Tíminn - 28.01.1973, Blaðsíða 28

Tíminn - 28.01.1973, Blaðsíða 28
28 TÍMINN Sunnudagur 28. janúar 1973 „ALLT MITT LÍF LIGGUR í GRJÓTI OG BÓKUM ÚTI í VESTMANNAEYJUM" — segir Sveinn Guðmundsson forstjóri, sem flúði heimkynni sitt vanheill maður og fóklæddur á bóti fyrstu skelfingarnóttina — Allt mitt lif liggur i grjóti og bókum úti i Vestmannaeyjum, sagöi Sveinn Guöm.son forstjóri viö Tiamnn I gær. Lifs sjálfs mins blaktir á skari — ég hef veriö sjúklingur undanfariö, bæöi vegna sjúkdóms og slyss, og svo kom þessi nótt reiöarslaganna, þegar viö flúðum eins og viö stóðum og höfðum ekkert meðferöis nema fötin, sem við vorum i, og þó ónóg — já eigin- lega vorum við anzi fatafá. Mér varð kalt á bátnum á leiðinni til Þorlákshafnar, og ég hef ekkert getaö aðhafzt siðan, enda litið sem kleift er að gera. Sá maður, sem svo talar, Sveinn Guðmundsson fyrrverandi bæjarfulltrúi i Eyjum og forstjóri útibús Afengisverzlunarinnar, á liklega fullkomnasta, fjöl- breyttasta og verðmætasta steinasafn á landinu, og eitt bezta bókasafn i Vestmannaeyjum. Hús hans heitir Arnarstapi og er við Fjðlugötu, beint niður af Helga- felli meðal hinna efri húsa. Þar biður allt, sem hann mesta um- önnun sýndi, utan fjölskyldu sinnar og daglegs verkahrings i lifinu, þess er verða vill, svo sem annað ágæti og fágæti i Vest- mannaeyjum. Að visu er húsið ekki i bráðri hættu,og þvi ætti ekki að vera voði búinn, ef ekki gerir þeim mun meira að i Eyjum með ný jum áföllum. En að vonum ber safnandi og eigandi þessara gripa kviða i brjósti meðan ekki léttir þeirri martröð, er á öllu hefur hvilt siðustu viku. — Ég hef aldrei kunnað með peninga að fara, heldur Sveinn áfram, en það hefur ekki komið að sök, þvi að við höfum samt sem áður haft nóg fyrir okkur liggja. Grjót og bækur — það var árátta min. Ég byrjaði steina- söfnunina árið 1932 svo að þetta eru orðin fjörutiu ár, sem ég heF verið að tina saman steinana mina, og ég hef farið snuddandi og snuðrandi um allt land, nema Strandirnar átti ég eftir. Bil hef ég ekki haft til umráða — alltaf treyst á fæturna. A þeim hef ég þrammað um fjöll og dali og borið það til byggða á bakinu, er ég hreppti að verkalaunum. Og það væri vanþakklæti að segja annað en mér yrði vel ágengt, þó að mér miðaði hægt áfram. Ég varð fyrstur til þess að sækja steinasöfnun af svona kappi, og þá var margt fallegt að finna á stöðum, þar sem allt er nú uppurið og ekki sést framar neitt, sem feigur er i. — Jú, ekki er þvi að neita — menn hafa gefið þessu steinasafni minu hýrt auga, heldur Sveinn áfram, og siðast i fyrra voru fölur lagðar á sumt af þvi af forráðamönnum náttúrugripasafnsins hér. En þeir vildu fá að velja úr hjá mér, og það vildi ég ekki láta gera. Ég hafði hugsað mér að þessu steina- safni minu yrði haldið saman, og það hafa börnin mfn verið mér sammála um, og eiginlega hafði ég hugsað mér að láta Vest- mannaeyjar njóta þess, þó að ég sé Austfirðingur og þar eystra, þar sem landið er einna auðugast af fögrum steinum, kviknaði fyrst sú unun, er ég