Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.07.2004, Qupperneq 55

Fréttablaðið - 19.07.2004, Qupperneq 55
27MÁNUDAGUR 19. júlí 2004 Skotlínur frá Scierra fyrir þá sem vilja ná lengra Leynivopn Veiðihornsins. Victoria´s Secret. Höfundur Bjarni Júlíusson. Hefur reynst frábærlega í laxveiði á sólríkum dögum. Skothausar og heilar skotlínur frá Scierra sem eru hannaðar af Henrik Mortensen og Hywel Morgan hafa slegið í gegn enda magnaðar línur á góðu verði. Skothausar aðeins 4.890, heilar skotlínur aðeins 5.890.- Gerðu verðsamanburð, fáðu þér góða skotlínu á sanngjörnu verði og náðu lengra. Byrjendur ná fyrr góðum tökum á fluguköstum með skotlínum frá Scierra. Veiðihornið Hafnarstræti 5 sími 551 6760 Veiðihornið Síðumúla 8 sími 568 8410 Fylgstu með leynivopni vikunnar á mánudögum. Fullt verð kr. 36,600 Tilboðsverð kr. 29,900 Vöðlur, skór, sandhlíf og belti. Simms Freestone öndunarvöðlu sett Mörkinni 6, s. 568 7090 Æstir austurrískir aðdáendur vöðvatröllsins, kvikmyndaleikar- ans og ríkisstjórans í Kaliforníu geta sleikt bakið á goðinu sínu frá og með 30. júlí en þá gefur austur- ríska póstþjónustan út einnar evru frímerki með mynd af sjálfum Arnold Schwarzenegger. Hér er um sérstaka viðhafnarút- gáfu að ræða og svo skemmtilega vill til að útgáfudagurinn er einmitt afmælisdagur Schwarzeneggers sem verður 57 ára í lok mánaðarins. Arnold valdi sjálfur myndina sem prýða mun frímerkið en um er að ræða portrett sem sýnir ríkis- stjórann með bandaríska fánann hægra megin við sig en austurríski fáninn blaktir öllu minni á vinstri hlið hans. Frímerkið verður prentað í 600.000 eintökum þannig að það geta margar tungur farið um breitt bak Schwarzeneggers sem er vita- skuld nokkurs konar þjóðhetja í heimalandinu Austurríki. „Hann er einn allra frægasti Austurríkismaðurinn,“ segir Sigfried Grobman, talsmaður póstsins í Austurríki. „Við getum verið mjög stolt af honum.“ Missti risafisk í Blöndu eftir mikla baráttu Þeir veiðimenn sem hafa veitt í Blöndu hafa talað um stórlaxa í henni eins og Þórarinn Sigþórsson, tann- læknir, sem sagði fyrir fáum dögum að nokkrir boltar hefðu verið fyrir neðan laxastigann á sveimi. Sá fyrsti hefur tekið en slapp eftir mikla bar- áttu. Næstu daga gætu stórlaxarnir far- ið að taka frekar í Blöndu, þeir eru fyrir hendi og aldrei að vita hvenær þeir gefa sig. „Þetta var risastór fiskur, ég hef aldrei séð svona lax áður, hvorki fyrr né síðar,“ sagði Guðmundur Ólason á Jökuldal, en hann setti í þann stóra í Blöndu á svæði þrjú fyrir fáum dög- um, en fiskurinn slapp eftir að stöng- in brotnaði við skaftið. Hann hafði veitt stærstan 16 punda lax en þessi sem slapp var miklu stærri. „Ég var búinn að sjá fiskinn daginn áður og hann var stór þegar hann kaf- aði í hylnum og svo fórum við daginn eftir í hylinn. Við fengum strax lax í hylnum þegar við komum þangað en ekki þennan stóra og færðum okkur í annan veiðistað. Það var hleypt út úr virkjuninni og vatnið hækkaði veru- lega. Þá fórum við aftur í hylinn og sá stóri tók maðkinn fljótlega þegar ég kastaði þar. Baráttan stóð fyrir 15-20 mínútur og þá brotnaði