Fréttablaðið - 19.07.2004, Page 52
24 19. júlí 2004 MÁNUDAGUR
LANDSBANKADEILD KARLA
0–1 Hólmar örn Rúnarsson 14.
1–1 Sigurvin Ólafsson 39.
DÓMARINN
Egill Már Markússon Mjög góður
BESTUR Á VELLINUM
Sigurvin Ólafsson KR
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 11–11 (4–5)
Horn 3–4
Aukaspyrnur fengnar 10–21
Rangstöður 4–2
GÓÐIR
Sigurvin Ólafsson KR
Arnar Jón Sigurgeirsson KR
Petr Podzemsky KR
Hólmar Örn Rúnarsson Keflavík
Ólafur Ívar Jónsson Keflavík
KR-ingar léku sinn fjórða deildarleik í
röð án þess að vinna. Þeir unnu síðast
3–0 sigur á Fram 21. júní síðastliðinn og
næsti leikur er gegn Víkingi 25. júlí og því
líður meira en mánuður að minnsta kosti
milli sigurleikja hjá meisturunum.
1-1
KR KEFLAVÍK
0–1 Steinþór Gíslason 33.
0–2 Daníel Hjaltason, víti 54.
DÓMARINN
Gylfi Þór Orrason Í meðallagi
BESTUR Á VELLINUM
Jermaine Palmer Víkingur
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 11–6 (2–5)
Horn 3–4
Aukaspyrnur fengnar 15–15
Rangstöður 1–3
MJÖG GÓÐIR
Jermaine Palmer Víkingi
Grétar Sigurðsson Víkingi
Rikchard Keogh Víkingi
GÓÐIR
Ronni Hartvig KA
Sandor Matus KA
Steinþór Gíslason Víkingi
Daníel Hjaltason Víkingi
Viktor Bjarki Arnarson Víkingi
0-2
KA VÍKINGUR
0–1 Gunnar Heiðar Þorvaldsson 2.
0–2 Gunnar Heiðar Þorvaldsson, víti 44.
1–2 Ríkharður Daðason, víti 64.
DÓMARINN
Garðar Örn Hinriksson Í meðallagi
BESTUR Á VELLINUM
Gunnar Heiðar Þorvaldsson ÍBV
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 15–17 (3–8)
Horn 3–3
Aukaspyrnur fengnar 17–17
Rangstöður 5–4
MJÖG GÓÐIR
Gunnar Heiðar Þorvaldsson ÍBV
Einar Þór Daníelsson ÍBV
GÓÐIR
Mark Schulte ÍBV
Tryggvi Sveinn Bjarnason ÍBV
Ian Jeffs ÍBV
Atli Jóhannsson ÍBV
Gunnar Sigurðsson Fram
Andri Fannar Ottósson Fram
1-2
FRAM ÍBV
LEIKIR GÆRDAGSINS
[ STAÐAN ]
Fylkir 10 5 4 1 15–8 19
ÍBV 11 5 3 3 18–12 18
FH 10 4 5 1 16–11 17
ÍA 10 4 4 2 12–9 16
Keflavík 11 4 3 4 12–16 15
KR 11 3 5 3 14–13 14
Víkingur 11 4 2 5 11–12 14
KA 10 3 2 6 10–15 11
Grindavík 10 2 4 4 9–15 10
Fram 11 1 4 6 10–16 7
MARKAHÆSTIR
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV 8
Arnar Gunnlaugsson, KR 4
Atli Viðar Björnsson, FH 4
Atli Sveinn Þórarinsson, KA 4
Grétar Hjartarson, Grindavík 4
Ríkharður Daðason, Fram 4
Sævar Þór Gíslason, Fylki 4
NÆSTU LEIKIR
FH-Fylkir Í kvöld 20.00
Grindavík–ÍA Í kvöld 19.15
Landsbankadeild karla:
Víkingssigur
fyrir norðan
FÓTBOLTI Víkingar unnu sann-
gjarnan og öruggan sigur, 0–2, á
KA-mönnum á Akureyrarvelli í
gær og hafa nýliðarnir úr
Fossvoginum því náð í 13 stig í
síðustu fimm leikjum og eru því
komnir upp í sjöunda sætið í
deildinni.
