Fréttablaðið - 30.07.2004, Síða 19
Ég held að með [aug-
lýsingunni] sé ekki verið
að „hóta dauða“, eins og [Kol-
brún Bergþórsdóttir] skrifar,
heldur hvetja fólk til að fara var-
lega. Ef það er forsjárhyggja á
forsjárhyggja fyllilega rétt á sér.
Þreytandi gáfufólk sem skilur ekki tilveruna
Mikið lifandi skelfing er ég þreytt-
ur á fólki sem er sífellt að leika
gáfufólk en skilur hvorki upp né
niður í tilverunni og heldur að hún
snúist eingöngu um það sjálft. Kol-
brún Bergþórsdóttir held ég að hafi
upphaflega verið bókmenntagagn-
rýnandi, hefur í það minnsta gefið
sig út fyrir að vera álitsgjafi í þeim
efnum, en nú skrifar hún stundum
fjölmiðlapistla í Fréttablaðið.
Í miðvikudagsblaðinu lýsti yfir
því að hún hefði engan áhuga á að
fara varlega í lífinu og leiðinlegasta
fólkið sem hún kynntist væri það
sem væri sífellt að leika umferðar-
lögreglu fyrir okkur hin. Tilefnið
voru auglýsingar sem ætlað er að
hvetja fólk til að fara varlega í um-
ferðinni. Auglýsingagerð af þessu
tagi finnst henni vera fyrir neðan
allar hellur – „en sjálfsagt felur hún
í sér góðan jarðveg hjá forsjár-
hyggjufólki í Vinstri grænum og
álíka samtökum,“ skrifar hún. Lík-
lega finnst henni undirritaður vera
að leika málfarslöggu þegar hann
getur sér þess til að hún hafi ætlað
að skrifa “fellur í góðan jarðveg“.
En hvað sem málfarinu líður
held ég að þessi ágæta manneskja
hafi misskilið „þessa auglýsinga-
gerð“. Ég held að með henni sé ekki
verið að „hóta dauða“, eins og hún
skrifar, heldur hvetja fólk til að fara
varlega. Ef það er forsjárhyggja á
forsjárhyggja fyllilega rétt á sér,
hvað sem Vinstri grænum líður. Það
er ekki einkamál manna hvort þeir
aka eins og brjálæðingar og drepa
sjálfa sig – og/eða aðra. Kolbrún
Bergþórsdóttir má hins vegar lifa
eins hættulegu lífi og hún vill, svo
framarlega sem það kemur ekki
niður á öðrum. En skriki henni fótur
í sínu hættulega lífi og hún þarf að
leita sér lækninga hættir það að
vera hennar mál einvörðungu. Þá
kemur kannski að því að hún þurfi
að leita sér aðstoðar – á kostnað
samfélagsins.
Svo nefnir hún norsku myndina
I dag skal noen dø, þar sem fjallað
var á ákaflega faglegan hátt um bíl-
slys, afleiðingar þeirra og máttleysi
norskra yfirvalda við að vinna gegn
þeim, en horfði sem sagt ekki á
hana. Hún hefði betur gert það.
Og hún horfði ekki heldur á
nokkrar aðrar myndir sem hún taldi
sig þó geta kveðið upp dóma yfir. Ef
Fréttablaðið fjallar um bókmenntir
í haust og hún tekur þátt í því vona
ég að hún lesi bækurnar sem henni
verður falið að fjalla um. ■
19FÖSTUDAGUR 30. júlí 2004
Að standa á eigin fótum
Alveg frá því Ísland þáði Marshall-
aðstoðina eftir seinni heimsstyrjöldina
hafa íslensk stjórnvöld aldrei getað reitt
sig á eigin vilja og kraft þegar kemur til
tals að Bandaríkin séu inni í myndinni.
Þessu mætti líkja við ungling sem lifir í
vellystingum hjá foreldrum sínum, en
með þeim skilyrðum að hann geri allt
það sem honum er sagt, annars sé
honum hent út, hann sniðgenginn og
eigur hans seldar eða notaðar í öðrum
tilgangi. Hvenær ætla Íslendingar að
standa á eigin fótum gagnvart „Stóra
bróður“?
Emil Hjörvar Petersen á uvg.vg
Engar málsbætur
Þessar aðfarir Steinunnar og Alfreðs
minna um margt á meirihluta Sjálf-
stæðisflokksins upp úr 1970 þegar
hann lagði á ráðin um að rífa Torfuna
og byggja þar nýtísku skrifstofuhúsnæði
í anda Morgunblaðshallarinnar við Að-
alstræti. Seinna tókst niðurrifsmönnum
að fá Fjalaköttinn rifinn en það er ein-
mitt verið að byggja hann aftur í dag 25
árum síðar. Þeir sem voru í eldlínunni
1970 eiga sér þó þær málsbætur að
hafa horft á timburhjallana í Reykjavík,
sem áttu að heita mannabústaðir, og
sjá fólkið í þeim veslast upp í kulda,
tæringu og vosbúð. Fyrir þessum
mönnum voru steypt reisuleg vel ein-
angruð hús langtum betri kostur en
Torfa eða Fjalaköttur. Alfreð og Stein-
unn eru hins vegar af annarri kynslóð
og eiga auk þess að teljast til félags-
hyggjufólks.
Grímur Atlason á vg.is/postur
Efnisleg umræða hefjist
Nú þegar róast fer í [fjölmiðla]málinu
eftir átök seinustu mánaða, blasir við
að umræða um málið heldur áfram í
fjölmiðlanefndinni í vetur og farið þar
nánar yfir það. Vonandi getur nú hafist
hin efnislega umræða um málið sem
hefur vantað tilfinnanlega, og vonandi
er ennfremur að allir flokkar komi þar
fram með stefnu sína og vinni eftir
henni þannig að þverpólitísk samstaða
náist að lokum um slíka lagasetningu.
Nú reynir á hvernig hin efnislega um-
ræða fer fram í nefndinni og á þingi í
vetur.
Stefán Friðrik Stefánsson á frelsi.is
Ekki um seinan
Persónulega tel ég ólíklegt að menn
komi til með að skipta um skoðun
varðandi Kárahnjúkavirkjun við lestur
bókar Ómars [Ragnarssonar]. Flestir
koma sennilega til með að styrkjast í
sinni þegar mynduðu skoðun. Bókin
kemur aftur á móti mikilvægum skila-
boðum á framfæri við okkur lýðinn í
þessu lýðræðisþjóðfélagi: Það er ekki
um seinan.
Arndís Anna Gunnarsdóttir á
politik.is
ÞORGRÍMUR GESTSSON
BLAÐAMAÐUR
UMRÆÐAN
UMFERÐIN UM
HELGINA
,,
AF NETINU
Við hvetjum lesendur til að senda
okkur línu og leggja orð í belg um efni
Fréttablaðsins eða málefni líðandi
stundar. Greinar og bréf skulu vera
stutt og gagnorð. Ritstjórn áskilur sér
rétt til að stytta aðsent efni. Einnig
áskilur ritstjórn sér rétt til að birta
aðsent efni að meginhluta á vefsíðu
blaðsins, sem er Vísir.is, og vísa þá til
þess með útdrætti í blaðinu sjálfu.
Vinsamlega sendið efni í tölvupósti á
greinar@frettabladid.is. Þar er einnig
svarað fyrirspurnum um lengd greina.
ÞUNG UMFERÐ Búast má við miklum
umferðarþunga á þjóðvegum landsins um
verslunarmannahelgina.
18-19 leiðari 29.7.2004 17:53 Page 3