Tíminn - 04.02.1973, Side 1

Tíminn - 04.02.1973, Side 1
HOTEL L0FTIfl®W „Hótel Loftleiðir býður gestum sínum að velja á milli 217 herbergja með 434 rúmun — en gestum standa Itka [búðir til boða. Allur búnaður miðast við strangar kröfur vandlátra. LOFTLEIDAGESTUM LÍÐUR VEL. Nýja Búrfellslínan nothæf - til orkuflutnings um þessa helgi KJ—Reykjavik Um eða upp úr helginni, er gert ráð fyrir, að hægt verði að taka nýju búfellslinuna i notkun, og mun þá mörgum rafmagnsnot- andanum létta, enda þótt undir- stöður linunnar séu ekki sem traustastar. Karl Eiriksson framkvæmda- stjóri Bræðranna Ormsson, sagði i viðtali við Timann fyrir helgi, að hann byggist við, að ekki tæki nema 2-3 daga að ljúka við að tengja linuna, þannig að hægt yrði að taka hana i notkun, ef með þyrfti. Sem kunnugt erf þá eru Bræðurnir Ormsson um- boðsaðilar fyrir brezka verktaka- fyrirtækið, sem tók að sér lögn linunnar. Karl sagði, að búið væri að strengja linuna, og taka hjólin af möstrunum, en hjól þessierunot- uð við strenginguna, eins og margir Sunnlendingar hafa ef- laust tekið eftir, við lögn beggja Búrfellslinanna. Eftir mun hafa verið að strengja linuna á 22 km kafla, þegar turninn i eldri Búfellslin- unni brast, en nú er strengingu lokiðog verið að tengja linuna við einangrara á st^álmöstrunum. Eitt mastrið i nýju Búrfellslin- unni gaf sig i veðurofsanum, og hefur það nú verið reist við. Mastur þetta var númer 111, og þvi einhversstaðar austur i Holtum, eða austan Þjórsár. Auk þess sem vinnuflokkar eru að ganga frá strengingu og teng- inu nýju Búrfellslinunnar, vinna nú vinnuflokkar að þvi að treysta undirstöður linunnar, sem kom i ljós að höfðu gefið sig. Frönsku undirverktakar brezku aðalverk- takanna, eru nú hér á landi með flokk manna og vinna að þvi að reka mikil Hjárn i jörðina, i stað steypu undirstaðanna. Járn þessi, sem réttara sagt eru stálbitar eru ekki ósvipuð þvi járni, sem rekið er niður við hafnar- gerðir, og mynda þá járnþil. Nota verktakarnir fallhamra við verk- ið, og eru fjögur járn rekin undir hvorn fót stálmastranna, eða átta járn undir hvert mastur, þar sem undirstöðurnar gáfu sig. Hægt verður að vinna áfram að þessu verki þótt linan verði tekin i notkun. Ekkert hefur frekar verið átt við viðgerð á eldri linunni, sem slitnaði fyrir jólin, enda ekki hægt um vik, þar sem allur orku- flutningur, frá Búrfellsvirkjun, fer um þessa linu. MARIATALIN - með henni fórust fjórir ungir fjölskyldumenn AF Erl-Reykjavík. Vélbáturinn Maria KE 84 er nú talinn af, eftir að rannsókn, sem fram fór á gúmbátnum og kistugrind- unum, sem fundust austur af Eldeyjarboða, sannaði, að þessir hlutir væru úr Maríu. Með Maríu fórust 4 menn, allt ungir fjölskyldumenn. Þeir hétu: Sævar R. Ingi- marsson, skipstjóri, 30 ára að aldri, og var búsettur í Reykjavík. Stýrimaður var Halldór Bjarnason, 27 ára Hafnfirðingur, Gunnar V. Guðjónsson, vélstjóri, 23 ára úr Kópavogi, og mat- sveinn var Gunnar Inga- son, 32 ára Reykvíkingur. Kisa hefur hagsmuna að gæta við mjaltirnar, og þess vegna fylgist hún vel með, hvenær bóndinn setzt