hef haft af steina- rikinu. Vestmannaeyjar eiga orðið svo mikil itök i mér eftir langa veru þar. En eins og stendur er vist tómt mál að tala um það, hvað um steinana mina verður. Það er enginn leikur að flytja neitt frá Eyjum nú, og steinarnir margir hverjir, eins og til dæmis zeólitarnir, eru vandfluttir. Það var rétt með herkjum, að börnin Einn af skápum þeim, sem Sveinn gcymir steinasafn sitt i. t þessum skáp eru m.a. Kalcedon —Aragonit— Bergkristall — Zeolitar, ýmis afbrigði. Sveinn Guðmundsson, sem safnað hefur steinum og bókum um marga tugi ára. min, Garðar og Asdis, fengu að skreppa til Vestmannaeyja til þess að sækja nauðsynlegasta fatnað og lausamuni. Ég hef samt orðið þess var, að fleiri hugsa til safnsins mins en ég og minir. Það hringdi einhver prófessoranna við háskólann til sonar mins til þess að tala við hann um þá, og ölafur Guð- mundsson, útbússtjóri i Stykkis- hólmi, hefur lika haft tal af mér. En hvað verður um framkvæmdir veit ég ekki, eða hvenær hægt verður eitthvað að gera. Ég vildi þó láta smiða hentuga kassa til þess að flytja það i, sem viðkvæmast er, en ég veit bara ekki hvar ég á að bera niður eða hver vill hlaupa undir bagga með mér. Sveinn talar lágum rómi um steinana sina, og hann sér vafa- laust fyrir sér hilluraðirnar heima i Arnarstapa við Fjólu- götu,'þar sem öllu hefur verið skipað eftir tegundum og af- brigðum. Hann hefur verið að skrá safnið, og það voru þúsund steinar, sem komnir voru á skrá. Svo vikjum við að bókunum. — Þetta eru nokkur þúsund bóka i gylltu bandi, svona þrjú þúsund, segir Sveinn — allt góðar bækur og sumar harla dýrar og fágætar. Svo á ég heilmikið óbundið, þar á meðal timarit. Ég veit ekki, hvort þetta er mesta eða bezta bóka- safn i Eyjum — vel liklegt, að þeir eigi eins mikið og meira, Haraldur Guðnason bókavörður og Freymóður Þorsteinsson bæjarfógeti. Ég held ég geti þó með sanni sagt, að það séu góðar bækur, sem ég á. En það verður að fara með þær eins og annað i minni eigu og minna samborgara I Vestmanna- eyjum. -JH. Óskast i eftirtaldar bifreiðar, er verða til sýnis þriðjudaginn 30. janúar 1973, kl. 1-4 i porti bak við skrifstofu vora Borgartúni 7: Volkswagen 1600 fólksbifreið árg. 1970 Volkswagen 1500 ” 1967 Consul Cortina ” 1965 Opel Admiral ” 1966 Voivostation ” 1963 Volvostation ” 1965 Volvo station ” 1965 Land Rover diesei ” 1968 Land Rover diesel ” 1964 Land Rover benzin ” 1962 Land Rover benzin Iengri gerð ” 1966 Gaz 69 jeppi ” 1967 Willys jeppster ” 1967 Ford Club Wagon ” 1967 Volvo Laplander ” 1965 Volvo Laplander ” 1965 Ford Transit Sendiferðabifreið ” 1967 FordTransit ” 1968 Ford Transit ” 1968 Volkswagen ” 1965 RenaultR-4 ” 1968 Scania Vabis vörubifreið ” 1965 Volvo vörubifreið með framdrifi og krana ” 1959 Voivo vörubifreið með framdrifiog krana ” 1962 Mótorhjól Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 5.00 að viðstöddum bjóðendum. Réttur áskilinn til að hafna tilboðum, sem ekki teljast viðun- andi. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.