„Við vorum á rassgatinu í
leiknum og þeir unnu þetta
sanngjarnt,“ sagði Atli Sveinn
Þórarinsson, fyrirliði KA-manna í
leiknum en KA-menn hafa aðeins
unnið einn af sex heimaleikjum
sínum í sumar. Það er því farið að
hitna undir Þorvaldi Örlygssyni
þjálfara KA-liðsins. KA-menn
náðu sem dæmi aðeins 2 skotum á
mark Víkinga en liðinu hélst auk
þess illa á boltanum.
Jermaine Palmer var mjög
ógnandi í framlínu Víkingu, dugle-
gur og vinnusamur leikmaður sem
gerði varnarmönnum KA lífið
leitt. Víkingsvörnin var líka mjög
traust með þá Grétar Sigurðsson
og Richard Keogh í lykilh-
lutverkum en Víkingara héldu
marki sínu hreinu fjórða leikinn í
röð á Akureyri í gær.
Steinþór Gíslason skoraði fyrra
mark Víkinga beint úr aukaspyrnu
en mark Daníels Hjaltasonar kom
úr vítaspyrnur eftir að Ronni
Hartvig braut á Jermaine Palmer.
Ronni Hartvig var bestur
maður KA-liðsins en braut þó
engu að síður af sér í bæði skiptin
sem Víkingar skoruðu, úr
aukaspyrnu og úr víti. ■
VÍKINGAR ÁFRAM Í VÍGAHUG
Jermanine Palmer átti mjög góðan leik
eins og flestir Víkingar í 0–2 sigri liðsins á
KA á Akureyrarvelli í gær.
ARNAR KOMST LÍTT ÁLEIÐIS Arnar Gunnlaugsson komst lítt áleiðis gegn Keflavík í
gær. Hér reynir hann að brjótast fram hjá Keflvíkingnum Hólmari Erni Rúnarssyni.
Meistaravonir KR-inga dvína með hverjum leik:
Enn og aftur jafntefli
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar KR
færast fjær því að verja titilinn
með hverjum leik. Í gærkvöld
komu Keflvíkingar í heimsókn og
andlausir KR-ingar náðu aðeins
jafntefli gegn varnarsinnuðum
Suðurnesjamönnum.
Leikurinn var átakanlega illa
leikinn nánast frá upphafi og til
enda. Keflvíkingar voru klárlega
komnir til þess að sækja stig í
Vesturbæinn og þeir þurftu engin
kraftaverk til þess að halda því.
Leikurinn byrjaði reyndar með
látum því Arnar Jón
Sigurgeirsson komst einn í
gegnum vörn Keflavíkur strax á
2. mínútu en Ólafur Gottskálksson
varði skot Arnars Jóns laglega.
Eftir það hrundi leikurinn gjör-
samlega og það var ekkert að
gerast þegar boltinn datt óvænt
fyrir fætur Hólmars Arnar
Rúnarssonar eftir hornspyrnu.
Hólmar þakkaði pent fyrir sig
með því að þruma boltanum í
netið.
Arnar Jón var aftur á ferðinni
á 26. mínútu þegar hann lagði upp
gott færi fyrir Sigurvin Ólafsson
en skalli Sigurvins fór rétt yfir.
Þeir félagar endurtóku leikinn
sex mínútum fyrir hlé en í það
skiptið fékk Sigurvin boltann í
fæturnar og hann var ekki í mik-
lum vandræðum með að koma
honum yfir marklínuna hjá
Keflavík.
Seinni hálfleikur var í einu orði
sagt sorglegur. Keflvíkingar lágu
í skotgröfunum og máttlausir og
andlausir KR-ingar gerðu veikar
tilraunir til þess að skora en án
nokkurs árangurs.
Leikurinn opnaðist örlítið
síðustu tíu mínúturnar þar sem
bæði lið fengu ágætis færi sem
þeim tókst ekki að nýta. Það besta
fékk Kristinn Hafliðason KR-
ingur er hann komst einn í gegn
en það var táknrænt fyrir leik
KR-inga að hann skyldi detta á
afturendann áður en hann kom
skoti á markið.
1–1 jafntefli því niðurstaðan
sem verða að teljast sanngjörn
úrslit. Nýliðarnir frá Keflavík
fögnuðu stiginu og geta vel unað
við sitt. Þeir eru að berjast fyrir
lífi sínu og í þeirra augum er eitt
stig á KR-velli sigur.