undir Auðhumlu sina. Kettlingurinn hennar er ekki orðinn eins útfarinn og þess vegna verður hann að mamma missir út úr sér niöur i flórinn. ISLENZKIR HESTAR VIÐFRÆGÐ- IR í ÚTLENDUM STÓRBLÖÐUM A þeim tima er island var óvegað, urðu útlendingar, sem hingað slæddust og eitthvað viidu sjá af iandinu, að taka sér á leigu hóp hesta og ráða sér fylgdarmenn. í ferða- bókum, sem margir þeirra skrifuðu, er svo til ævinlega borið mikið lof á þrek og fimi hestanna. Nú fljúga menn eða aka landshornanna á milii. Eigi að siður hefur frægðar- stjarna islenzkra hesta aidrei risið hærra i öörum löndum en einmitt nú. 1 stórblöðum erlendum má iðulega sjá heilsiðugreinar um islenzka hesta, ásamt fjölda stórra mynda, sem blöð og fréttastofnanir senda hingað menn, rithöfunda og Ijósmyndara, gegngert þeirra erinda að viða að sér sliku efni. Það er engan veginn nýtt fyrirbæri, að Islendingar leggi miklp elsku á góða hesta, þvi að Svo hefur sjálfsagt verið frá upphafi vega, en hitt er nýrri saga, að þeir skuli törfa fólk af öðru þjóðerni, sem raunar er að uppgötva dýra- tegund, er það hefur engin kynni fyrr af haft. Löng og skemmtileg grein i einu sænsku stórblaðanna, Göteborgsposten, hefst á þessum orðum: Skeið á Islandi: Hér er Guðrún og Erika, sem hlotnazt hefur draumahlut- verk þúsunda sænskra stúlkna: Að vera á hestbaki allan daginn. 1 fallegum, islenzkum peysum meö skemmtilegu mynztri þeysa þær á harðastökki á hestum með flaksandi fax undir nöktum fjallshliðunum i grennd við bæinn. Guðrún Hafberg, átján ára gömul, er islenzk og hefur eiginlega aldrei annað gert en sýsla eitthvað við hesta. Erika Steinmann, 24 ára, fæddist i Sviss með þrá eftir hestum i blóðinu. Þess vegna fluttist hún til hestalandsins Islands. Vinna beggja er að hugsa um hesta hjá bóndanum Kjartani Georgssyni á Skeiðum á Suðurlandi. Hann á stóra hjörð hesta. Mörg þúsund sænskra unglinga, pilta og stúlkna, þrá ekki annað heitar en eiga kost að komast á hestbak, og það er óskadraumurinn mikli að eignast hest. Guðrún og Erika vinna aftur á móti fyrir sér með þvi að fást við hesta, og það er ekki aö sjá, að þær séu neitt leiðar á þeirri vinnu. Á bænum eru nú sem stendur sjötiu, og flesta þeirra er verið að temja. Siðar i greininni segir, að Samband islenzkra sam- vinnufélaga hafi flutt út hesta fyrir fjörutiu milljónir króna, og búast megi við, að á ný- byrjuðu ári selji Islendingar hesta fyrir fimmtiu milljónir króna. „Kjartan Georgsson selur aðeins fulltamda hesta”, segir greinarhöfundur siðan, ,,og hann selur góða hesta. Verðið er afarmisjafnt, en i Þýzka- landi greiða menn upp i hundrað og þrjátiu þúsund krónur fyrir hest. Þar að auki verður kaupandinn að borga flugfar fyrir hestinn. Heima á Islandi er verðið mun lægra, og lætur nærri, að meðalverð sé um fjörutiu og fimm þúsund krónur”. Siðan koma lýsingar á þvi, hvernig háttað er tamningu hesta, gangi þeirra og öðru fieira: „Það er dásamleg sjón, þegar Gurún og Erika hleypa folunum og snjórinn þyrlast undan hófum þeirra” Framhald á 3. siðu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.