Tíminn - 28.01.1973, Side 6
TÍMINN
Sunnudagur 28. janúar 1973
6
Osta- og smjörsalan
Óðalsosturinn gefur góðar vonir, en framleiðsla
hans krefst mikils húsnæðis
Að Snorrabraut 54 i
Reykjavik stendur hús eitt
allmikið, hvitt að lit, sem
mörgum verður eflaust
litið á, er þeir eiga leið
fram hjá, enda er það
falleg bygging og stílhrein.
Þarna er til húsa Osta- og
smjörsalan s.f., 14 ára
gamalt fyrirtæki er á starf-
skeiði sinu hefur unnið
ötullega að dreifingu og
kynningu á íslenzkum
mjólkurafurðum sem sölu-
aöili fyrir mjólkursamlögin
i landinu.
Gegnum aldirnar hefur
mjólkin og afurðir hennar
stuðlað einna mest að því
að halda líftórunni í lands-
lýðnum. Hörmungar og
hallæri ýmiss konar riðu
löngum gandreið yfir þvert
og endilangt landið, og
þótti þá mörgun kotbónd-
anum gott að vita af belju
sinni, henni búkollu gömlu,
undir baðstofugólfinu hjá
sér. Þótt nytin væri ef til
vill ekki mikil, mátti seðja
margan svangan munninn
með dreitlinum úr henni.
I dag eru starfandi 19
mjólkursamlög i landinu,
er taka við sívaxandi
mjólkurmagni bændanna
til framleiðslu. Það er
framleitt smjör, ostar, skyr
og margt fleira, og auk
þess er blessuð nýmjólkin
hreinsuð, greilsneydd og
seld í góðum umbúðum í
búðirnar. Tækni nútimans
fleygir ört fram og ýmsum
nýstarlegum kenningum er
haldið á lofti. Sumir vilja
halda þvi fram, að mjólkin
geti verið skaðleg og vara
við neyzlu hennar. En
„tízkukenningar" sem
þessi haldast sjaldan lengi
á lofti, enda verða jafnan
'
Óskar H. Gunnarsson framkvæmdastjóri Osta- og smjörsölunnar I skrifstofu sinni aö Snorrabraut 54,
Senn kemur á markaðinn niðursneiddur
ostur, sem tíðkast mjög víða erlendis
SiílmnPm! Ostri- ok <"•<»<!<
margir til andsvara. Og
Islendingar sem aðrar
þjóðir halda áfram að
drekka sína mjólk og éta
sína osta eftir sem áður og
verðurekki meintaf frekar
en ömmum þeirra og öfúm.
Sala mjólkur og mjólkurafurða
fer sivaxandi, enda eru gæðin og
fjölbreytni framleiðslunnar
mikil. Við lögðum leið okkar
niður i Osta- og smjörsöluna eitt
siðdegi fyrir skömmu og ræddum
við forstjórann, Óskar H.
Gunnarsson, um fyrirtækið, hlut-
verk þess og þýðingu fyrir
mjólkur-framleiðsluna i landinu,
og fleira.
— Svo maður fari nú gamal-
kunna leið, þá langar mig fyrst að
spyrja þig, hvenær Osta- og
smjörsalan var stofnuð og hvaða
aðilar standi að henni.
— Mjólkursamlögin i landinu
hófu starfsemi sina rétt fyrir og
upp úr 1930. Sölu framleiðslu
sinnar önnuðust þau ýmist sjálf,
eða hún var i höndum Sambands
islenzkra samvinnufélaga og
heildsala. Sölukostnaðurinn var
óþægilega mikilll, og varð brátt
ljóst að finna þyrfti einhverja leið
til úrbóta. Og að þvi kom, að sú
leið fannst, og 1. janúar 1959 hóf
Osta- og smjörsalan sina starf-
semi. Eigendur hennar eru
annars vegar Sambandið, er
kemur fram fyrir hönd þeirra
mjólkursamlaga, sem eru i eigu
kaupfélaganna i landinu, og hins
vegar M jólkursamsalan i
Reykjavfk, sem kemur fram fyrir
hönd Mjólkurbús Flóamanna og
Mjólkursamlagsins i Borgarnesi.
— Hvernig er stjórn þessa
sameignarfyrirtækis skipuð?
— I fyrstu stjórn fyrirtækisins
áttu sæti Erlendur Einarsson,
Helgi Pétursson og Hjalti Páls-
son, frá Sambandinu, og Stefán
Björnsson, Egill Thorarensen og
Einar Ólafsson frá Mjólkursam-
sölunni. Stjórnarformaður við
stofnun var Erlendur Einarsson
Stjórnarskipanin er þannig, að
það eru þrir fulltrúar frá sinn
hvorum eiganda. Stefán Björns-
son og Erlendur Einarsson hafa á
þessum 14 árum skipzt á að vera
stjórnarformenn, um eitt ár i
senn hvor, og i dag skipar Stefán
Björnsson það embætti. A næsta
stjórnarfundi, sem verður innan
skamms, mun Erlendur taka við
af Stefáni og gegna starfi
stjórnarformanns, það sem eftir
er ársins.
Litil breyting hefur orðið á
skipan stjórnarinnar.en i dag eru
frá Sambandinu Erlendur
Einarsson, Jónas Kristjánsson
fyrrv. mjólkurbússtjóri á Akur-
eyri og Hjalti Pálsson. Frá
Mjólkursamsölunni eru Stefán
Björnsson, Grétar Simonarson og
Einar ólafsson.
Fyrsti framkvæmdastjóri
fyrirtækisins var Sigurður Bene-
diktsson og gegndi hann þvi
starfi, þar til hann lézt árið 1967.
Fyrsta janúar 1968 tók ég við
störfum framkvæmdastjóra og
hef gegnt þvi starfi siðan.
Hlutverk fyrirtækisins
—Hvert er hið eiginlega verk-
svið fyrirtækisins?
— Tilgangur fyrirtækisins er
að annast sölu á umboðssölu-
grundvelli, þar á meðal útflutn-
ing, á smjöri, osti,kaseini (osta-
efnij, mjólkurdufti og hvers
konar öðrum unnum mjólkuraf-
urðum. Við höfum með að gera
sölu á unnum vörum mjólkur-
samlaganna ilandinu, en sjálf sjá
þau um söluna á hinum svo-
kölluðu ferskvörum, þ.e. mjólk,
skyri og öðru sliku. Sambandið
heldur uppi öflugri útflutnings-
starfsemi, og vegna tengsla Osta-
og smjörsölunnar við það er
samstarf á milli fyrirtækjanna
um útflutninginn.
Osta- og smjörsalan er eina
umboðssalan i landinu á mjólkur-
afurðum. Gegnum hana fer öll
sala á unnum mjólkurafurðum
Texti:
Steingrímur
Pétursson
Myndir:
Guðjón Einarsson