Það var ekki að sjá á meistu-
runum að þeir vildu sigra þennan
leik. Baráttan og viljinn var
enginn, spilið tilviljanakennt og
marklaust svo ekki sé dýpra tekið
í árinni. Eins og staðan er í dag
eru þeir algjört miðlungslið og
staða þeirra í deildinni er engin
tilviljun. Þeir eru bara ekki betri
en þetta í dag.
henry@frettabladid.is
Gunnar Heiðar gerði
út af við Framara
Skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik, kom Eyjamönnum upp í annað sæti
deildarinnar og skildi Framarana eftir pikkfasta á botninum
FÓTBOLTI Eyjamenn eru komnir upp í
annað sæti Landsbankadeildarinn-
ar í fótbolta eftir að hafa lagt
Framara að velli, 2-1, á Laugar-
dalsvelli í gærkvöld. Eyjamenn
gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik,
skoruðu mark í byrjun leiks og
undir lok hálfleiksins og það nægði
þrátt fyrir að pressa Framara hafi
verið mikil síðustu mínúturnar.
Matröð Framara hófst strax á 2.
mínútu en þá gaf Einar Þór Daní-
elsson góða sendingu frá vinstri,
sem sigldi í gegnum alla vörn
Framara, beint fyrir fætur
Gunnars Heiðars Þorvaldssonar,
markahæsta manns Landsbanka-
deildarinnar, sem þakkaði gott boð
og skoraði af öryggi. Þetta mark
kom eins og köld vatnsgusa fram-
an í Framara en það verður þó að
segjast þeim til hróss að þeir lögðu
ekki árar í bát og hefðu að ósekju
átt að vera búnir að jafna leikinn
þegar Eyjamenn skoruðu annað
markið. Andri Fannar Ottósson
fékk fjögur góð færi en því miður
fyrir hann og Framara þá voru
honum heldur mislagaðar fætur
fyrir framan markið og fóru öll
fjögur skotin framhjá. Þegra tæp
mínúta var eftir af fyrri hálfleik
fengu Eyjamenn vítaspyrnu, að
því virtist heldur ódýra. Eggert
Stefánsson, varnarmaður Fram, og
Eyjamaðurinn Einar Þór Daníels-
son áttust þá við inni í vítateig
Fram, Einar Þór féll og Garðar
Örn Hinriksson, dómari leiksins,
dæmdi vítaspyrnu. Framarar
brjáluðust og sennilega með réttu
því þaðan sem blaðamaður sat
virtist ekki um vítaspyrnu að
ræða.
Framarar virtust ekki hafa
jafnað sig á óréttlæti heimsins
þegar flautað var til síðari hálf-
leiks því Eyjamenn tóku öll völd á
vellinum og hefðu hæglega getað
skorað þriðja markið sem hefði
gulltryggt sigurinn. Í staðinn
nældi Andri Fannar Ottósson í
vítaspyrnu fyrir Framara á 64.
mínútu og úr henni skoraði Rík-
harður Daðason af öryggi. Fram-
arar hresstust við markið og
pressuðu stíft til leiksloka en náðu
ekki að jafna leikinn.
„Mér fannst við eiga meira skil-
ið út úr þessum leik. Byrjunin var
auðvitað kjaftshögg en við unnum
okkur inn í leikinn og loksins er
eitthvða að gerast. Því miður feng-
um við ekkert út úr þessum leik en
ég tel að vítaspyrnan sem þeir
fengu hafi verið algjör dóm-
araskandall. Nú tekur við barátta
upp á líf og dauða fyrir okkur. Það
dugir ekkert annað en þrjú stig í
hverjum leik héðan í frá og það er
hugarfarið sem menn verða að
mæta með í leikina,“ sagði Rík-
harður Daðason, fyrirliði Fram,
hundfúll í leikslok.
oskar@frettabladid.is
1-0 FYRIR ÍBV Það tók Gunnar Heiðar Þorvaldsson aðeins tvær mínútur að koma Eyjamönnum 0–1 yfir gegn Fram í Laugardalnum í
gær. Gunnar Heiðar skoraði tvö mörk í leiknum og er langmarkahæsti leikmaður Landsbankadeildar karla. F
RÉ
TT
AB
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
52-53 (24-25) Sport 18.7.2004 22:16 Page 2