Tíminn - 28.01.1973, Blaðsíða 3

Tíminn - 28.01.1973, Blaðsíða 3
Sunnudagur 28. janúar 1973 TÍMINN 3 öll störf hér einkenndust af miklum hraöa og samstillingu. Hlutirnir gengu mann frá manni, hönd úr hönd, og höfnuöu loks i sendibilum, vöru- og fólksbilum á bryggjunni. Óhugur var greini- lega mikill i fólkinu. Þaö mælti fátt, en gekk ötullega aö verki. Það horföi á hýbilaskraut sitt og heimilisgögn hlaöast upp á bryggjunni, hvaö innan um annaö — dýrindis borðlampa, skenki- borö, spegla og úttroöna plaspoka og feröatöskur. A stefni bátsins voru einir tiu isskápar vandlega bundnir. Þetta var dýr farmur, en skipstjórinn haföi aö sögn þegar fariö margar feröir upp á eigin spýtur og vafa- laust bjargaö tugmilljóna verömætum. Siöar um daginn gengum viö fram á annan bát, nýkominn aö bryggju, hlaöinn húsgöngumog f leiru .Þessir bátar og fleiri hafa flutt farangur beint eftir óskum Vestmannaeyinga sjálfra og ekki verið háöir reglum Almannavarna. Hekla og Herjólfur lögðust aö bryggju með stuttu millibili um hálfsex-leytið, fullskipuö fólki, bilum og farangri. 1 Herjólfi komu um 60 manns, sem ýmist höföu farið til Eyja til að sækja dót eöa höföu dvalið þar. Um borö voru 8 bilar og heil firn af farangri i plastpokum og feröa- töskum. Menn voru önnum kafnir viö uppskipunina og leitina aö föggum sinu. Viö reyndum að ná tali af fólki á þönum á bryggj- unni, þar sem vart sást i auöan blett fyrir öllum manngrúanum, bilum og dóti. Allir létu fúslega tilleiðast aö segja nokkur orö. Þótt þeir hefðu i öðru og ögn mik- ilvægara að snúast, en a sinna forvitnum blaöasnápum, taldi enginn slikt eftir sér. Augljóslega var geö allra dap- urt. En enginn lét samt á þvi bera. Hér var verk aö vinna, — hér voru lifshagsmunir heils kaupstaðar i veöi, já, raunar allr- ar þjóðarinnar. Svartsýni á framtiöina, virtist mikil hjá Eyjabúum, er þarna voru, einkum meöal eldra fólks- ins. — „Svartsýnn? Hvernig er hægt að vera annaö en svartsýnn, þegar maöur horfir upp á byggö sem maður hefur unnaö og dvaliö alla sina ævi 1 leggjast undir ösku grjót og helvitiseld. Ég hefði aldrei trúaö þessu. Ég er að koma beint aö heiman svo að ég veit, hvaö ég er að segja. Húsin eru aö brenna, maður! Þau eru að brenna!” Þetta sagði gamall maöur. Óstyrkur var hann og svolitið hranalegur, en eldur brann i gömlum augum. Menn voru ekki allir eins ánægð- ir með fréttaflutning af ástandinu i Vestmannaeyjum og sögðu, að ösku- og vikurþykktin i bænum væri miklu meir, en fram hefði komið. Nokkrir urðu einnig til aö gangrýna skipulagninguna á flutningum á bilum og búslóð. Sögu þeir, aö farangurinn i skip- unum væri i mörgum tilfellum meira og minna skemmdur vegna þrengsla og ófullnægjandi um- búnaöar. Töldu sumir, að réttara hefði verið a fá flutningavél hjá Varnarliðinu til að annast þetta eöa þyrlu, sem flutt heföi dótiö i gámum yfir i rúmgott skip úti fyrir. En allir voru mjög þakklátir fyrir velheppnaða og •skipulagða björgun fólksins og alla fyrirgreiðslu. Hekla flutti alveg það sama og Herjólfur, en aö sjálfsögðu miklu meira magn. Um borö voru 87 bilar og á annað hundraö farþegar. Ysinn og þysinn á þeirri bryggju var geysilegur. Meöal farþega var Þorsteinn Þ. Vig- lundsson, sem fariö hafði til Eyja um morguninn til að bjarga gripum úr byggðasafninu og húsi sinu, sem kann kvað vera að þvi komið að brenna. Kom hann meö marga pinkla, en miklu þ.á.m. málverkum, haföi hann komiö fyrir um borð i Arvakri i Vestmannaeyjahöfn og i spari- sjóðshúsinu i bænum. Er við lögðum af stað til Reykjavikur um sjö-leytið á föstudagskvöld, var enn veriö að afferma skipin. Bæði fóru aftur til Eyja um kvöldið með fólk til að sækja farangur og bila. I Vestmannaeyjahöfn var verið að ferma Dettifoss og fleiri skip væntanleg. Leiðin i bæinn var vörðuð ótelj- andi billjósum. Svipmynd af manngrúanum á bryggjunni f Þorlákshöfn á föstudagskvöld s.l., og þó ekki nema hluta hans Menn báru sig vel i öllu umstanginu og létu jafnvel gamanyröi fjúka þótt eflaust brynni flestum sárt að horfa upp á þetta tákn ógæfu sinnar — Stp Dýrmætur farmur um borð I Heklu, — V 477, V 821, V 421 o.s. frv. Alls 87 bilar. (Tímamyndir- G.E.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.