Fréttablaðið - 19.07.2004, Side 53
MÁNUDAGUR 19. júlí 2004 25
Nýtt Íslands- og Norðurlandamet hjá stangarstökkskonunni Þóreyju Eddu Elísdóttur á laugardaginn:
Yfir 4,60 metra í Madrid
Opna breska meistara-
mótið í golfi:
Hamilton
lagði Els
GOLF Bandaríski kylfingurinn Todd
Hamilton bar sigur úr býtum á
Opna breska meistaramótinu í
golfi í gær eftir að hann bar sigur-
orð af Suður Afríkumanninum
Ernie Els í fjögurra holu bráða-
bana.
Þetta er fyrsti stóri titill
Hamiltons, sem er 38 ára gamall
og hefur verið atvinnumaður síð-
an 1987, en hann leiddi fyrir loka-
hringinn. Hann hafði forystu sein-
ni hluta lokadagsins en missti af
sigrinum tveimur síðustu holun-
um. Els náði minnka muninn í eitt
högg á 17. holu sem hann fór á
fugli en Hamilton fór síðan taug-
um á þeirri átjándu og fór hana á
skolla á meðan Els paraði hana.
Í bráðabananum, sem var spil-
aður á 1., 2. 17. og 18. holu, var
mikil spenna. Þeir voru jafnir
eftir fyrstu tvær holurnar en
Hamilton fór þá þriðju á fugli,
einum undir pari á meðan Els
paraði hana og Hamilton tryggði
sér síðan sigurinn á þeirri átjándu
með því að fara hana á pari, líkt
og Els. ■
ÞÓREY EDDA ELÍSDÓTTIR Bætir sig stöðugt þessa dagana og virðist ætla að vera í
toppformi á Ólympíuleikunum í Aþenu eftir mánuð.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Stangarstökkskon-
an Þórey Edda Elísdóttir gerði sér
lítið fyrir og bætti Íslands- og
Norðurlandametið í stangarstökki
kvenna á alþjóðlegu stigamóti
Alþjóða frjálsíþróttasambandsins
í Madrid á laugardaginn.
Þórey Edda gerði sér lítið fyrir
og fór yfir 4,60 metra og bætti sitt
eigið met frá því að móti í Kessell
í Þýskalandi 11. júní síðastliðnum
um sex sentimetra. Þórey Edda
hafnaði í öðru sæti á mótinu en
hin rússneska Svetlana Feofanova
bar sigur úr býtum með því að
stökkva yfir 4,80 metra. Feo-
fanova reyndi við nýtt heimsmet
en felldi naumlega 4,90 metra.
Frábærar aðstæður
Þórey Edda var komin „heim“
til Þýskalands þegar Fréttablaðið
ræddi við hana í gær og hún var
að vonum himinlifandi með ár-
angurinn.
„Það gekk allt upp í gærkvöld.
Aðstæðurnar voru frábærir, hiti
og enginn vindur og það má eigin-
lega segja að ég sé búin að bíða
eftir þessum aðstæðum í fimm ár.
Stökkserían gekk vel og ég var
örugg. Ég fór yfir 4,15 metra, 4,30
metra og 4,40 metra í fyrstu til-
raun og notaði síðan tvær tilraun-
ir til að fara yfir 4,50 metra og
4.60 metra. Það var ólýsanleg til-
finning að fara fyrir 4,60 metra en
það kom mér svo sem ekki á
óvart.
Ég hef undirbúið mig vel og
vissi að ef allt gengi upp þá gæti
ég vel farið yfir þessa hæð.
Stökkið var öruggt og ég snerti
ekki ránna. Síðan átti ég tilraunir
við 4,70 metra en var í raun aldrei
nálægt því að komast yfir. Ég var
orðinn þreytt eftir mörg stökk og
það er alveg ljóst að ég verð að
fara að byrja hærra ef ég að eiga
möguleika á því að bæta mig enn
frekar,“ sagði Þórey Edda.
Þórey Edda hefur tekið mikl-
um framförum á þessu tímabili og
hún sagðist þakka það mjög skipu-
lögðum æfingum.
„Það er auðvitað jákvætt að
vera alltaf að bæta sig og ég tel
mig enn eiga nóg inni. Ég hef
aldrei æft jafn skipulaga og á
þessu tímabili og það má eigin-
lega segja að hver einasta æfing
hafi verið skipulögð í þaula. Það
er greinilega það eina sem dugir
til að árangur náist og ég er af-
skaplega ánægð með þjálfarann
minn, Pólverjann Lezsek Klima.
Hann hefur búið til frábæra æf-
ingaáætlun sem miðast að því að
toppa í Aþenu.“
Þórey Edda keppir á móti í
Þýskalandi á föstudaginn og
kemur síðan heim á laugardaginn
þar sem hún tekur þátt í Meistara-
móti Íslands á Laugardals-
vellinum á sunnudaginn.
„Ég mun ekki taka stangirnar
mínar með mér til Íslands og eina
markmið mitt verður að vinna
Íslandsmeistaratitil fyrir félagið
mitt. Árangurinn mun ekki skipta
máli að þessu sinni enda erfitt að
eiga við aðstæðurnar á Íslandi.
Það er ekki hægt að treysta á neitt
hvað veðrið varðar en ég ætla að
sjálfsögðu að gera mitt besta.“
Vill fá Völu með
Þórey Edda sagðist aðspurð
vonast til að Vala Flosadóttir
myndi fara að ná sér á strik og
jafnvel komast á Ólympíuleikana.
„Ég hefði viljað hafa Völu með
mér á Ólympíuleikana og vona að
hún nái lágmarkinu einhvern tíma
fyrir 9. ágúst þegar fresturinn
rennur út. Það er miklu meiri
stemning í kringum íþróttina
þegar tvær eru að berjast og
miklu skemmtilegra. Það virðist
hins vegar vera þannig að við
skiptum þessu á milli okkar. Fyrst
kom hún, síðan tók ég við af henni
og ég vona bara að það muni ein-
hver taka við af mér,“ sagði Þórey
Edda. ■
ÁRANGUR ÞÓREYJAR Á STIGA-
MÓTUM Í SUMAR
14. maí Doha, Katar 1. sæti (4,30m)
8. júní Ostrava, Tékkl. 2. sæti (4,40m)
27. júní Gatesh., Engl. 6. sæti (4,25m)
4. júlí Iráklio, Grikkl. 12. sæti (4,15m)
17. júlí Madrid, Spáni 2. sæti (4,60m)
TODD HAMILTON Fagnar hér sigri á
Opna breska meistaramótinu í golfi með
því að faðma kylfusvein sinn.
■ HANDBOLTAFRÉTTIR
AFTUR TAP GEGN UNGVERJUM
Íslenska landsliðið í handknatt-
leik tapaði aftur fyrir Ungverjum
í gærkvöld í vináttulandsleik í
Ungverjalandi en heimamenn
unnu einnig leik á föstudaginn,
30-20. Lokatölur í leiknum í gær
voru, 32–28, Ungverjum í vil.
Ólafur Stefánsson skoraði átta
mörk fyrir íslenska liðið og
Jaliesky Garcia skoraði fjögur
mörk.
52-53 (24-25) Sport 18.7.2004 20:25 Page 3