Tíminn - 28.01.1973, Blaðsíða 15
Sunnudagur 28. janúar 1973
TÍMINN
15
Timamyndir Gunnar
Elsa virðir fyrir sér bæjarins mesta iampaúrval
ritaöur en eftirstöövar verösins
greiöa Finnbogi og Elsa meö af-
borgunum á næstu sex mánuöum.
Sjónvarpiö var slöan komiö til
þeirra á hádegi næsta dag. —
Okkur finnst geysilegur munur að
hafa sjónvarp, við vorum meö
sjónvarp að láni i haust meöan
pabbi og mamma voru að biöa
eftir ibúð, og vorum þá oröin vön
aö hafa það segir Elsa. — Viö
vissum ekkert oröið hvaö viö
áttum að gera á kvöldin, meðan
við höfðum það ekki. Ég er lika
mikið ein heima með drenginn
þvi Finnbogi vinnur á vöktum og
þá er gott að hafa dægrastyttingu.
Sjónvarpið kom sér eiginlega
betur en þvottavél. Þvottinn get
ég farið með til mömmu, þvi við
erum með bil, en aftur er verra að
fara með Aðalstein son okkar út á
kvöldin til þess að við getum horft
á sjónvarp. Við erum fremur
róleg og mikið heima, þótt við
getum fengið barnfóstru, þegar
við viljum. En við höfum heldur
ekki efni á þvi að fara mikið út að
skemmta okkur.
1 JL húsinu var Finnboga og
Elsu einnig afhentur skrautlampi
að gjöf frá fyrirtækinu. Lampar
af þessu tagi eru nýir af nálinni.
Þeir eru framleiddir i Banda-
rikjunum, i lögun svipaðir og
blómavasar, með peru á
botninum en ljósið leitt um nælon-
þræði, sem klofnar eru i endana,
þannig að þegar logar á þeim
minna þeir á upplýsta litla gos-
brunna. Lampar af þessari gerð
kosta 2.900.-5.900 kr. og hafa að
sögn þegar orðið vinsælir þær fáu
vikur, sem þeir hafa verið á
boðstólum hér.
Blóm og kertaljós
Siöan skoðuðu þau hjónin sig
um i þessari nýju verzlun og gat
þar margt girnilegt að lita, ekki
siztýmiss konar innlend húsgögn,
og fjölbreyttasta lampaúrval i
borginni, svo það var vel við hæfi
að þau fengu einmitt lampa i gjöf
frá verzluninni. Áður en haldið
var burt úr JL húsinu birtist einn
fulltrúi verzlunar i borginni, sem
ákveðið hafði aö gleðja fyrstu
brúöhjón mánaðarins. Þar var
Magnús Guömundsson í Blóma-
húsinu, Skipholti 37 kominn með
blómvönd handa þeim að gjöf.
Nú lá leiðin á Hótel Sögu, þar
sem Konráð Guðmundsson hótel-
stjóri tók á móti þessum heiðurs-
gestum. Færði hann hjónunum
afarfallegan blómvönd að gjöf frá
Hótel Sögu, og er hætt að segja að
hann var blómaverzluninni
Mimósu, sem þar er til húsa, til
mikils sóma. Einnig afhenti
Konráð þeim litla postulinsplatta
með mynd af Hótel Sögu, gerða
hjá Bing og Gröndal i Kaup-
mannahöfn sérstaklega fyrir
hótelið, en þeir eru ætlaðir til
gjafa handa sérstökum gestum.
Þá tók móttökustjóri við gest-
unum og fylgdi þeim upp I Grillið
á áttundu hæð Þar beið fagurlega
dúkað borð og kertaljós, og mót-
tökur starfsbræðra Finnboga,en
þær voru ekki siðri en hin marg-
rómaða islenzka gestrisni á
gömlu sveitaheimilunum, þótt
nokkuð væri hún sennilega með
öðrum svip.
Kampavin, humar og log-
andi pönnukökur
Brúðhjónamáltiðin hófst á
kampavini og humarkokteil.
Siðan kom blandaður kjötréttur
steiktur á teini, og i ábæti völdu
Elsa og Finnbogi sér logandi
kryddaðar pönnukökur.
Maturinn rann ljúflega niður,
og að honum loknum var ekki
hægt að bregða sér á dansleik i
Súlnasalnum, þvi allir veizlusalir
voru uppteknir fyrir einkasam-
kvæmi nú þessum tima árshátið-
anna. Upp úr niu kvöddu Elsa og
Finnbogi gestgjafa sina á Hótel
Sögu og fóru i heimsókn til vina
sinna og horfðu þar á sjónvarps-
þáttinn i Sjónaukanum, þar sem
hinir hörmulegu atburðir sem
áttu sér stað i Breiðholtshverfi
helgina áöur, voru til umræðu.
Ungu hjónin voru því áður en
kvöldinu lauk minnt á að lifið
hefur einnig sinar dökku hliöar.
En gleymum þvi að sinni og
kvöldinu lauk i hópi góðra vina.
Og við kveðjum fyrstu brúðhjón
mánaðarins.
SJ
Efsta hæðin i JL húsinu er skemmtilega innréttuðog þar skoðuöu ungu hjónin rúm af öllum gerðum
...og skrautlampi fylgdi að gjöf frá verzluninni
Brúðhjónamáltiö I boöi Hótel Sögu.