Tíminn - 28.01.1973, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
Sunnudagur 28. janúar 1973
Elsa og Finnbogi brosa hýrt yfir vendinum frá Magnúsi i Blómahúsinu
þau völdu sjónvarpstæki frá JL húsinu
Ekki alls fyrir löngu brugöu
þau sér i verzlunarferð, Elsa G.
Jónsdóttir og Finnbogi Aöal-
steinsson, sem uröu fyrstu brúö-
hjón mánaðarins i Timanum.
Ljósmyndari og blaöamaöur
fylgdu i humátt á eftir þeim til aö
sjá hvað varö fyrir valinu, en
Timinn gefur brúöhjónum
mánaöarins 25.000 kr. hverju
sinni, en þessari upphæö geta þau
varið til kaupa á einhvcrju tii
heimiiisins i ákveönum verzlun-
um eða á farmiðum i brúökaups-
ferð. Að iokinni verzlunarferðinni
var brúöhjónunum boðið til
kvöldveröar við kertaljós á
Grillinu á Hótel Sögu.
Það var farið að nálgast
lokunartima verzlana þegar þau
Elsa og Finnbogi komu i
verzlunarferðina til Reykjavikur,
en þau eru bæði borin og barn-
fædd i Hafnarfirði og hafa nú
stofnað þar sitt framtiðarheimili.
Fremur svalt var i veðri og ekki
laust við hálku. Brúðurin var
prúðbúin i siðu pilsi og blússu i
tilefni af kvöldverðinum á Sögu,
en hún varð engu að siður að láta
sig hafa þaö að ganga ofan af
Amtmannsstig niður i miðbæ, en
bilastæði var ekki að fá nær
vegna föstudagsumferðarinn'ar i
borginni.
Safirar handa brúðinni
Fyrst var förinni heitiö i
verzlun Ulrichs Falkners gulls-
miðs, Austurstræti 22. Brúðhjónin
höfðu þó ekki valið að taka út
vinninginn þar, en Ulrich haföi
boðið brúðinni að velja sér gjöf úr
verzluninni. Þar hlutu þau elsku-
legustu viðtökur, og hugur Elsu
beindist fljótt að steinhringum,
sem nú er mjög vinsælt að konur
beri með giftingarhringnum
Hringar þessir kosta 2.700 kr.
Þeir eru með margs kyns stein-
um, i mörgum litum, safirum,
túrkisum, roðasteinum og
demöntum svo nokkuð sé nefnt.
En brúðurin okkar valdi fljótlega
hring með fimm safirum.
Völdu sjónvarp
Eftir að hafa þakkað fyrir
gjöfina lá leiðin til hinnar nýju
stórverzlunar i húsi Jóns Lofts-
sonar vestast við Hringbraut, en
þar höfðu Elsa og Finnbogi
ákveðið að taka út gjöfina frá
Timanum. Þau höfðu fljótlega
komizt að þeirri niðurstöðu að
verja 25.000 krónunum i útborgun
af sjónvarpi eða þvottavél. Sjdn-
varpið varð að lokum fyrir
valinu, en foreldrar Finnboga
ætla aö gefa þeim hjónum þvotta-
vél i brúðargjöf siðar.
Sjónvarpstækið, sem þau fundu
i JL húsinu var ekki af lakara
taginu. Það er altransistoratæki
af Radionette gerð i palesander-
kassa með hurð fyrir skermi.
Tæki þetta kostar hvorki meira
né minna en 46.000 kr, en þvi
fylgja fætur á hjólum, sem kosta
á þriðja þúsund.
Eru mikið heima
Kaupsamningur var undir-
Þetta væri notalegur húsbóndastóll