stöngin mín við skaftið, þetta var risafiskur, en lík- lega hef ég tekið heldur fast á honum. Ég gæti trúað að fiskurinn hefði verið 25-30 punda, jafnvel stærri. Ég hef aldrei séð svona stóran lax áður,“ sagði Guðmundur í lokin, enn að jafna sig eftir þann stóra sem slapp. Veiðin hefur verið fín í norðlensku veiðiánum flestum en Blanda hefur gefið 622 laxa, Laxá á Ásum 141 lax, Víðidalsá 300 laxa, Vatnsdalsá 120, Miðfjarðará 330 og Hrútafjarðará 33 laxa. Laxá á Refasveit hefur gefið 20 laxa sem er mjög gott en hún er sein til og hafa veiðimenn verið að fá veið- ina neðarlega í henni. Hallá hefur gefið um 10 laxa og eitthvað hefur sést af laxi þar. Veiðimenn sem voru að hætta í Hrútafjarðará fengu yfir 20 laxa holl- ið, sem er mjög gott en mikið er af fiski í ánni. Víða hellingur af fiski í hverjum hyl.■ Hin árlega Airwaves-hátið sem fram fer 20.–24. októ- ber er beðið í ofvæni enda fjölmennasti tónlistarvið- burður ársins. Nú fer dagskrá hátíðarinnar að skýr- ast en búist er við þátttöku um hundrað hljómsveita og tónlistarmanna. Helstu erlendu viðburðir hátíðar- innar verða bresku Four Tet, London Elektricity og Keane, bandarísku Non Phixion, The Shins og Radio 4 auk Kid Koala frá Kanada, To Rococo Rot frá Þýskalandi og Magnet frá Noregi, svo eitthvað sé nefnt. The Keane hefur krónað efst á breska vin- sældarlistanum allan júnímánuð og virðist vera sölu- vænlegasta band hátíðarinnar. Sérstök eftirvænting meðal músíkspekúlanta er til bandaríska Four Tet sem m.a. hafa hitað upp fyrir Radiohead á tónleika- ferðalögum og vinsældir rokkbandsins Radio 4 eru einnig talsverðar hér á landi. Gaukur á Stöng, Nasa og Hafnarhúsið bera hitann og þungann af hátíðinni en fjöldi annarra vel valdra staða í miðbænum munu hýsa sveitirnar sem fram koma. Íslensku framlögin verða ekki af verri endan- um á Airwaves en m.a. spila Leaves, Mínus, Jagúar, Tenderfoot, Einar Örn - Ghostigital, Vinyl, Trabant og Mugison. Hátíðin hefur náð að festa sig vel í sessi sem gróskumikill stórviðburður í tónlistarheiminum eftir þátttöku Suede, The Flaming Lips, The Hives og Fatboy Slim á undanförnum árum. Búist er við fjöl- da erlendra blaðamanna til að fylgjast með. Hljóm- sveitirnar sem fram koma aðhyllast margar og ólíkar tónlistarstefnur og ættu þá allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. ■ VEIÐIHORNIÐ GUNNAR BENDER ■ skrifar um veiði. BLANDA Mjög góð veiði hefur verið í Blöndu síðustu daga, enda mikið gengið af fiski í hana. ERLENDUR VEIÐIMAÐUR Með vænan lax sem komst ekki undan. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FA N /Á G Ú ST ■ SKRÝTNA FRÉTTIN Viltu sleikja bakið á ríkisstjóra? ARNOLD SCHWARZENEGGER Landar hans í Austurríki eru stoltir af honum og ætla að skella honum á frí- merki sem mun koma út á afmælisdegi kappans um mánaðarmótin. Þá verður kátt í Austurríki og fólk getur sleikt bakið á hetjunni sinni fram og til baka. Hundrað hljómsveitir og tónlistarmenn troða upp á Airwaves-hátíðinni: Dagskrá Air- waves skýrist 54-55 (26-27) skrípó 18.7.2004 20:30 Page 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.