Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.07.2004, Qupperneq 64

Fréttablaðið - 19.07.2004, Qupperneq 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Framtíðarland Þegar ég var á níunda ári var ég svogæfusamur að vera sendur í sveit norður í Stóru-Ávík á Ströndum. Þar er fegurst náttúra á Íslandi, hrikaleg og heillandi. Í fimm sumur var ég vinnumað- ur hjá Guðmundi bónda og lærði eitthvað nýtt á hverjum degi. Síðasta sumarið var ég búinn að vinna mig upp í bílstjórasætið á gamalli rústrauðri dráttarvél, en þá hafði ég öðlast undirstöðumenntun í við- gerðum á girðingum, smalamennsku og heyskap; ég taldi mig kunna að lesa í skýin og spá fyrir um veður. En mikilvæg- asta embættisverk mitt var að passa Grænlandssteininn. GRÆNLANDSSTEINNINN barst lík- lega með borgarísjaka frá Grænlandi fyrir 10 þúsund árum. Þetta er tuttugu eða þrjátíu tonna bjarg, og stirnir á silfurflög- ur í sólskini. Stundum komu heilar rútur af túristum að skoða þessa merkilegu sendingu frá Grænlandi, og þá gat verið freistandi að höggva flís úr steininum. Þar kom ég til sögunnar. Guðmundur bóndi vildi ekki að steinninn góði yrði smám saman brytjaður niður og þegar ég sá sila- lega rútu skríða niður afleggjarann hljóp ég til með bambusbogann minn, og stillti mér upp efst á steininum með ör á streng. ÞAÐ var einmitt af Ströndum sem Eiríkur rauði hélt áleiðis til Grænlands fyrir þús- und árum. Því er stundum haldið fram að Eiríkur rauði hafi verið fyrsti auglýsinga- maðurinn ? hann hafi í raun blekkt fávísa landa sína til að hverfa frá hinu skógi vaxna Íslandi yfir á ísbreiðurnar á Græn- landi. En Eiríkur vissi hvað hann söng. Hann var bara þúsund árum á undan sinni samtíð. Grænland er framtíðarlandið. GRÆNLAND er tuttugu sinnum stærra en Ísland. Undirlendi á Grænlandi er miklu meira en á Íslandi. Suður-Grænland er sumarparadís í samanburði við Ísland, enda er Reykjavík þremur gráðum norðar en Qaqortoq, stærsti bærinn í suðrinu. Grænland er gjöfult land og þar eru auð- lindir bæði í sjó og á landi. Framundan er lokaskeið sjálfstæðisbaráttu, sem snýst um að losna undan kæfandi faðmlagi dönsku krúnunnar. Ný kynslóð er að taka við í grænlenskum stjórnmálum og hún hefur sett kúrsinn á sjálfstætt og full- valda Grænland. HEIMAMENN eru gestrisnir og glað- beittir, og ljóma þegar Íslendinga ber að garði. Grænlendingar líta nefnilega á Íslendinga sem bestu vini sína. Það er mikil gæfa að eiga góða nágranna og við Íslendingar eigum að gera miklu meira til að rækta vináttuböndin. Við eigum að nota okkur það stórkostlega tækifæri að geta skotist yfir í undraheim Austur-Græn- lands eða farið í sumarleyfi til Suður- Grænlands. Brottför frá Reykjavíkurflug- velli! ■ HRAFNS JÖKULSSONAR BAKÞANKAR 64 bak 18.7.2004 20:12 Page 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.