aðeins einu eintaki og texti við
hverja og eina þeirra handsaum-
aður. Textarnir eru eftir Birgi
Hilmarsson, kærasta Maríu, en
þeir eru úr lögum hans með
hljómsveitinni AMPOP.
GRANADINO
Myndirnar tók María af íbúum borgarinnar
sem oft fer lítið fyrir.
„List er ekki það sem þú sérð, heldur það sem þú lætur aðra
sjá.“
-Þetta hafði afmælisbarn dagsins, Edgar Degas, að segja um það
sem hann fékkst við í lífinu. Ekki orð um það meir.
AFMÆLISBARN DAGSINS
HAFSTEINN AUSTMANN ER 70 ÁRA Í DAG
Var fluga á vegg
HAFSTEINN AUSTMANN
Er ekki á leiðinni að leggja pensilinn á hilluna. Hann er með yfirlitssýningu á vatnslitamyndum sínum í Ásmundarsal fram í ágúst.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HARALDUR AXEL EINARSSON
húsasmíðameistari,
lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ
fimmtudaginn 15. júlí síðastliðinn.
Ebba Kristinsdóttir, börn,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
ÞETTA GERÐIST
DOC HOLLIDAY DREPUR MANN
19. júlí 1879
Doc Holliday verður mannsbani
Doc Holliday, hinn goðsagnakenndi
byssumaður og fyrrum tannlæknir
frá Atlanta, framdi sitt fyrsta morð á
þessum degi árið 1879. Þrátt fyrir að
Holliday sem rómaður sem mikil
vígamaður í sögu villta vestursins tók
hann einungis þátt í átta byssubar-
dögum um ævina og ekki er vitað til
þess að hann hafi orðið fleiri en
tveimur mönnum að bana.
Þessi vel tilhafði spjátrungur var
hins vegar alltaf merkilega svalur
þegar hann stóð andspænis dauðan-
um en skýringin á óttaleysi hans
liggur ef til vill í þeirri staðreynd að
hann var hægt og rólega að tærast
upp af berklum.
Árið 1879 settist hann að í Las
Vegas og opnaði krá ásamt félaga sín-
um og þar sat hann öll kvöld í félags-
skap sýningastúlkna, spilaði póker og
drakk ótæpilega eins og honum væri
mikið í mun að flýta fyrir dauða
sínum. Kemur þá að fyrrum hermað-
urinn Mike Gordon og gerir sér dælt
við eina dansmeyna og reynir að fá
hana til að hætta störfum og flytja
burt með sér. Hún hafnaði Gordon
sem brást hinn versti við, rauk út og
hóf að skjóta á staðinn. Hann náði þó
ekki að skemma mikið þar sem hann
hafði aðeins hleypt af tveimur
skotum þegar Holliday gekk pollró-
legur út og lagði hann að velli með
einni byssukúlu.
Ári síðar hélt Holliday til liðs við
gamlan félaga sinn, Wyatt Earp lög-
reglustjóra, og hjálpaði honum að
hreinsa til í bænum Tombstone í
Arizona. Þar drap Holliday annað
fórnarlamb sitt í sögufrægum skot-
bardaga sem átti sér stað við O.K.
réttina. ■
DOC HOLLIDAY
Leikarinn Val Kilmer fór á kostum í hlutverki
þessa skotfima spjátrungs í kvikmyndinni
Tombstone. Þrátt fyrir æsispennandi lífshlaup
lést Holliday úr berklum í rólegheitum árið
1887 en sagan segir að andlátsorð hans hafi
verið: „Þetta er sniðugt.“
LJÓSMYNDASÝNING
MARÍA KJARTANSDÓTTIR
■ hefur opnað ljósmyndasýningu á Vín-
barnum við Tjörnina. Á sýningunni má
sjá myndir sem hún tók í borginni
Granada á Suður Spáni.
48-49 (20-21) tímamót-nýtt 18.7.2004 17:17 Page 2